Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 22
FÓLK|HEILSA
GÖNGUGARPAR „Þorgerður byrjaði þegar hún var sjö ára. Lára fór fyrstu dagleiðina sína þegar hún var fimm ára og Óli sem er sex
ára fór í fyrstu gönguna síðasta sumar og byrjaði bratt því við fórum Vonarskarðið og lentum í hellirigningu allan síðasta daginn. Það
var mikil hetjuferð,“ segir Brynhildur. MYND/VILHELM
GENGIÐ Í BLÍÐUNNI
Sólin skín líka á göngu-
garpana þó stundum
þurfi að klæða sig vel.
Daginn sem ég varð fertug fór ég með elstu dóttur mína, sem þá var sjö ára, í gönguferð frá
Reykjanesvita í Bláa lónið. Við ákváð-
um þá að ganga þvert yfir landið í
áföngum á tíu árum og að þetta yrði
fyrsti spölurinn. Nú höfum við gengið
í fimm sumur, 4-5 daga í senn. Við
köllum þetta Mömmugönguna,“ segir
Brynhildur Ólafsdóttir fjallaleiðsögu-
maður.
Þær mæðgur fengu gjarnan félags-
skap vinkvenna og vina á göngunni til
að byrja með og svo bættust systkinin
við eftir því sem þau eltust. Brynhildur
segir lítið mál að þvælast í margra daga
göngur með þrjú börn, svo lengi sem
leiðangurinn stoppar oft til að skoða
það sem fyrir augu ber.
„Ég er orðin snillingur í alls kyns
bullsögum,“ segir hún hlæjandi. „Ég
segi þeim gömlu þjóðsögurnar og bæti
við þær og skreyti og hef þær eins lang-
ar og ég mögulega get. Þetta er líka frá-
bær kennsla í jarðfræði. Stundum þarf
ég að grisja gegnum bakpoka krakk-
anna til að létta þá því þau eru miklir
steinasafnarar,“ segir hún sposk.
Gangan síðasta sumar var fyrsta
gangan þar sem fjölskyldan gekk öll
saman og fóru þau um Vonarskarð. Þau
gengu með allan búnað á bakinu og
lentu í hellirigningu síðasta daginn og
skriðu hundblaut í skála um kvöldið.
„Venjulega hefur maðurinn minn
keyrt búnaðinn á undan okkur, tjaldað
og verið byrjaður að grilla þegar við
komum í náttstað. En í fyrra var ekki
hægt að „trússa“ svo við gengum sam-
an fjölskyldan. Þetta var mikil hetjuferð
og ótrúlega skemmtileg þó við höfum
verið eins og hundar á sundi síðasta
daginn. Þarna vorum við í algjörri ein-
angrun saman í nokkra daga og höfðum
góðan tíma til að spjalla. Það verða svo
mikil samskipti í svona ferðum sem er
frábært,“ segir Brynhildur.
Næsta sumar mun fjölskyldan ganga
norðan Tungnafellsjökuls.
„Við göngum ekki alveg beina leið
heldur þræðum svæði sem okkur finnst
falleg og skemmtileg. Næsta sumar
löbbum við fyrir norðan Tungnafells-
jökul, niður með Skjálfandafljóti áleiðis
að Mývatni og tökum Jökulsárgljúfrin.
Svo endum við á Langanesi árið 2017,
eða þar um bil. Við eigum reyndar eftir
einn part sem við munum taka undir
lokin, Þjórsárverin. Þar þarf að vaða
svo mikið að við ætlum að bíða með
það þar til krakkarnir verða orðnir
stærri.“ En ætla þau að láta staðar
numið þegar lokaáfanga verður náð?
„Krakkarnir eru reyndar farin að
spyrja hvort það verði ekki Pabbaganga
sem taki við. Það er svo gaman að hafa
svona einn fastan punkt í sumrinu sem
allir bíða eftir.“ ■ vidir@365.is
KRAKKAR GETA ALLT
FJÖLSKYLDUVÆN ÚTIVIST Brynhildur Ólafsdóttir fjallaleiðsögumaður ætlar
að ganga þvert yfir landið með krökkunum sínum. Þau eru tæplega hálfnuð
með áætlunina og stefna á ferðalok árið 2017.
BRUGÐIÐ Á LEIK Brynhildur segir galdurinn á bak við langar gönguferðir með
börn að stoppa oft, skoða sig um og leika sér. MYND/ÚR EINKASAFNI
KALDIR KRAKKAR Þorgerður, Lára og Óli njóta gönguferðanna og segir Bryn-
hildur fjölskylduna eiga gæðasamverustundir í einangruninni.
■ SKEPNUSKÖPUN
Sýning
Róshildar
Jónsdóttur
vöruhönn-
uðar á
módelum
úr fiskbein-
um stendur
nú yfir í
Sparki.
Spark er til
húsa á Klapparstíg 33 í Reykja-
vík en ranglega var farið með
heimilisfangið í fyrri umfjöllun
í blaðinu.
Sýningin stendur til 31.
maí en opið er virka daga frá
klukkan 10.00 til 18.00 og
á laugardögum milli klukkan
12.00 og 16.00.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.sparkdesignspace.com.
SÝNING Á
KLAPPARSTÍG
handhægi
D-vítamín
úðinn,
hámarksnýting
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum.
Eru ekki allir
örugglega
að fá sér
D vítamín
núna?
3
mánaða
skammtur
www.gengurvel.is
Meðal efnis í blaðinu eru siðir og venjur,
veislumatur, förðun, brúðkaupsmyndir ásamt
ýmsu skemmtilegu tengdu brúðkaupinu.
Tryggið ykkur pláss sem allra fyrst.
Umsjón auglýsinga
í Brúðkaupsblaðið eru:
Elsa
s: 512-5427
elsaj@365.is
Jóna María
s: 512-5473
jmh@365.is
BRÚÐKAUPSBLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
KEMUR ÚT MIÐVIKUDAGINN 27. MARS
Save the Children á Íslandi
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir