Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGFerðahýsi ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sigurður Helgi Grímsson, sigurdurhg@365.is, s. 512-5464 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Að ferðast um í húsbíl gefur manni einstaklega frjálst líf. Það var þó algjör tilviljun að ferðalagið hófst. Við keyptum bílinn árið 2002 en vorum búin að ákveða löngu áður að kaupa bát eða bíl. Ég er hins vegar sjóveik og var þess vegna ekki jafn spennt fyrir báti,“ segir Sig- rún. Þau hjónin fluttu til Danmerkur árið 1995 og höfðu ákveðið að færa sig um set og selja húsið árið 2002. „Við ætluðum að flytja til Árósa en töldum að það myndi taka einhvern tíma að selja húsið okkar. Við fengum hins vegar strax mjög gott tilboð en með þeim fyrirvara að við yrðum búin að losa það tveimur vikum síðar. Okkur fannst ekki mikið mál að setja dótið í geymslu og búa bara í bílnum í tvo til þrjá mánuði á meðan við værum að leita að nýju húsnæði. Þetta urðu fimm ár,“ segir Sigrún. Halda Íslandsmót í Noregi „Við ókum að smábátahöfn þar sem eru mörg bátahýsi og fólk hefur vetursetu. Þar kynntumst við frá- bæru fólki. Síðan héldum við ferð- inni áfram um alla Evrópu, vorum til dæmis á Spáni í nokkra mánuði. Héldum jól í Þýskalandi og fórum um allt á Norðurlöndunum. Mesta upp- lifunin var þegar við komum með 120 húsbíla til Íslands árið 2004. Ég held að það sé heimsmet vegna þess að ég veit ekki til þess að svo stór hópur manna og bíla hafi farið saman í ferju. Þessi ferð var einstaklega vel heppnuð og margir sem voru í ferð- inni halda enn hópinn. Fólkið hefur sagt mér að þessi ferð hafi verið topp- urinn á ferðalögunum en það hefur farið um alla Evrópu og til Bandaríkj- anna. Til dæmis Norðmennirnir sem hittast á Íslandsmóti í maí á hverju ári til að rifja upp þessa ferð. Þá klæðast þeir íslenskum lopapeysum og eru með íslenskan fána,“ útskýrir Sigrún og bætir því við að þau hafi kynnst ótrúlega mörgu góðu fólki á þessu ferðalagi. „Þegar við dvöldum á Spáni kynnt- umst við meðal annars Englending- um og Þjóðverjum. Þetta fólk vildi endilega að við settum í gang aðra Íslandsferð. Sömuleiðis Belgi sem gefur út ferðablað en hann hefur verið áhugasamur um að við settum upp ferð til Belgíu. Við fórum aftur til Íslands árið 2005 en þá voru 55 bílar með okkur. Það er hins vegar mikil undirbúningsvinna og skipulagning fyrir svona ferð og að mörgu þarf að huga.“ Varist þjófa Sigrún segir að þetta hafi verið afar skemmtilegur tími. Nú býr hún í Vi- borg á Jótlandi en þau lögðu bíln- um fyrir ári. „Guðmundur hefur átt við veikindi að stríða og á erfitt með að komast upp í bílinn. Við þyrftum að fá bíl með lyftu,“ útskýrir Sigrún en hún vill benda fólki, sem ferðast um Evrópu á húsbíl, á að sýna mikla gætni. „Vinafólk okkar lenti í því að lögreglumenn stöðvuðu þau á hrað- braut á Spáni. Annar þeirra skoð- aði bílinn að innan á meðan hinn ræddi við þau fyrir utan. Það var ekki fyrr en þau komu á næstu bens- ínstöð sem þau áttuðu sig á að öllu verðmætu hafði verið stolið úr bíln- um. Þetta voru ekki lögreglumenn heldur svæsnir þjófar. Það má aldrei stöðva bílinn nema á fjölmennum stöðum, sama hvort það er lögregla eða einhver annar. Ég vaknaði einu sinni við að öryggiskerfið fór í gang hjá okkur en sem betur fer náðu þjófarnir ekki að stela neinu. Það er mikil lífsreynsla að búa á þenn- an hátt og maður verður að vera bæði vel tryggður og vita í hverju maður getur lent. Vatn getur frosið í leiðslum um vetur og eitt og annað getur komið upp. Við vorum alltaf að læra og erum reynslunni ríkari. Sem betur fer er fólk á húsbílastöðum afar hjálplegt og þar er mikill samhugur. Ætli við séum ekki fyrstu Íslending- arnir sem lifum eins og sígaunar,“ segir Sigrún og hlær. Bjuggu í húsbíl í fimm ár Sigrún Haraldsdóttir og eiginmaður hennar, Guðmundur Vikar Þorkelsson, bjuggu í húsbíl í fimm ár og ferðuðust um Evrópu. Meðal annars komu þau með stóran hóp húsbílaeigenda til Íslands. Sigrún Haralds- dóttir og Guðmundur Vikar Þor- kelsson hafa ferðast um alla Evrópu í húsbíl. Sigrún og Guðmundur skipulögðu ferð til Íslands með 120 húsbílum árið 2004. Norð- mennirnir úr þeim hópi voru svo ánægðir að í maí á hverju ári halda þeir Íslandsmót til að rifja upp ferðina. Þessi mynd er tekin við slíkt tækifæri. MYNDIR ÚR EINKASAFNI Ergo vill aðstoða þig við að eignast ferðavagn Þú finnur draumavagninn þinn og sendir okkur nánari upplýsingar. Saman finnum við svo réttu lausnina til að aðstoða þig við fjármögnunina. Kynntu þér málið nánar á ergo.is Við fjármögnum ferðavagninn þinn Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is FERÐAVAGNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.