Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 66

Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 66
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50 Pabbi er minn helsti aðdáandi Ryan Pettinella er á sínu þriðja tímabili hjá Grindavík og nýtur þess að spila körfubolta á Íslandi, þó svo að hans bíði frami í viðskipta- heiminum í Bandaríkjunum. Fréttablaðið ræddi við hann um efnaðan föður hans, vítanýtinguna og piparsveinalífi ð í Grindavík. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V AL LI KÖRFBOLTI Á hverju ári koma hing- að til lands fjöldamargir erlendir körfuboltamenn sem er ætlað að styrkja íslensk félagslið. Þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir en flestir eiga þeir það sameigin- legt að stoppa aðeins við í þetta eina tímabil, þótt vissulega séu til margar undantekningar á því. Ryan Pettinella, Bandaríkja- maður með ítalskt vegabréf, er nú á sínu þriðja tímabili með Grinda- vík og er því íslenskum körfu- boltaáhugamönnum vel kunnug- ur. Hann stendur í ströngu með liði sínu í úrslitakeppninni þessa dagana en Grindavík mætir ein- mitt KR í kvöld og getur með sigri tryggt sér sæti í lokaúrslitunum. Pettinella er þó í heldur óhefð- bundnu hlutverki hjá sínu liði. Hann er í raun ekki byrjunarliðs- maður né heldur er framlag hans til liðsins ríkjandi tölfræðiþáttur, eins og hjá Bandaríkjamönnun- um Aaron Broussard og Samuel Zeglinski, sem byrja alla leiki hjá Grindavík. Pettinella er þó mikil- vægur hlekkur í liði Grindavíkur og hans hæfileikar nýtast liðinu vel, enda 205 cm á hæð og mikið vöðvatröll. Sem körfuboltamaður á Pettin- ella hefðbundinn bakgrunn. Hann lék í háskólaboltanum vestanhafs og eftir útskrift spilaði hann með liðum á Ítalíu og Spáni, áður en honum bauðst að koma til Íslands haustið 2011. „Umboðsmaðurinn minn hringdi í mig og sagðist vera með starf fyrir mig á Íslandi,“ segir Pettin- ella en Fréttablaðið settist niður með honum í vikunni. „Ég fékk smá áfall enda vissi ég ekkert um Ísland. En þetta virtist vera gott tækifæri fyrir mig og ég tók því. Í fyrstu trúði ég ekki hversu lít- ill bær Grindavík er. En fljótlega komst ég að því að samfélagið væri frábært, körfuboltinn góður og það næsta sem ég veit er að ég er á mínu þriðja tímabili í Grinda- vík.“ Valdi körfuboltann fram yfir viðskiptaheiminn í New York Bakgrunnur Pettinella er óvenju- legur að því leyti að faðir hans, Edward J. Pettinella, er sterk- efnaður og hefur hagnast mjög vel á sínum starfsferli. Hann er í dag forstjóri stórs fasteignafyrirtækis sem á eignir víða um Bandaríkin. Ryan segir að sín bíði ferill í við- skiptaheiminum og að hann stefni á að fylgja í fótspor föður síns – þó ekki fyrr en að körfuboltaferlinum loknum. „Ég hef spilað körfubolta síðan ég var sjö ára gamall og þegar ég var krakki dreymdi mig um að spila í NBA. Það gekk ekki eftir en ég fékk að vera atvinnumaður, spila víða um Evrópu og helga mig íþróttinni. Það eru ekki margir sem ná því og ég er ánægður með minn feril,“ segir hann. Í fyrra var hann nálægt því að hætta í körfubolta og sökkva sér í heim viðskiptanna í New York. Hann ákvað frekar að koma aftur til Íslands og spila með Grinda- vík, þó svo að tímabilið hefði verið hálfnað. Grindavík tók honum opnum örmum á ný. „Ég saknaði körfuboltans og komst að því að ég gat ekki gefið hann upp á bátinn. Körfubolti er mín ástríða. Ég elska körfubolta og er enn ungur. Ég vildi láta reyna á þetta á Íslandi á ný.“ Faðir hans var einnig íþrótta- maður á yngri árum en hann var hlaupari. Hann hefur því fullan skilning á því að sonurinn vilji halda áfram í körfuboltanum á meðan líkaminn leyfir. „Foreldrar mínir kenndu mér að hafa ástríðu fyrir því sem ég vil gera og leggja hart að mér í því sem ég vildi taka mér fyrir hendur. Mér finnst ég lánsamur fyrir að fá að spila körfubolta enda legg ég hart að mér á hverjum einasta degi.