Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 20
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 20
Samgöngusamningar fækka fjarvistum starfsfólks:
Margir flokka ruslið
UMHVERFISMÁL Samgöngusamning-
ur ÁTVR við starfsmenn hefur leitt
til 60 milljóna króna minni kostn-
aðar á ársgrundvelli, að mati Sig-
urpáls Ingibergssonar, gæðastjóra
rekstrar sviðs ÁTVR. Þetta kom
fram á fundi um „grænan opin-
beran rekstur“ í gærmorgun.
Á fundinum kom fram að 15 pró-
sent opinberra fyrirtækja hafi gert
samgöngusamning við starfsmenn
sína. Kostnaðarsamdrátturinn
sem Sigurpáll vísar til hjá ÁTVR
er komin til af því að í kjölfar slíks
samnings hafa fjarvistir starfs-
fólks minnkað verulega.
Á fundinum kynnti umhverfis-
og auðlindaráðherra nýja stefnu
um vistvæn innkaup og grænan
ríkisrekstur. Þá voru kynntar nið-
urstöður nýrrar könnunar meðal
forstöðumanna ríkisstofnana um
hversu vistvænar stofnanirnar eru
í rekstri, en í gögnum þar að lút-
andi kom fram að 80 prósent þeirra
flokka og skila úrgangi og 40 pró-
sent hafa sett sér umhverfisstefnu.
Fundurinn var á
vegum Umhverf-
is- og auðlinda-
ráðuneytisins,
fjármála- og efnahags-
ráðuneytisins, Félags
forstöðumanna ríkis-
stofnana og Stofnun-
ar stjórnsýslufræða
og stjórnmála við HÍ.
- óká
STJÓRNSÝSLA „Málið sem hér er á
ferðinni er gríðarlega stórt, þótt
það láti kannski ekki mikið yfir
sér,“ segir Katrín Júlíusdóttir, fjár-
mála- og efnahagsráðherra. Hún,
ásamt Finni Pálma Magnússyni,
formanni starfshóps um opin gögn
og birtingu fjárhagsupplýsinga rík-
isins, kynnti í gær á blaðamanna-
fundi fyrstu skrefin í átt að því að
gera upplýsingar úr bókhaldi ríkis-
ins aðgengilegar almenningi.
Tekin hefur verði ákvörðun um
að gögn frá Fjársýslu ríkisins sem
fram til þess hafa komið fyrir sjón-
ir fárra verði hér eftir birt og upp-
færð á nýju vefsvæði sem nota á
til framtíðar fyrir opin gögn hins
opinbera, gogn.island.is.
Katrín segir markmið verk-
efnisins að stuðla að greiðum
aðgangi almennings að fjárhags-
upplýsingum ríkisins. „Gegnsæi er
lykilatriði í þessari vinnu og sam-
fara því aukið aðhald og traust í
samfélaginu,“ segir hún. Málið sé
eitt af hennar uppáhaldsviðfangs-
efnum í ráðuneytinu. „Mér finnst
þessar upplýsingar þess eðlis að
þær eigi að vera öllum aðgengileg-
ar, þannig að fjölmiðlar og aðrir
sem oft hafa hringt í ráðuneyti í
leit að upplýsingum um einstaka
liði fjárlaga eða í rekstri hins opin-
bera geti séð þetta sjálfir og sett
fram á þann máta sem þeir telja
bestan.“
Gögnin sem nú hafa verið birt
varða árshluta- og mánaðar-
uppgjör ríkissjóðs og eru ítarlegri
og aðgengilegri en hingað til. Þær
geta nýst almenningi, fyrirtækjum
í upplýsingatækni og fjölmiðlum.
Í gær var um leið birt skýrsla
starfshóps forsætisráðherra og
fjármála- og efnahagsráðherra,
sem unnið hefur að því undanfarna
mánuði að birta með aðgengilegum
hætti fjárhagsupplýsingar ríkisins.
Í skýrslu starfshópsins eru meðal
annars lögð til næstu skref í birt-
ingu fjárhagsupplýsinga og kynntir
leyfisskilmálar fyrir gögnin sem
eru að breskri fyrirmynd. Sam-
kvæmt skilmálunum má hver sem
er nota gögnin eins og honum sýn-
ist.
Katrín segir að í framhaldinu
bætist við gögnin á vefnum, bæði
frá öðrum stofnunum ríkisins og
eins frá sveitarfélögum. Hún ætli
að leggja sig fram um að tryggja að
verkefnið haldi áfram eftir kosning-
ar og því kunni að vera ráðlegt að
láta starfshópinn starfa áfram inn í
næsta kjörtímabil. olikr@frettabladid.is
NÝI VEFURINN Á vefnum gogn.island.is
verða aðgengilegar margvíslegar tölfræði-
upplýsingar úr rekstri hins opinbera.
Upplýsingar
handa öllum
Á vefinn gogn.island.is eru komnar fyrstu fjárhags-
upplýsingarnar úr stjórnsýslunni. Fyrstu skrefin, segir
Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.
Mikilvægt sé að auka aðgengi fólks að upplýsingum.
KYNNING Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár, fylgist með Katrínu Júlíusdóttur, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, kynna nýjung í birtingu opinberra fjárhagsupplýsinga. Lengst
til vinstri er Finnur Pálmi Magnússon, formaður starfshóps um opin gögn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GAR
ÐIN
N
Í SUMAR MUN BJÖRN JÓHANNSSON
VEITA VIÐSKIPTAVINUM BYKO RÁÐGJÖF
VEGNA FRAMKVÆMDA Í GARÐINUM
Hálftíma ráðgjöf kostar 5.900 kr.
Sú upphæð nýtist sem inneign þegar
keypt er pallaefni í garðinn í BYKO.
Björn Jóhannsson
landslagsarkitekt.
GARÐA
HÖNNU
NPANTAÐU RÁ
ÐGJÖF
VIÐ
TILLÖGUR UNNAR Í ÞRÍVÍDD
Skráning á netfangið
gudrunhalla@byko.is
og í síma 5154144
kl. 10-16 virka daga.
PANTAÐU RÁÐGJÖF