Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 4

Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 4
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SAMFÉLAGSMÁL Séra Sighvatur Karls- son, sóknarprestur á Húsavík, bað Guð- nýju Jónu Kristjánsdóttur, sem nauðg- að var á Húsavík árið 1999, afsökunar á því að hafa ekki sýnt henni nægan stuðning. Nauðgunin hefur nú koll- varpað bæjarsamfélaginu í tvígang, eftir umfjöllun Kastljóssins á mánudag. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslu- biskup á Hólum, fundaði með Sighvati í gær. Solveig sagði í samtali við Vísi að efni fundarins væri trúnaðarmál en Sighvatur hefði ekki brotið starfsreglur presta. Þó hefðu það verið mistök hjá honum að ýja að því við Guðnýju að hún drægi kæruna til baka. Sighvatur segir í yfirlýsingu sinni að hugur hans hafi aldrei staðið til þess að fá hana til að draga kæruna til baka. Hann hvetji þá sem verða fyrir kynferðisbrot- um að kæra til lögreglu. „Við verðum öll að draga lærdóm af þessu máli. Mistök sem þessi mega ekki endur taka sig.“ Skiptar skoðanir eru áfram um málið meðal Húsvíkinga. Sigurgeir Aðalgeirs- son, yfirmaður mannsins sem nauðgaði Guðnýju, segir nóg komið af umfjöllun um málið. „Við skulum bara láta þetta niður falla, þetta er komið nóg fyrir sam félagið,“ segir hann. Honum finnst ekki eðlilegt að Guðný fái að segja sína sögu núna. „Mér finnst það ekki. Það er aðallega verið að rífa upp eldgamalt mál þar sem dómur er fallinn og fólk er búið að taka út sína refsingu,“ segir hann. Magnús Halldórsson var for maður nemendafélags Framhaldsskólans á Húsavík þegar málið komst í hámæli. Hann sagðist á Facebook í gær sjá eftir því að hafa ekki reynt að koma í veg fyrir að listi til stuðnings nauðgaranum yrði birtur. Í samtali við Fréttablaðið sagð- ist hann ekki hafa neinu að bæta við þá færslu. „Mistök okkar stóra meirihlutans í bænum sem var á móti listanum á sínum tíma, var að koma ekki í veg fyrir birtingu hans og hamast meira gegn nafnasöfnuninni,“ segir Magn- ús, sem segir listann hafa verið glóru- laust andlegt ofbeldi. Þeirri skoðun kom hann á framfæri á sínum tíma. „En eftir á að hyggja var þetta tilvik svo alvarlegt að það kallaði á að maður gengi lengra til að mótmæla listanum. Skrifaði í blöð eða hrópaði á torgum.“ sunna@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is 211,5334 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,30 118,86 181,25 182,13 154,87 155,73 20,766 20,888 20,649 20,771 18,569 18,677 1,1889 1,1959 178,02 179,08 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 10.04.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is DÓMSMÁL Fyrirtækið Andersen & Lauth hefur verið dæmt til að greiða Gunnari Hilmarssyni, fyrrverandi eiganda og hönnuði fyrirtækisins, tæpar tvær millj- ónir króna í vangoldin laun og orlof eftir að honum hafði verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu. Í dómsorði kemur fram að Gunnar hafi hafið störf hjá fyrirtækinu í ágúst 2009 en verið sagt upp störfum frá og með 1. mars 2012. Uppsögnina hafi meðal ann- ars mátt rekja til langvarandi samstarfs- örðugleika og trúnaðarbrests milli hans og fyrirtækisins. Gunnar hafi ekki skilað verkefnum á réttum tíma, ekki mætt á boðaða fundi og unnið fyrir aðra aðila án leyfis. Hann hafi einnig skuldbundið fyrirtækið fjárhagslega án þess að hafa til þess heimild og fegrað efnahags- og rekstrarreikninga félagsins. Samkvæmt ráðningarsamningi mátti Gunnar ekki vinna fyrir aðra á meðan hann starfaði fyrir Andersen & Lauth og ekki starfa á sama sviði sex mánuðum frá starfslokum. Í dómnum kemur meðal annars fram að Gunnar hafi meðal annars tekið þátt í hönnunarsamkeppni um starfsmanna- búninga WOW air ásamt því að hefjast handa við hönnun og framleiðslu fatnað- ar undir eigin vörumerki á meðan hann var samningsbundinn fyrirtækinu. Dómurinn mat það hins vegar þannig að Gunnar hefði unnið fyrir Andersen & Lauth