“ Pettinella eldri fylgist svo vel með syninum. „Hann hefur komið til Íslands fimm eða sex sinnum og elskar að vera hér. Hann er eins og heiðurs meðlimur í Grindavíkur liðinu. Hann er minn helsti aðdáandi og minn mesti stuðningsmað- ur, enda elska ég að fá hann h i ngað t i l lands og spila þegar hann er í stúkunni.“ Hverju víta- skoti fagnað Allir körfubolta- menn eiga sína styrkleika og veik- leika. Óhætt er að fullyrða að vítanýt- ing falli í síðarnefnda flokkinn hjá Pettinella og það færist bros yfir hann þegar talið berst að víta- skotunum hans. „Ég kann vel að meta stuðning- inn sem ég fæ í hvert skipti sem ég set vítaskot niður. Þá er fagn- að eins og við hefðum orðið meist- arar,“ segir Pettinella í léttum dúr en þetta tímabilið var vítanýt- ing hans 36,6 prósent. „Þetta er í sífelldri þróun hjá mér en það er rétt – þetta er veikur punktur hjá mér. Ég verð samt ekki stress- aður á vítalínunni, þó svo að allir séu að fylgjast með mér. Það er margt í gangi í kollin- um, varðandi tækni og annað, enda er ég sífellt að reyna að bæta þetta.“ Þegar talið berst svo að líkam legum styrk hans segist hann einfaldlega hafa mikinn áhuga á lyftingum. „Ég var með styrktarþjálfara í háskólanum sem kynnti mig fyrir þessu. Ég fékk bakteríuna enda vil ég helst fara í ræktina fimm sinnum í viku. Ég tel að líkamlegur styrkur nýtist mér vel í körfuboltanum og geri mig að betri leikmanni.“ Aðalmálið hjá honum nú er vitan lega rimman gegn KR í undan úrslitum úrslitakeppninn- ar. Grindavík leiðir, 2-1, og getur með sigri í DHL-höllinni í kvöld bókað sæti sitt í lokaúrslitunum. Hann segir að Grindavík hafi ekki enn náð að sýna sitt rétta andlit í seríunni gegn KR. „Við höfum náð góðum leikhlutum hér og þar en eigum enn eftir að setja saman góðar 40 mínútur. Við viljum ná því. En það má ekki gleyma því að KR er með gott lið og það er erfitt að halda fullri einbeitingu í heilum leik gegn slíku liði.“ Nýt þess að vera einhleypur Hann er ánægður með lífið á Íslandi og segir að hann líti á Grindavík sem sitt annað heimili. „Hér hef ég myndað sterk vina- tengsl og kynnst mörgu frábæru fólki. Mér mun ávallt þykja vænt um Ísland. Fyrst þegar ég kom til Grindavíkur skildi ég ekki staðinn og hafði lítið að gera. En ég lærði að kunna að meta hann, auk þess sem körfuboltinn er góður hér á Íslandi og margir sterkir leik- menn sem eiga framtíðina fyrir sér, vonandi í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og sem atvinnu- menn eftir það.“ Ryan veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér, né heldur hvort hann spili aftur á Íslandi á næstu leiktíð. „Við munum setjast niður eftir tímabilið og ræða það. Stund- um líður mér eins og að ég vilji hætta á morgun og stundum vil ég spila þar til ég verð 38 ára. Lík- legast þykir mér að ég vilji spila í tvö til þrjú ár í viðbót, að minnsta kosti, og sjá svo til.“ Hann er 28 ára gamall í dag og einhleypur. Skyldu það vera stelpurnar á Suðurnesjunum sem toga hann alltaf aftur til Íslands? „Bestu konurnar eru á Íslandi,“ segir hann og hlær. „Ég hef spil- að víða en íslenskar konur eru sérstakar,“ bætir hann við og seg- ist njóta þess að vera einhleypur atvinnumaður í körfubolta. „Það hentar mér vel í dag og ég sé enga ástæðu til að taka hlutina of alvar- lega í dag.“ eirikur@frettabladid.is Ég kann vel að meta stuðninginn sem ég fæ í hvert skipti sem ég set vítaskot niður. Þá er fagnað eins og við hefðum orðið meistarar. Ryan Pettinella, leikmaður Grindavíkur FYLGIST VEL MEÐ Edward J. Pettinella, faðir Ryans, er reglulegur gestur á Íslandi. Hér er hann á bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar fyrr á þessu ári. Hann ætlar að koma aftur ef Grindavík spilar í lokaúrslitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.