Fréttablaðið - 26.03.2013, Síða 32
KYNNING − AUGLÝSINGFerðahýsi ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 20138
SÆTAR KVÖLDSTUNDIR
Það er indælt að stinga sér inn
í hlýtt ferðahýsi að kveldi með
grillaðan eftirmat til að gæða
sér á. Þá er tilvalið að hafa hann
á hollustunótum og bera fram
grillaðan ananas með kanilsyk-
urssmjöri. Skerið átta sneiðar
af ferskum ananas fyrir fjóra.
Blandið saman 4 matskeiðum
af smjöri, 3 matskeiðum af
púðursykri og einni teskeið
af kanil og penslið ananas-
sneiðarnar með blöndunni.
Grillið á álbakka þar til gyllt og
mjúkt og berið fram með ís og
karamellu- eða súkkulaðisósu.
Gott er að sáldra yfir söxuðum
hnetum eða ristuðu kókos-
mjöli.
Lárus hafði verið að skoða áströlsk hjólhýsi þegar hugmyndin kviknaði að því að smíða eitt slíkt
fyrir íslenskar aðstæður. „Ég er jeppa-
maður og hafði til margra ára verið að
leita mér að einhverju sem er þægi-
legra en tjald. Rakst svo á áströlsk hýsi
sem kallast teardrop-trailer sem eru
pínulitlir vagnar með rúmi sem er
hægt að skríða inn í og fá sér blund,“
segir Lárus um upphaf og tilurð há-
fjallahjólhýsisins sem hann vinnur
nú að.
Hjólhýsið er 3,5 metrar á lengd, 1,7
metrar á breidd og 1,6 metrar á hæð,
úr stálgrind sem klædd er með ál- og
timburplötum. „Það er mun sterk-
byggðara en hefðbundin hjólhýsi, er á
stórum dekkjum og smíðað til að þola
einstaklega erfiðaðar aðstæður. Það er
ótrúlega létt og vegur ekki nema um
950 kíló.“
Lárus er enn ekki búinn að klára
hýsið en stefnir á það í sumar. „Ég
stalst í smá prufuferð í fyrrasumar.
Það var mjög hlýtt og gott og maður
fann ekki fyrir vindi í því.“ Inni í hýs-
inu er queen-size rúm og því nóg pláss
fyrir par með eitt barn. Þá eru veggirn-
ir einangraðir með 40 millimetra ein-
angrun. „Innréttingarnar eru svipað-
ar og eru í Econoline-bílunum en ég á
eftir að útbúa eldunaraðstöðu og setja
gasmiðstöð í hjólhýsið.“
Hugmyndin með smíðinni var að
lengja sumarið en Lárus segist þó hafa
ferðast minna undanfarin ár af mörg-
um sökum. „Bæði er orðið dýrt að
ferðast vegna olíu- og dekkjakostnað-
ar og svo eignuðumst við Helga Dröfn
Jónsdóttir okkar fyrsta barn í vetur. Þá
erum við líka að flytja svo það hefur
eðlilega hægt aðeins á smíðinni og
ferðalögunum.“ Þegar hjólhýsið verður
klárt hefur Lárus planað ferðalag þvert
yfir Ísland, frá Reykjavík til Egils staða
eftir slóðum og línuvegum.
Kostnaðurinn við að smíða svona
græju er töluverður og verkefnið er
tímafrekt. „Þetta er mikil vinna og ég
hef verið á hrakhólum með hýsið. Var
með það í geymslu í eitt og hálft ár en
nú er ég kominn aftur með húsnæði.“
Lárus er tölvufræðingur og sjálf-
menntaður í hjólhýsasmíðum. „Ég hef
alla tíð lagað mína jeppa sjálfur og er
sjálflærður í rafsuðu. Ég hef þó fengið
mikla aðstoð við smíðina á hjólhýsinu
frá Guðmundi Höskuldssyni bifreiða-
smiði ásamt fleiri góðum félögum.“
Lárus segist hissa á ríkinu sem
rukkar 13 prósent aðvinnslugjald af
öllu efni sem fer í smíðina og áætl-
aðri vinnu. „Ég þarf að áætla á mig
lágmarksvinnutíma og kaup og taka
saman allan efniskostnað. Ofan á það
leggur ríkið svo aðvinnslugjöld. Það
er ansi furðulegt að vera rukkaður um
skatt fyrir áhugamálið sitt og frítíma.
Nógu dýrt er þetta samt.“
Heimasmíðað háfjallahjólhýsi
Um mitt ár 2008 fæddist hugmynd hjá Lárusi Rafni Halldórssyni að smíða hjólhýsi að ástralskri fyrirmynd sem myndi þola íslenskar
aðstæður. Smíðinni er ekki enn lokið, enda smíðað á kvöldin og um helgar þegar peningar eru afgangs um mánaðamót.
Háfjallahjólhýsið er sterkbyggðara en hefðbundin hjólhýsi, er á stórum dekkjum og smíðað til að þola einstaklega erfiðaðar
aðstæður. Það er ótrúlega létt og vegur ekki nema um 950 kíló.
Byrjað að innrétta. Komin grind yfir hýsið.Búið að klæða botngrindina.
Unnið í hjólabúnaði sem er ansi öflugur. Byrjað á grindinni í þröngu rými.
Dýrasti húsbíll veraldar
er Vantare Platinum Plus
sem kostar rúmlega 300
milljónir króna. Húsbíllinn
er eðli málsins samkvæmt
hinn glæsilegasti enda
hefur hann viðurnefnið
„Beverly Hills mansion on
wheels“ ytra. Inngangur-
inn skartar tröppum úr
fágætum Inka-marmara og
innréttingar húsbílsins einkennast að mestu leyti af ítölsku gæðaleðri,
kristal og glæsilegum viði.
Stofan í húsbílnum inniheldur ítölsk glæsihúsgögn og þar má meðal
annars finna vínskáp með sérhönnuð vínglösum eftir hönnuðinn
Michael Weems og karöflu frá Neiman Marcus.
Auðvitað fylgir húsbílnum flatskjár. Hann stendur við hjónarúmið en
hægt er að færa hann með einu handtaki niður í gólfið þegar hann er
ekki í notkun.
Einnig má finna glæsilega innréttaðan eldhúskrók í bílnum en þótt
húsbíllinn sé dýr fylgir kokkur ekki með í kaupunum.
Rúsínan í pylsuendanum er svo hólf milli fram- og afturdekkja bílsins
þar sem hægt er að koma fyrir litlum sportbíl enda er ekki létt verk að
skjótast á ströndina eða út í búð á svo stórum og miklum bíl. Bensín-
tankur húsbílsins tekur 890 lítra af bensíni þannig að bílstjórinn þarf ekki
að stoppa á mörgum bensínstöðvum á ferðalaginu.
Dýrasti húsbíllinn
1 2
3 4
5
Veistu hver
ég var?
Siggi Hlö
Laugardaga
kl. 16 – 18.30