Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 66
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
Pabbi er minn
helsti aðdáandi
Ryan Pettinella er á sínu þriðja tímabili hjá Grindavík og nýtur þess
að spila körfubolta á Íslandi, þó svo að hans bíði frami í viðskipta-
heiminum í Bandaríkjunum. Fréttablaðið ræddi við hann um
efnaðan föður hans, vítanýtinguna og piparsveinalífi ð í Grindavík.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
AL
LI
KÖRFBOLTI Á hverju ári koma hing-
að til lands fjöldamargir erlendir
körfuboltamenn sem er ætlað að
styrkja íslensk félagslið. Þeir eru
misjafnir eins og þeir eru margir
en flestir eiga þeir það sameigin-
legt að stoppa aðeins við í þetta
eina tímabil, þótt vissulega séu til
margar undantekningar á því.
Ryan Pettinella, Bandaríkja-
maður með ítalskt vegabréf, er nú
á sínu þriðja tímabili með Grinda-
vík og er því íslenskum körfu-
boltaáhugamönnum vel kunnug-
ur. Hann stendur í ströngu með
liði sínu í úrslitakeppninni þessa
dagana en Grindavík mætir ein-
mitt KR í kvöld og getur með sigri
tryggt sér sæti í lokaúrslitunum.
Pettinella er þó í heldur óhefð-
bundnu hlutverki hjá sínu liði.
Hann er í raun ekki byrjunarliðs-
maður né heldur er framlag hans
til liðsins ríkjandi tölfræðiþáttur,
eins og hjá Bandaríkjamönnun-
um Aaron Broussard og Samuel
Zeglinski, sem byrja alla leiki hjá
Grindavík. Pettinella er þó mikil-
vægur hlekkur í liði Grindavíkur
og hans hæfileikar nýtast liðinu
vel, enda 205 cm á hæð og mikið
vöðvatröll.
Sem körfuboltamaður á Pettin-
ella hefðbundinn bakgrunn. Hann
lék í háskólaboltanum vestanhafs
og eftir útskrift spilaði hann með
liðum á Ítalíu og Spáni, áður en
honum bauðst að koma til Íslands
haustið 2011.
„Umboðsmaðurinn minn hringdi
í mig og sagðist vera með starf
fyrir mig á Íslandi,“ segir Pettin-
ella en Fréttablaðið settist niður
með honum í vikunni. „Ég fékk
smá áfall enda vissi ég ekkert um
Ísland. En þetta virtist vera gott
tækifæri fyrir mig og ég tók því.
Í fyrstu trúði ég ekki hversu lít-
ill bær Grindavík er. En fljótlega
komst ég að því að samfélagið
væri frábært, körfuboltinn góður
og það næsta sem ég veit er að ég
er á mínu þriðja tímabili í Grinda-
vík.“
Valdi körfuboltann fram yfir
viðskiptaheiminn í New York
Bakgrunnur Pettinella er óvenju-
legur að því leyti að faðir hans,
Edward J. Pettinella, er sterk-
efnaður og hefur hagnast mjög vel
á sínum starfsferli. Hann er í dag
forstjóri stórs fasteignafyrirtækis
sem á eignir víða um Bandaríkin.
Ryan segir að sín bíði ferill í við-
skiptaheiminum og að hann stefni
á að fylgja í fótspor föður síns – þó
ekki fyrr en að körfuboltaferlinum
loknum.
„Ég hef spilað körfubolta síðan
ég var sjö ára gamall og þegar ég
var krakki dreymdi mig um að
spila í NBA. Það gekk ekki eftir
en ég fékk að vera atvinnumaður,
spila víða um Evrópu og helga mig
íþróttinni. Það eru ekki margir
sem ná því og ég er ánægður með
minn feril,“ segir hann.
Í fyrra var hann nálægt því að
hætta í körfubolta og sökkva sér
í heim viðskiptanna í New York.
Hann ákvað frekar að koma aftur
til Íslands og spila með Grinda-
vík, þó svo að tímabilið hefði verið
hálfnað. Grindavík tók honum
opnum örmum á ný.
„Ég saknaði körfuboltans og
komst að því að ég gat ekki gefið
hann upp á bátinn. Körfubolti er
mín ástríða. Ég elska körfubolta og
er enn ungur. Ég vildi láta reyna á
þetta á Íslandi á ný.“
Faðir hans var einnig íþrótta-
maður á yngri árum en hann var
hlaupari. Hann hefur því fullan
skilning á því að sonurinn vilji
halda áfram í körfuboltanum á
meðan líkaminn leyfir. „Foreldrar
mínir kenndu mér að hafa ástríðu
fyrir því sem ég vil gera og leggja
hart að mér í því sem ég vildi taka
mér fyrir hendur. Mér finnst ég
lánsamur fyrir að fá að spila
körfubolta enda legg ég hart að
mér á hverjum einasta degi.“
Pettinella eldri fylgist svo
vel með syninum. „Hann
hefur komið til Íslands
fimm eða sex sinnum
og elskar að vera hér.
