Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 24
BÍLAR2 Þriðjudagur 26. mars 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
MITSUBISHI OUTLANDER
Finnur Thorlacius reynsluekur
Ekki hefur borið mikið á nýjum bílum frá
Mitsubishi á síðustu misserum og því telst það til
enn meiri fréttar að frá þeim er komin ný kynslóð
af hinum vinsæla Outlander-jepplingi. Síðasta
kynslóð hans var reyndar orðin átta ára gömul og
því full ástæða til. Óvenjulegt er að ein kynslóð bíls
endist svo lengi en frá 2006 hefur Mitsu bishi selt
ríflega 100.000 eintök af honum á ári og reyndar
hátt í 170.000 bíla metárið 2007. Útlitsbreytingin
á Outlander er mikil og hafa mjúkar línur leyst af
hólmi kantaðri og beinni línur. Um algerlega nýjan
bíl er að ræða og Mitsubishi segir flest í honum
nýtt. Með nýrri hönnun hans var haft í huga að fyrir
í honum myndi komast Plug-In Hybrid tvinnkerfi og
búast má við að sjá hann þannig búinn í haust. Eins
og margur nýr bíllinn í dag hefur Outlander farið
í væna megrun milli kynslóða og tapaði hann 144
kílóum í þetta skiptið og er það vel.
Rúmgóður en hófstillt innrétting
Nýi Outlander-inn er talsvert mikið rúmbetri bíll
en forveri hans, enda bólginn að sjá og býsna lang-
ur. Fyrir vikið er hann einn af rúmbetri jepplingum
sem nú bjóðast. Svo langur er bíllinn að hann má
fá í 7-manna útfærslu, en þegar þau sæti eru ekki
í notkun falla þau niður og farangursrýmið verð-
ur alveg flatt. Flott útfærsla þar. Það er 477 lítrar
og stækkar í 1.022 lítra ef aftursæti er fellt niður.
Mitsu bishi Outlander fæst bæði með bensín- og dís-
ilvél, en reyndur var bíll með dísilvél, sem búast
má við að verði vinsælli. Það kom reynsluökumanni
nokkuð á óvart hve hófstillt innrétting bílsins er og
talsvert frá því að teljast nýtískuleg. Aðgerðastýri
með flipaskiptingu og snertiskjárinn fyrir miðju
lyfta honum þó upp. Stjórna má flestu á snerti-
skjánum. Að öðru leyti eru mælaborðið og stjórn-
tæki ekki til að gleðja mjög augað, né heldur sætin
eða litavalið. Allt virkar þetta þó vel og hljómkerf-
ið gladdi ökumann fyrir ágæti sitt. Þó var verulega
undarlegt að sjá að takkinn til að hækka og lækka
í því er hægra megin á tækinu. Verulega undarleg
staðsetning það. Allir farþegar sitja óvenju hátt í
bílnum og slær þar hátt í jeppa. Útsýni er því gott
og gluggar og gluggaumgjörð alls ekki til skerðing-
ar hvað það varðar.
Dísilvél með miklu togi
Venjulegur akstur Outlander er fyrirhafnarlítill
og ljúfur en slær þó engin met í þessum flokki bíla.
Fyrir því finnst að þar fer nokkuð stór bíll. Hann
er fínn í stýri en sökum ágætrar veghæðar og hárr-
ar uppbyggingar bílsins hallast hann nokkuð í hröð-
um beygjum og farþegum er réttara að finna sér
traustatak. Ekki var gengið langt að mörkum hans
sökum of lítils veggrips og hættu á að þar léti eitt-
hvað undan. Dísilvélin, sem er 2,2 lítrar og 150 hest-
öfl, er hins vegar hin ágætasta, togar vel með sínum
380 Newton-metrum og skemmtilegt er að gefa
henni aðeins inn. Millihröðun er fín og hann vinn-
ur sterklega á hærri snúningi. Þetta er greinilega
fín vél því hún er að auki sparneytin og eyðir ekki
nema 5,7 lítrum í blönduðum akstri. Ekki var alveg
að marka reynsluaksturinn, sem svo til að öllu leyti
fór fram innanbæjar, enda sýndi hann um tveggja
lítra hærri tölu. Ágætt samt. Outlander hefur fína
torfærueiginleika og fékk hann örlítið að finna fyrir
því. Drifgeta hans og fjórhjóladrif henta vel hér-
lendis. Nokkra furðu vakti, fyrir nýhannaðan bíl,
hversu mikið heyrist í vélinni í farþegarýminu og
veghljóð fær einnig alltof greiða leið þar inn. Þarna
mætti Mitsubishi gera aðeins betur.
Sumar nýjungar teljast vart til bóta
Nokkrar nýjungar fylgja nýjum Outlander og ein
þeirra er línuskynjari sem lætur ökumann vita ef
hann óvart er að fara yfir veglínu eða hreinlega
sofnar undir stýri. Þessi búnaður er einn mest pirr-
andi búnaður sem ökumaður hefur kynnst og fyrsta
verk væri að taka hann úr sambandi. Skynjarinn
hélt uppi mjög vanþegnum tónleikum allan reynslu-
aksturinn því skynjarinn er afar duglegur að láta
vita af því ef nálgast er ökulínu, hvað þá ef öku-
maður gerist svo djarfur að skipta um akrein. Þetta
er ein af þeim mörgu óþörfu truflunum sem öku-
menn ættu að geta verið án og full ástæða til að
velta fyrir sér hvort búnaðurinn hafi ekki frekar
þveröfug áhrif en þau sem til er ætlast. Sem betur
fer var ekki nálgunarvari í bílnum, en þá gæti leið-
in hafa legið á ákveðna gerð stofnana, frekar en
upp í Heiðmörk. Tónleikar sem bárust úr hljóðkerfi
bílsins voru af mun smekklegri gerð. Hægt er þó
að slökkva á línuskynjaranum með einum takka.
Annar og betri búnaður í bílnum er skriðstillir með
árekstrarvörn. Heldur hann réttri vegalengd milli
bíla og bremsar ef með þarf. Outlander bætist nú í
stóran hóp jepplinga sem í boði eru. Allir hafa þeir
sína kosti en stærstu kostir Outlander eru mikið
rými, fín torfærugeta, sjö farþega kostur og ágætt
verð. Óhætt er að mæla eindregið með einum sér-
stökum og flottum lit sem bíllinn býðst í, þ.e. brons-
lit. Bíllinn verður allur eðall og það stirnir á hann í
sólinni.
RÚMMIKILL OG
SPARNEYTINN ÞJARKUR
Með sérlega háa sætisstöðu og duglegur í torfærum.
2,2 DÍSILVÉL, 150 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 5,7 l./100 km
í bl. akstri
Mengun 150 g/km CO2
Hröðun 11,7 sek.
Hámarkshraði 190 km/klst
Verð 7.290.000 kr.
Umboð Hekla
MITSUBISHI
OUTLANDER
Útlit jepplingsins er mjög breytt frá síðustu kynslóð. Hann er nú bólginn í útliti og allar línur sveigðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILLI
Rúnar
Róberts
Góður vinnufélagi!
Virka daga kl. 13 – 16
Save the Children á Íslandi