þar til í apríl 2012 og voru honum dæmdar bætur. - hó GUNNAR HILMARSSON Starfaði áður sem hönnuður hjá Andersen & Lauth. ÍTALÍA, AP Costa-skipafélagið sem átti skemmtiferðaskipið Concordia, sem strandaði við ítölsku eyjuna Giglio fyrir rúmu ári, var í gær dæmt til að greiða einnar milljóna evra sekt, að jafngildi um 155 milljónum króna. Alls létust 32 eftir að skipinu hvolfdi eftir strandið. Skipa- félagið hefur staðfastlega haldið fram að sökin liggi öll hjá skip- stjóranum, Francesco Schettino. Í næstu viku kemur í ljós hvort Schettino verður sóttur til saka fyrir manndráp af gáleysi. Schettino heldur því fram að hann hafi unnið hetjudáð. Skipið liggur enn á strand- stað, en verður að öllum líkind- um dregið burt innan skamms. - þj Strand Costa Concordia: Skipafélagið dæmt til sektar Smurostar við öll tækifæri ms.is ... ný bragðtegund H VÍ TA H Ú SI Ð / SÍ A - 1 1- 05 09 H VÍ TA H Ú SSI Ð / SÍ A - 1 1- 05 09 Ný bragðtegund með pizzakryddi Ný viðbót í ... ... baksturinn ... ofnréttinn ... brauðréttinn ... súpuna eða á hrökkbrauðið Andersen & Lauth þarf að greiða fyrrverandi eiganda vangoldin laun: Gunnar fær bætur þrátt fyrir brot í starfi HALDIÐ TIL HAGA Vissi ekki af Kastljósviðtali Misskilja mátti tilvitnun í Reinhard Reinhardsson, fyrrverandi bæjarstjóra á Húsavík, í frétt í blaðinu í fyrradag og í leiðara blaðsins í gær þannig að spurn- ing hans um tilgang með umfjöllun fjölmiðla um fjórtán ára gamalt nauðgunarmál í bænum hefði átt við um viðtal Kastljóss við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur, þolandann í málinu. Reinhard hafði ekki vitneskju um tilvist viðtalsins enda fór samtal blaðamanns og hans fram áður en viðtalið var sýnt og kom ekki til umræðu í samtalinu. Reinhard vill koma því skýrt á framfæri að hann telur Kastljóssviðtalið hafa verið mjög af hinu góða. Blaðið biðst afsökunar á ónákvæmninni. Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Vaxandi NA- og A-átt. FROST Á FRÓNI Það verður áfram kalt á landinu næstu daga en það hlánar seint á laugardag við suðurströndina. Það lítur út fyrir að víðáttumikil lægð muni hafa áhrif á veðrið um helgina og má gera ráð fyrir úrkomu víða um land. -4° 11 m/s -3° 10 m/s -3° 8 m/s 0° 7 m/s Á morgun 10-18 m/s S- og V-til, annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 3° 0° 3° 1° -2° Alicante Basel Berlín 24° 15° 13° Billund Frankfurt Friedrichshafen 4° 17° 16° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 22° London Mallorca New York 11° 25° 16° Orlando Ósló París 29° 2° 15° San Francisco Stokkhólmur 18° 3° -2° 6 m/s -2° 13 m/s -4° 6 m/s -4° 6 m/s -5° 5 m/s -4° 8 m/s -8° 9 m/s -2° -4° -2° -5° -4° LEIÐRÉTT Hanna Styrmisdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík, var rangnefnd í blaði gærdagsins. Beðist er velvirðingar á því. Presturinn braut ekki reglur en viðurkennir þó mistök Vígslubiskup segir sóknarprest á Húsavík ekki hafa brotið starfsreglur presta með aðkomu að nauðgunarmáli árið 1999. Presturinn hefur beðið fórnarlambið afsökunar. Ýmist eftirsjá eða afneitun er að finna í bænum. KLOFIÐ SAMFÉLAG? Húsvíkingar eru nú margir hverjir að kljást við afleiðingar viðbragða samfélagsins fyrir þrettán árum þegar ungur maður var dæmdur fyrir nauðgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jón Helgi Björnsson, formaður bæjarráðs Norðurþings, segist mundu taka málið fyrir innan bæjarkerfisins ef það kæmi upp í dag. Því yrði vísað til félagsþjónustu sveitar- félagsins þar sem það á heima, en ekkert slíkt var gert á sínum tíma. „Mér fannst Guðný hugrökk og það er gott hjá henni að lýsa sinni upplifun,“ segir Jón Helgi. „Það er jákvætt að málið komi fram í dagsljósið og ég veit að fólk mun læra af því.“ Húsavík er fjölmennasti byggðarkjarninn í Norðurþingi, en þar búa rúmlega 2.200 manns í dag. Málið er lærdómur fyrir bæjarbúa Mistök sem þessi mega ekki endurtaka sig. Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.