Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 28
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Enn á ný afhjúpar Álfheið-
ur Ingadóttir þingmaður
þekkingarleysi sitt á veið-
um og veiðimönnum. Nú
eru það stangveiðimenn
(þriðjungur þjóðarinn-
ar skv. Veiðimálastofnun
2013) sem fá að kenna á
því með banni við nætur-
veiði á Þingvöllum, þar
sem íslenskir veiðimenn
hafa notið guðdómlegrar
náttúru á björtum sumar-
nóttum mann fram af
manni. Þeir sem þekkja til á Þing-
völlum og hafa veitt fram eftir
kvöldi, ellegar mætt fyrir aldar
aldir, vita að þá er veiði-
vonin hve mest. Þá koma
tröllin úr djúpunum upp
á grynningarnar og eld-
snemma á morgnana er
bleikjan oftar en ekki við,
er þá „í töku stuði“.
Veiðimenn fara um létt-
ir í spori, vaða rólega út og
fylgjast með öllum hreyf-
ingum á yfirborði vatns-
ins, reyna að sjá hvar
fiskur getur leynst undir
vatnsfletinum og kyrrðin
á svona stundum er slík að hjart-
sláttur eftir væntingar og spennu
er það eina sem eyra veiði mannsins
greinir til að byrja með. Svo er það
fuglasöngurinn og ef logn er þá
suðar fluga og þegar geislar sól-
arinnar kyssa vatnsflötinn iðar
umhverfið af lífi. Þessa upplifun
ætlar meirihluti Þingvallanefndar
með formann nefndarinnar í broddi
fylkingar að banna veiðimönnum
héðan í frá. Svo virðist að nefndin
meti það svo að veiðimenn breyt-
ist í jarðvöðla og drykkjuhrúta um
nætur þegar opinberir eftirlits-
menn eru ekki nærstaddir til að
koma þeim í háttinn og sussa á þá.
Eftirliti lítið sinnt
Ekki alls fyrir löngu, á opnum fundi
Ferðafrelsis um náttúruverndar-
frumvarpið margumdeilda, svar-
aði Álfheiður því til þegar hún var
spurð hverja hún hefði sér til ráð-
gjafar um mál af þessu tagi, að hún
væri sinn helsti ráðgjafi enda líf-
fræðingur að mennt. Nú er spurn-
ing hvort svipaðri aðferðafræði
hafi verið beitt, eigið brjóstvit hafi
ráðið för og ekkert rætt við hlutað-
eigandi eða þá sem þekkja til veiða
á Þingvöllum. Forsvarsmenn þjóð-
garðsins ætla að koma á hörðu eftir-
liti með þeim sem hyggjast brjóta
bannið, sem vekur athygli því
eftir lit hefur hingað til verið svo
til ekkert þrátt fyrir að í gildi eru
strangar umgengnis- og veiðireglur
sem banna m.a. sóðaskap og notkun
beitu. En nú skal banna meira það
sem þegar er bannað!
Eins og skotveiðimenn hafa feng-
ið að kynnast á sl. fjórum árum er
svona aðferðafræði vinsæl lausn
hjá núverandi stjórnvöldum. Sjálf-
sagt þykir að setja nýjar reglur og
banna aftur, og meira og aftur, þar
til enginn skilur lengur hvað má
og hvað ekki. Eftirliti er lítið sem
ekkert sinnt en fjármunum ausið í
að semja reglur sem enginn getur
farið eftir. Örfáir fá að setja blett
sinn á heildina og allir skulu kenna
á meðalinu.
Nýjustu fréttir herma að þjóð-
garðsvörður skoði hvort hægt
verði að aflétta banninu, en hjá
veiðimönnum er fram undan vorið
langþráða og bjartar sumarnætur
í faðmi veiðigyðjunnar. Við látum
ekki gerræðisleg vinnubrögð spilla
veiðigleðinni og trúum því að nýir
valdhafar taki fyrir þá vitleysu sem
veiðimenn hafa þurft að horfa upp á
síðustu misseri, þar sem umhverfis-
og náttúruvernd hefur fengið á sig
öfgakennt yfirbragð vegna þeirra
sem engan áhuga hafa á málefna-
legri umræðu og hlýða á ekki á
skoðanir, reynslu eða rök annarra.
Gerræði á Þingvöllum
➜ Við viljum veita upp-
lýsingar hvort sem þær eru
jákvæðar eða neikvæðar í
garð sambandsins.
VEIÐAR
Elvar Árni
Lund
stangveiðimaður og
formaður SKOTVÍS
➜ Svo virðist að nefndin
meti það svo að veiðimenn
breytist í jarðvöðla og
drykkjuhrúta um nætur....
Fólk spyr mig
gjarnan hver
afstaða pírata sé
gagnvart ESB.
Það er skoðun
mín, og margra
annarra pírata,
að stjórnmála-
flokkar eigi ekki
að vera með eig-
inlega afstöðu
með eða á móti
ESB. Sumir
kunna að halda
að þannig séum við að forðast
þetta gríðarlega mikilvæga mál,
en svo er ekki. Á meðal grunn-
gilda pírata er gagnsæi og beint
lýðræði.
Gagnsæi snertir málið á þann
hátt að allt viðræðuferlið á að
vera opið og á almenningur rétt
á því að vera vel upplýstur um
allt sem því við kemur svo hann
geti tekið vel upplýsta ákvörðun.
Við viljum veita upplýsingar
hvort sem þær eru jákvæðar eða
neikvæðar í garð sambandsins.
Ef ég veiti þér eftirfarandi upp-
lýsingar: „það er rigning úti og
maður verður blautur í henni“
eða „það er sól úti og það er mjög
heitt“ þá er ég ekki að segja þér
hvort þú eigir að vera inni eða
úti heldur er ég einfaldlega að
veita þér upplýsingar til þess að
þú getir tekið þína eigin upplýstu
ákvörðun.
Síðan tekur beina lýðræðið
við. Þegar á hólminn er komið,
búið að ganga úr skugga um að
allar upplýsingar liggi fyrir og
almenningi hefur verið gefinn
tími til að móta sína skoðun þá
er málið sett í bindandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Það er aftur á móti hlutverk
stjórnmálaflokka að vera vel
undirbúnir fyrir hvora niðurstöð-
una sem er og vita hvað tekur við
að þjóðaratkvæðagreiðslu lokinni
hvort sem fólkið í landinu segir
já eða nei. Þetta mál á fyrst og
síðast heima í höndum vel upp-
lýstrar þjóðar og ætla Píratar að
sjá til þess að svo verði.
ESB í höndum
upplýstrar
þjóðar
STJÓRNMÁL
Þórður
Sveinsson
5. sæti Pírata í
Reykjavík norður