Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 48
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
BAKÞANKAR
Bergs Ebba
Benediktssonar
Mataræði og tíska
ÉG var að heyra af nýjustu tískunni
í mataræði. Nú er best að borða fitu
og prótein. Forðast skal brauðmeti í
lengstu lög og einnig allan sykur – jafn-
vel þó hann komi úr ávöxtum. Mjólk
er nú aftur komin í tísku eftir
áratugslanga eyðimerkurgöngu.
Þessi tíska er áþreifanleg í mat-
reiðsluþáttum, matreiðslubókum
og almennri umræðu um mat-
aræði og hollt líferni.
MATUR er tískuvara eins og
allt annað. Munurinn á mat og
til dæmis fatnaði er þó sá
að mataræðistískan er
byggð á „vísindum“.
Þessi vísindatenging
gæti ekki gengið upp
í fatatískuiðnaðnum.
Það myndi enginn
geta haldið því fram
að það sé vísindalega
sannað að síðir krag-
ar og loð sé málið
þennan veturinn.
Þetta er hægt með
mataræði. Ástæðan
er sú að heilsufræði,
hvað svo sem þau
standa fyrir, eru býsna
vafasöm fræði.
SANNLEIKURINN er sá að það eina
sem hægt er að sanna er að mannskepn-
an getur étið hvað sem er. Til eru frá-
sagnir af japönskum skipsbrotsmönn-
um sem borðuðu bara kókoshnetuhýði
áratugum saman. Ég hef séð myndir af
þessum mönnum og þeir litu bara vel út.
Sixpack og skínandi hvítar tennur. Svo
er til fólk sem borðar gler og fjarstýr-
ingar. Einn maður borðaði heilan strætó
og var byrjaður á júmbó-þotu en þurfti
að hætta vegna tímaskorts. Sumir sjúga
dulur og láta það gott heita. Hjá sjálfum
mér er það þannig að dagurinn er
ónýtur ef ég hef ekki sporðrennt fimm
franskbrauðsneiðum og hálfum lítra af
mjólk áður en klukkan slær 9.30.
SAMT er gaman að taka þátt í matar-
æðistískunni. Ég vil jafnvel ganga
lengra. Af hverju er ekki til svefntíska?
Ég væri til í að heyra fólk halda því
fram að það sé „vísindalega sannað“ að
homo sapiens skuli sofa standandi einu
sinni í viku (hestar gera það). Miðalda-
menn sváfu víst sitjandi, það var af
ótta við Guð. Það mætti innleiða aftur,
allavega sem tímabundna tísku.
LÁRÉTT
2. svanur, 6. í röð, 8. mánuður, 9.
hyggja, 11. tveir eins, 12. goðmögn,
14. þúsundasti hluti, 16. tveir eins, 17.
mál, 18. segi upp, 20. gelt, 21. tilræði.
LÓÐRÉTT
1. gætt, 3. í röð, 4. knús, 5. tími, 7.
aldin, 10. á sjó, 13. hnoðað, 15. skál,
16. augnhár, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. álft, 6. áb, 8. maí, 9. trú,
11. ðð, 12. tótem, 14. millí, 16. bb, 17.
tal, 18. rek, 20. gá, 21. árás.
LÓÐRÉTT: 1. gátt, 3. lm, 4. faðmlag, 5.
tíð, 7. brómber, 10. úti, 13. elt, 15. ílát,
16. brá, 19. ká.
Núna skaltu hlusta, Strand!
Ég hef stækkað tilboðið
og býð núna fullan pakka á
nokkrum krónum meira!
Er það
eitt-
hvað?
Ehh...
jahh! Þú
þarft
ekki að
spyrja
sko!
Svona á
þetta að
vera!
ÆÆÆ!
Ég var að spá í
að taka þessi
ljótu nefhár
líka!
Í boði
hússins,
Strand!
Nú muntu
finna
dágóðan
zársauka!
Gaur, það trúir því enginn að
skorpnuð froða á efri vörinni á
þér sé alvöru yfirvaraskegg!
AUÐVITAÐ
EKKI.
Mig langaði bara að
finna hvernig það væri
að vera með mottu.
Mér líður dáldið
töff með hana.
Ekki eins töff
og þú lítur út.
Það komast
auðveldlega
30 inn í þessa
litlu elsku.
Úts
ala.
Mamma
þín er mjög
falleg!
Takk.
Og mamma
þín er mjög...
hmmm...
þrekin.
Takk!
Ég skal skila
því til hennar.
Kannski
bakar hún
smákökur
handa
okkur!
Neih!
SKAFA
SKAFA
Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is
Save the Children á Íslandi