Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 31
KYNNING − AUGLÝSING Ferðahýsi26. MARS 2013 ÞRIÐJUDAGUR 7 Segja má að Olga og Aðalsteinn hafi eignast nýtt líf þegar þau fjár-festu í hjólhýsi í hjólhýsagarði fyrir ári. „Við vorum þarna nánast allar helg- ar í sumar enda vorum við heppin með veður, yfirleitt 20 stiga hiti og sól fyrir utan tvær rigningarhelgar,“ segir Olga sem er himinlifandi yfir nýju híbýlunum. Áður áttu þau fellihýsi en hafði um nokk- urt skeið langað í hjólhýsi eða húsbíl. „Svo vorum við á gangi í hjólhýsahverfi og sáum til sölu hús. Þetta var eitthvað svo kósý og næs að við ákváðum að kýla á það og höfum ekki orðið fyrir vonbrigð- um, það er bara æðislegt að vera þarna.“ En er eitthvað við að vera í svona hjól- hýsagarði? „Það er sko alltaf nóg að gera,“ svarar Olga og hlær. „Við förum mikið í göngutúra, göngum upp fjallið og tökum tíu til ellefu kílómetra göngur. Svo dytt- ar maður að í kringum sig, gengur um hverfið og spjallar við fólkið,“ lýsir hún og bætir við að þau hafi kynnst yndis- legu fólki á þessu eina ári. „Við erum til dæmis í skemmtinefnd og þá þarf heil- mikið að skipuleggja til dæmis fyrir verslunarmannahelgina,“ segir hún glöð í bragði. Er mikill samgangur á milli hjólhýs- anna? „Já, en þú situr ekkert uppi með ná- grannana,“ svarar Olga kímin og held- ur áfram: „Það er svo skrítið að þó stutt sé á milli hjólhýsanna þá er maður mjög sér. Maður verður ekkert var við fólkið þó það sé við hliðina á manni.“ Mikill gróð- ur er í garðinum en hjólhýsi Olgu og Að- alsteins stendur hins vegar á fremur beru svæði. „Við sjáum alla koma og fara. Þeir kalla okkur borgarstjórana þarna því við vitum alltaf hver er á svæðinu,“ segir Olga hlæjandi. Þau hjónin láta sér ekki nægja að dvelja í sveitinni á sumrin heldur hafa notað hjólhýsið í vetur líka. „Það er bara róman- tískt. Þá er færra fólk á svæðinu en samt eru alltaf einhverjir í fimm til sex húsum. Við förum ekki síður í göngutúra á veturna enda er mikil veðursæld á staðnum,“ segir Olga. En er ekkert kalt á þeim í hjólhýsinu? „Nei, maður er bara í stuttermabol inni og við þurfum varla að kynda neitt nema á nóttunni,“ segir hún. Hjólhýsi Olgu er fest niður og því ferðast þau hjónin ekki með það. Í kringum húsið er sólpallur og þar er skúr, en á sumrin eru þau með fortjald. En væri ekki betra að eiga bara sumarbústað? Því er Olga ekki sam- mála. „Í hverfinu er fólk sem hefur átt sum- arbústað en selt hann til að kaupa hjólhýsi hér. Þannig losnar það við alla garðvinnu og viðhald auk þess sem þetta er mikið ódýr- ara,“ útskýrir hún og sér helst eftir því að hafa ekki keypt hjólhýsi fyrr. „Mér datt bara ekki í hug að þetta væri svona notalegt,“ segir Olga og hlakkar til næstu ára í hjól- hýsagarðinum sem hún ætlar að njóta með eiginmanninum og barnabörnunum sem stundum fá að koma með ömmu og afa. Mér datt bara ekki í hug að þetta væri svona notalegt. Rótor ehf. að Helluhrauni 4 í Hafnarfirði er lítið, traust fjölskyldufyrirtæki sem Lárus G. Brands-son hefur stjórnað frá stofnun þess árið 1989 og verður fyrirtækið því 25 ára á næsta ári. Fagfólk með ríka reynslu og þjónustulund aðstoðar viðskiptavini Rótors jafnt í verslun sem á þjónustuverk- stæði og eru vöruverð afar samkeppnishæf, enda flyt- ur fyrirtækið sjálft inn megnið af sínum vörum. Stærstu viðskiptavinahópar fyrirtækisins eru húsvagnasmiðir og félagar húsvagnafélaga. Tólf mánaða húsbíll Rótor býður nú, í samvinnu við Reimo í Þýskalandi, Heklu og Landsbankann, upp