Fréttablaðið - 12.04.2013, Blaðsíða 33
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 12. APRÍL 2013 • 11
AHA og PHA? Glycolic acid er eitt af innihalds-
efnum sykurreyrs. Glycolic acid hefur minnstu
sameindina af AHA-fjölskyldunni og fer því hrað-
ast inn í húðina. Rannsóknir sýna a ð N e o -
strata-húðvörur sem innihalda glycolic acid og
eru notaðar í daglegri umhirðu draga úr fínum
línum, hrukkum og gefa húðinni heilbrigt útlit.
Gluconolactone er önnur kynslóð af ávaxtasýr-
um. Gluconolactone er PHA-sýra sem
er náttúrulegt andoxunarefni og ein-
stakur rakagjafi. Gluconolactone ertir ekki
húðina og hæfir öllum húðgerðum, einnig við-
kvæmri húð. Neostrata-húðvörur sem innihalda
gluconolactone gefa húðinni jafnara og frísk-
legra yfirbragð.
Lactobionic acid er samsett PHA-sýra
sem er afleiða laktósa (mjólkursykurs) og gluconic
acid. Lactobionic acid er áhrifaríkt andoxunarefni
með einstaka rakamyndandi eiginleika sem mýkja
og slétta húðina.
Citric acid er sýra sem notuð er bæði í mat og
snyrtivörur. Andoxunareiginleiki hennar hjálpar til við
að minnka eyðileggjandi áhrif sólar og mengunar.
Rannsóknir sýna að citric acid dregur úr öldrun húð-
arinnar, minnkar fínar línur og hrukkur.
Mandelic acid er sýra sem dregur úr olíufram-
leiðslu í húðinni, auk þess hefur hún bakteríueyðandi
áhrif og hentar því bólóttri
húð. Rannsóknir sýna
að mande l ic ac id
dregur úr öldrun húðarinnar.
HVAÐ ERU ÁVAXTASÝRUR?
Neostrata-húðvörur innihalda ávaxtasýrur, en rannsóknir sýna að þær hafa verulega
bætandi áhrif á húðina.
„Neostrata-húðvörurnar eru há-
gæðavörur, enda þróaðar af
húðlæknum og framleiddar eftir
ströngustu gæðakröfum,“ segir
Brynja Dan Gunnars dóttir, mark-
aðsfulltrúi Icepharma, sem fer
með umboð Neostrata á Íslandi.
Hún segir virkni varanna sér-
staklega að þakka ávaxtasýrum.
„Neostrata-húðvörur innihalda
ávaxtasýrur en rannsóknir sýna
að þær hafa verulega bætandi
áhrif á húðina,“ segir Brynja og
bendir á að AHA-sýrur (alpha-
hydroxy acids) og PHA (poly-hy-
droxy acids) séu einstakir raka-
gjafar og flýti fyrir endurnýjun
húðfrumanna. „Þannig vinna
Neostrata-húðvörurnar gegn
ótímabærri öldrun húðarinnar,
þurrki og skemmdum í húð af
völdum sólarljóss.“ Meðal ann-
arra bætandi áhrifa Neostrata
má nefna að þær gefa húðinni
jafnari hörundslit og heilbrigt og
frísklegt yfirbragð.
„Þess má geta að húð vörurnar
eru ekki prófaðar á dýrum og
þær innihalda hvorki ilmefni né
lit og eru auk þess ofnæmispróf-
aðar,“ áréttar Brynja og tekur
fram að húðlæknar um allan
heim mæli með og noti Neo-
strata.
Fyrir allar húðgerðir
Allir geta fundið krem við sitt
hæfi í Neostrata-húð vörunum
að sögn Brynju. „Við erum með
línur sem vinna gegn öldrun,
önnur krem fyrir feita eða
óhreina húð, krem fyrir fólk með
rósroða og svo lýsikrem til að
lýsa og draga úr
litarblettum á and-
liti, höndum, hálsi
og annars staðar
þar sem mislitun
er á húðinni vegna
of mikils sólarljóss,“
upplýsir Brynja og
nefnir að einnig fáist
andlitshreinsir, dag-
krem, næturkrem og
augnkrem frá Neo-
strata. „Þá er einnig
hægt að fá krem sem
má nota samhl iða
öðrum meðferðum á
borð við húðslípun og
leysigeislameðferðum.“
Skin active fyrir þrosk-
aða húð
Brynja vill benda sérstak-
lega á Neostrata Skin ac-
tive-línuna fyrir þroskaða
húð, en sú lína hentar
vel húð sem er 40 ára og
eldri. „Í línunni er einstök
samsetning SynerG sem
er hannað til að örva og
endur lífga virkni húðfrum-
anna. Samsetningin inni-
heldur stofnfrumuseyði úr
eplum sem verndar og fram-
lengir líftíma stofnfruma og
spornar þannig gegn öldrun
húðarinnar. Sérstök peptíð
ýta undir collagen-fram-
leiðslu og draga úr sýnileika
dýpri lína.“ Dag kremið í skin
active-línunni inni heldur mis-
munandi andoxunarefni og veit-
ir húðinni góða alhliða vörn að
sögn Brynju. „UVA- OG UVB-
stuðlar (spf 20) verja húðina
gegn útfjólubláum geislum sólar-
innar og draga úr litabreytingum.
Næturkremið inniheldur seyði úr
greipfræjum, granateplum, blá-
berjum og acai-berjum. Í línunni
er svo einnig hreinsir sem slípar
húðina án þess að þurrka hana
eða erta og býr hana undir virkni
kremanna. Í honum er blanda af
aloe vera-, kamillu-, gúrku- og
rós marínseyði sem sefar og róar
húðina,“ segir Brynja og mælir
hjartanlega með skin active-lín-
unni.
Sölustaðir
Neostrata-húðvörur sem inni-
halda PHA-sýrur eru seldar í
apótekum. Þær vörur eru ætlað-
ar öllum þeim sem hirða vel um
húðina. Neostrata-húð vörurnar,
sem innihalda PHA-sýrur, henta
öllum húðgerðum, einnig við-
kvæmri húð. Húðlæknar um
allan heim nota vörurnar með
góðum árangri og mæla með
þeim. Sterkari húðvörurnar inni-
halda 8-15% AHA-sýru (glyco-
lic acid) og fást í apótekum gegn
ávísun frá húðlækni.
Allar nánari upplýsingar um
vörurnar frá Neostrata er að
finna á www.neostrata.is.
NEOSTRATA – GEGN ÖLDRUN HÚÐAR
Neostrata-húðvörurnar vinna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar, þurrki og skemmdum í húð af völdum sólarljóss. Gæði Neostrata-húðvar-
anna eru mikil enda þróaðar af húðlæknum og ofnæmisprófaðar. Neostrata-vörur eru afar fjölbreyttar og allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Sjá nánar á visir.is/lifid
AUGLÝSING: ICEPHARMA KYNNIR