Hann er eins og
heiðurs meðlimur í
Grindavíkur liðinu.
Hann er minn
helsti aðdáandi
og minn mesti
stuðningsmað-
ur, enda elska
ég að fá hann
h i ngað t i l
lands og spila
þegar hann er
í stúkunni.“
Hverju víta-
skoti fagnað
Allir körfubolta-
menn eiga sína
styrkleika og veik-
leika. Óhætt er að
fullyrða að vítanýt-
ing falli í síðarnefnda
flokkinn hjá Pettinella og
það færist bros yfir hann
þegar talið berst að víta-
skotunum hans.
„Ég kann vel að meta stuðning-
inn sem ég fæ í hvert skipti sem
ég set vítaskot niður. Þá er fagn-
að eins og við hefðum orðið meist-
arar,“ segir Pettinella í léttum dúr
en þetta tímabilið var vítanýt-
ing hans 36,6 prósent. „Þetta er í
sífelldri þróun hjá mér en það er
rétt – þetta er veikur punktur hjá
mér. Ég verð samt ekki stress-
aður á vítalínunni, þó svo að
allir séu að fylgjast með mér.
Það er margt í gangi í kollin-
um, varðandi tækni og annað,
enda er ég sífellt að reyna að
bæta þetta.“
Þegar talið berst svo að
líkam legum styrk hans segist
hann einfaldlega hafa mikinn
áhuga á lyftingum. „Ég var með
styrktarþjálfara í háskólanum sem
kynnti mig fyrir þessu. Ég fékk
bakteríuna enda vil ég helst fara
í ræktina fimm sinnum í viku. Ég
tel að líkamlegur styrkur nýtist
mér vel í körfuboltanum og geri
mig að betri leikmanni.“
Aðalmálið hjá honum nú er
vitan lega rimman gegn KR í
undan úrslitum úrslitakeppninn-
ar. Grindavík leiðir, 2-1, og getur
með sigri í DHL-höllinni í kvöld
bókað sæti sitt í lokaúrslitunum.
Hann segir að Grindavík hafi ekki
enn náð að sýna sitt rétta andlit í
seríunni gegn KR. „Við höfum náð
góðum leikhlutum hér og þar en
eigum enn eftir að setja saman
góðar 40 mínútur. Við viljum ná
því. En það má ekki gleyma því að
KR er með gott lið og það er erfitt
að halda fullri einbeitingu í heilum
leik gegn slíku liði.“
Nýt þess að vera einhleypur
Hann er ánægður með lífið á
Íslandi og segir að hann líti á
Grindavík sem sitt annað heimili.
„Hér hef ég myndað sterk vina-
tengsl og kynnst mörgu frábæru
fólki. Mér mun ávallt þykja vænt
um Ísland. Fyrst þegar ég kom til
Grindavíkur skildi ég ekki staðinn
og hafði lítið að gera. En ég lærði
að kunna að meta hann, auk þess
sem körfuboltinn er góður hér
á Íslandi og margir sterkir leik-
menn sem eiga framtíðina fyrir
sér, vonandi í háskólaboltanum í
Bandaríkjunum og sem atvinnu-
menn eftir það.“
Ryan veit ekki hvað framtíðin
ber í skauti sér, né heldur hvort
hann spili aftur á Íslandi á næstu
leiktíð. „Við munum setjast niður
eftir tímabilið og ræða það. Stund-
um líður mér eins og að ég vilji
hætta á morgun og stundum vil ég
spila þar til ég verð 38 ára. Lík-
legast þykir mér að ég vilji spila í
tvö til þrjú ár í viðbót, að minnsta
kosti, og sjá svo til.“
Hann er 28 ára gamall í dag
og einhleypur. Skyldu það vera
stelpurnar á Suðurnesjunum sem
toga hann alltaf aftur til Íslands?
„Bestu konurnar eru á Íslandi,“
segir hann og hlær. „Ég hef spil-
að víða en íslenskar konur eru
sérstakar,“ bætir hann við og seg-
ist njóta þess að vera einhleypur
atvinnumaður í körfubolta. „Það
hentar mér vel í dag og ég sé enga
ástæðu til að taka hlutina of alvar-
lega í dag.“ eirikur@frettabladid.is
Ég kann vel að meta stuðninginn
sem ég fæ í hvert skipti sem ég set
vítaskot niður. Þá er fagnað eins og við
hefðum orðið meistarar.
Ryan Pettinella, leikmaður Grindavíkur
FYLGIST VEL MEÐ Edward J. Pettinella, faðir Ryans, er reglulegur gestur á Íslandi.
Hér er hann á bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar fyrr á þessu ári. Hann
ætlar að koma aftur ef Grindavík spilar í lokaúrslitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL