Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 24
BÍLAR2 Þriðjudagur 26. mars 2013 FRÉTTABLAÐIÐ www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbirgir@365.is Sími 5125432 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is MITSUBISHI OUTLANDER Finnur Thorlacius reynsluekur Ekki hefur borið mikið á nýjum bílum frá Mitsubishi á síðustu misserum og því telst það til enn meiri fréttar að frá þeim er komin ný kynslóð af hinum vinsæla Outlander-jepplingi. Síðasta kynslóð hans var reyndar orðin átta ára gömul og því full ástæða til. Óvenjulegt er að ein kynslóð bíls endist svo lengi en frá 2006 hefur Mitsu bishi selt ríflega 100.000 eintök af honum á ári og reyndar hátt í 170.000 bíla metárið 2007. Útlitsbreytingin á Outlander er mikil og hafa mjúkar línur leyst af hólmi kantaðri og beinni línur. Um algerlega nýjan bíl er að ræða og Mitsubishi segir flest í honum nýtt. Með nýrri hönnun hans var haft í huga að fyrir í honum myndi komast Plug-In Hybrid tvinnkerfi og búast má við að sjá hann þannig búinn í haust. Eins og margur nýr bíllinn í dag hefur Outlander farið í væna megrun milli kynslóða og tapaði hann 144 kílóum í þetta skiptið og er það vel. Rúmgóður en hófstillt innrétting Nýi Outlander-inn er talsvert mikið rúmbetri bíll en forveri hans, enda bólginn að sjá og býsna lang- ur. Fyrir vikið er hann einn af rúmbetri jepplingum sem nú bjóðast. Svo langur er bíllinn að hann má fá í 7-manna útfærslu, en þegar þau sæti eru ekki í notkun falla þau niður og farangursrýmið verð- ur alveg flatt. Flott útfærsla þar. Það er 477 lítrar og stækkar í 1.022 lítra ef aftursæti er fellt niður. Mitsu bishi Outlander fæst bæði með bensín- og dís- ilvél, en reyndur var bíll með dísilvél, sem búast má við að verði vinsælli. Það kom reynsluökumanni nokkuð á óvart hve hófstillt innrétting bílsins er og talsvert frá því að teljast nýtískuleg. Aðgerðastýri með flipaskiptingu og snertiskjárinn fyrir miðju lyfta honum þó upp. Stjórna má flestu á snerti- skjánum. Að öðru leyti eru mælaborðið og stjórn- tæki ekki til að gleðja mjög augað, né heldur sætin eða litavalið. Allt virkar þetta þó vel og hljómkerf- ið gladdi ökumann fyrir ágæti sitt. Þó var verulega undarlegt að sjá að takkinn til að hækka og lækka í því er hægra megin á tækinu. Verulega undarleg staðsetning það. Allir farþegar sitja óvenju hátt í bílnum og slær þar hátt í jeppa. Útsýni er því gott og gluggar og gluggaumgjörð alls ekki til skerðing- ar hvað það varðar. Dísilvél með miklu togi Venjulegur akstur Outlander er fyrirhafnarlítill og ljúfur en slær þó engin met í þessum flokki bíla. Fyrir því finnst að þar fer nokkuð stór bíll. Hann er fínn í stýri en sökum ágætrar veghæðar og hárr- ar uppbyggingar bílsins hallast hann nokkuð í hröð- um beygjum og farþegum er réttara að finna sér traustatak. Ekki var gengið langt að mörkum hans sökum of lítils veggrips og hættu á að þar léti eitt- hvað undan. Dísilvélin, sem er 2,2 lítrar og 150 hest- öfl, er hins vegar hin ágætasta, togar vel með sínum 380 Newton-metrum og skemmtilegt er að gefa henni aðeins inn. Millihröðun er fín og hann vinn- ur sterklega á hærri snúningi. Þetta er greinilega fín vél því hún er að auki sparneytin og eyðir ekki nema 5,7 lítrum í blönduðum akstri. Ekki var alveg að marka reynsluaksturinn, sem svo til að öllu leyti fór fram innanbæjar, enda sýndi hann um tveggja lítra hærri tölu. Ágætt samt. Outlander hefur fína torfærueiginleika og fékk hann örlítið að finna fyrir því. Drifgeta hans og fjórhjóladrif henta vel hér- lendis. Nokkra furðu vakti, fyrir nýhannaðan bíl, hversu mikið heyrist í vélinni í farþegarýminu og veghljóð fær einnig alltof greiða leið þar inn. Þarna mætti Mitsubishi gera aðeins betur. Sumar nýjungar teljast vart til bóta Nokkrar nýjungar fylgja nýjum Outlander og ein þeirra er línuskynjari sem lætur ökumann vita ef hann óvart er að fara yfir veglínu eða hreinlega sofnar undir stýri. Þessi búnaður er einn mest pirr- andi búnaður sem ökumaður hefur kynnst og fyrsta verk væri að taka hann úr sambandi. Skynjarinn hélt uppi mjög vanþegnum tónleikum allan reynslu- aksturinn því skynjarinn er afar duglegur að láta vita af því ef nálgast er ökulínu, hvað þá ef öku- maður gerist svo djarfur að skipta um akrein. Þetta er ein af þeim mörgu óþörfu truflunum sem öku- menn ættu að geta verið án og full ástæða til að velta fyrir sér hvort búnaðurinn hafi ekki frekar þveröfug áhrif en þau sem til er ætlast. Sem betur fer var ekki nálgunarvari í bílnum, en þá gæti leið- in hafa legið á ákveðna gerð stofnana, frekar en upp í Heiðmörk. Tónleikar sem bárust úr hljóðkerfi bílsins voru af mun smekklegri gerð. Hægt er þó að slökkva á línuskynjaranum með einum takka. Annar og betri búnaður í bílnum er skriðstillir með árekstrarvörn. Heldur hann réttri vegalengd milli bíla og bremsar ef með þarf. Outlander bætist nú í stóran hóp jepplinga sem í boði eru. Allir hafa þeir sína kosti en stærstu kostir Outlander eru mikið rými, fín torfærugeta, sjö farþega kostur og ágætt verð. Óhætt er að mæla eindregið með einum sér- stökum og flottum lit sem bíllinn býðst í, þ.e. brons- lit. Bíllinn verður allur eðall og það stirnir á hann í sólinni. RÚMMIKILL OG SPARNEYTINN ÞJARKUR Með sérlega háa sætisstöðu og duglegur í torfærum. 2,2 DÍSILVÉL, 150 HESTÖFL Fjórhjóladrif Eyðsla 5,7 l./100 km í bl. akstri Mengun 150 g/km CO2 Hröðun 11,7 sek. Hámarkshraði 190 km/klst Verð 7.290.000 kr. Umboð Hekla MITSUBISHI OUTLANDER Útlit jepplingsins er mjög breytt frá síðustu kynslóð. Hann er nú bólginn í útliti og allar línur sveigðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI Rúnar Róberts Góður vinnufélagi! Virka daga kl. 13 – 16 Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.