á einstakan ferða- og fjöl- skyldubíl af gerðinni Volkswagen Transporter T5, sem er hannaður af Reimo en útfærður fyrir Ísland af Lár- usi sem er bifvélavirkjameistari og með áratuga reynslu í faginu. Rótor sér um að útbúa bílana frá grunni. „Þetta er því nýr íslenskur húsbíll,“ segir Lárus og bætir við að Rótor sé eina íslenska fyrirtækið sem taki nýja bíla og breyti í húsbíla. „Þetta er í raun tólf mánaða húsbíll sem nýtist til ferðalaga á sumrin og t.d. skíða- og vél- sleðaferða á veturna,“ segir Lárus og bendir á að bílarn- ir komist inn í flestar bílageymslur því þeir eru undir tveimur metrum á hæð. „Þetta eru jafnframt rúmgóðir fjölskyldubílar og því kjörnir sem annar bíll á heimili.“ Trio Style Til eru nokkrar gerðir af Reimo-húsbílum. Mesti fjöl- notabíllinn er „Trio Style“ sem hentar til ferðalaga, búð- arferða, í vinnuna, skólann eða til flutninga. „En fyrst og fremst er hann fullbúinn ferðabíll fyrir fjölskyld- una,“ segir Lárus. Einn slíkur er nú í smíðum hjá fyr- irtækinu sem sýna á hjá Heklu á bílasýningu nú í maí. Bíllinn verður með innréttingar úr eplaviði, sæti fyrir fimm með þriggja punkta öryggisbeltum, svefnplássi fyrir fjóra, helluborði og vaski undir gleri. Nánari upplýsingar um bílana og aðra þjónustu Ró- tors er að finna á www.rotor.is en einnig á Facebook- síðu fyrirtækisins sem er afar virk og vinsæl. Nýr íslenskur húsbíll Rótor ehf. sérhæfir sig í vörum og þjónustu tengdum húsvögnum, breytingum og smíði húsbíla og -vagna ásamt sölu þeirra og innflutningi. Nú smíðar Rótor nýja íslenska húsbíla í samstarfi við Reimo, Heklu og Landsbankann. Rafn A. Guðjónsson, húsgagnasmiður á þjónustuverkstæði Rótors, að smíða skáp í Hyundai-húsbíl. Lárus G. Brandsson bifvélavirkjameistari fyrir framan verslun Rótors, við nýjan VWT5 Trio Style sem er í smíðum hjá fyrirtækinu. MYND/GVA Rómantískar vetrarstundir í hjólhýsi Olga E. Ágústsdóttir og eiginmaður hennar, Aðalsteinn Böðvarsson, festu kaup á hjólhýsi í hjólhýsagarði á Suðurlandi fyrir ári. Þar hafa þau dvalið flestar helgar síðan og skilja ekkert í því að hafa ekki látið verða af þessum draumi fyrr enda segja þau félagsskapinn yndislegan. Þau víla ekki fyrir sér að dvelja í húsinu á veturna enda sé það afar rómantískt. Hjónin nota hjólhýsið sumar jafnt sem vetur. Aðalsteinn slakar á eina kvöldstund í sumar. Olga gæðir sér á dýrindis grillmat enda smakkast allt betur undir beru lofti. ■ Góð meðferð á svefnpoka borgar sig svo hann endist lengur og geri sitt gagn. ■ Dúnpoka skal ekki geyma þétt pakkaða í þröngum loftþéttum pokum. Það fer illa með dúninn og dregur úr einangrunargildi hans. ■ Best er að geyma svefnpoka í hreinu, loftræstu umhverfi, til dæmis í netapoka. ■ Gætið þess að setja pokann ekki rakan ofan í poka þar sem hann gæti þá myglað. ■ Óhreinan svefnpoka er gott að þvo í þvottavél, fara í öllu eftir þvottaleiðbeiningum á pokanum og nota þar til gerð þvottaefni. ■ Marga svefnpoka má þurrka í þurrkara. Gott er að setja tennis- bolta með í þurrkarann til að slá loft aftur í dúninn. Athugið þó að fylgja leiðbeiningum á pokanum varðandi hitastig. ■ Til að minnka líkurnar á að pokinn verði óhreinn er ráð að sofa í undirfatnaði ofan í pokanum, eða í innri poka. ■ Líkamsfita getur skemmt dún ef hún kemst í snertingu við hann. Góð meðferð svefnpoka tryggir betri endingu Svo útilegurnar geti orðið sem flestar og ánægjulegastar borgar sig að hugsa vel um svefnpokann sinn. NORDIC PHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.