Fréttablaðið - 12.04.2013, Blaðsíða 31
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 12. APRÍL 2013 • 9
Dorothy Perkins er tískuvöru-
verslun fyrir stúlkur og konur á
öllum aldri. „Allar konur eiga að
geta fundið föt við sitt hæfi hér
enda leggjum við mikla áherslu á
að bjóða upp á fjölbreytt snið og
stærðir,“ segir Sunna Elín Sigurð-
ardóttir, aðstoðarverslunarstjóri
Dorothy Perkins, í Smáralind.
„Starfsfólkið í búðinni er einnig afar
fært í að aðstoða stúlkur og konur
við að finna þau snið og stærðir
sem fara þeim best,“ segir Sunna
og upplýsir að stærðirnar í versl-
uninni séu frá 8 eða 36 og upp í
22 eða 50.
Frábært úrval
Dorothy Perkins er afar vinsæl
verslun í Bretlandi og eru þar um
600 verslanir. Vinsældir verslunar-
innar eru ekki síst vegna hins mikla
úrvals af buxum. „Vinsælustu
buxurnar núna eru super skinny
og jeggings sem eru mjög þröngar.
Þær ná vel upp að mitti og eru til
í þremur lengdum, short, regular
og long,“ lýsir Sunna. Einnig eru í
boði skinny-buxur sem eru aðeins
víðari en superskinny- buxurnar og
bootcut-buxur sem eru aðeins út-
víðar,“ lýsir Sunna og nefnir einnig
boyfit-buxurnar sem eru vin sælar
hjá ungu kynslóðinni um þess-
ar mundir. „Þær eru fremur víðar
og stundum rifnar að framan.“
Dragtar buxur hafa lengi verið vin-
sælar í Dorothy Perkings. „Þær eru
svartar og til í tveimur sniðum og
tveimur lengdum,“ segir hún og
bætir við að verðið á þeim sé að-
eins 4.995 krónur.
Innt eftir því hvaða litir séu vin-
sælastir svarar Sunna að svarti lit-
urinn seljist alltaf best. „Svo hefur
hermannagrænn verið vinsæll,
rauði liturinn er að koma sterkt inn
og gráar og bláar buxur seljast líka
vel,“ segir hún. Í sumar sé síðan
von á buxum í ljósum pastellitum á
borð við bleikan og bláan. „ Þessir
litir verða líka áberandi í öðrum
deildum Dorothy Perkins, eins og
í kjólum og bolum.“
Ekki bara buxur
Í Dorothy Perkins fæst fleira en
buxur. Þar er að finna margar
gerðir af bolum, skyrtum og kjólum
í mismunandi sniðum. „Við erum
líka með bolatilboð og bjóðum
hlýra- og stuttermaboli á 1.995
krónur. Þetta eru bómullarbolir í
mörgum litum sem gefa vel eftir
og eru úr afar góðu efni,“ upp lýsir
Sunna og segir fastakúnna sína
afar hrifna af þessum bolum.
Skór, skart, töskur og veski er
einnig að finna í versluninni og
eins og áður er verðið afar hag-
stætt. „Þótt verðið sé hagstætt má
taka fram að gæðin eru samt mjög
mikil. Þetta eru vandaðar vörur úr
gæðaefni,“ segir Sunna og hvetur
fólk til að koma og skoða.
BUXUR AF ÖLLUM STÆRÐUM OG
GERÐUM Í DOROTHY PERKINS
Buxur í fjölbreyttum sniðum, lengdum og stærðum á góðu verði eru eitt aðalsmerki tískuvöruverslunarinnar Dorothy Perkins í Smáralind.
Buxurnar henta stúlkum og konum á öllum aldri og ekki skemmir verðið því hægt er að fá buxur frá 5.995 krónum.
Dorothy Perkins í Smáralind er tískuvöruverslun fyrir stúlkur og konur á öllum aldri.
Buxurnar fást í fjölmörgum stærðum, lengdum og sniðum.Rauði liturinn kemur sterkt inn í sumar.
Sjá nánar á visir.is/lifidAUGLÝSING: DOROTHY PERKINS KYNNIR