Fréttablaðið - 13.04.2013, Síða 13

Fréttablaðið - 13.04.2013, Síða 13
ALMENNT HLUTAFJÁRÚTBOÐ 12.–16. apríl 2013 Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með almennu útboði á 60% hlut í Vátryggingafélagi Íslands hf., en seljandi áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 70%. Fjárfestum eru boðnar þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Seljandi óskar eftir áskriftum á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut í tilboðsbækur A og B, en allir hlutir sem seldir verða í þeim bókum verða á sama verði. Framangreint verðbil samsvarar því að heildarandvirði hlutafjár í VÍS sé 16,9–19,9 milljarðar króna. Seljandi óskar eftir áskriftum í tilboðsbók C á lágmarksverði 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í þessari tilboðsbók útboðsins verður úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður. Stefnt er að því að útboðið marki grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og geri félaginu kleift að uppfylla lágmarksskilyrði NASDAQ OMX Iceland um dreifingu hlutafjár hjá félögum sem fá hlutabréf tekin til viðskipta í Kauphöllinni. Markmið seljandans er jafnframt að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína. 10% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði 100.000–50.000.000 kr. Fjár- festar skila áskrift rafrænt á vef Arion banka, www.arionbanki.is. Til þess notar fjárfestir notandanafn sitt og lykilorð að netbanka Arion banka, eða kennitölu sína og lykilorð sem hann pantar á áskriftarvefnum og fær sent um hæl sem rafrænt skjal í netbanka sinn hjá hvaða íslenska viðskipta- banka sem er. 30,1% hluta boðnir fjárfestum sem vilja kaupa hlut að andvirði meira en 50 milljónir króna. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingar- bankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn. Fjárfestum boðnir fjórir 2,475% eignarhlutir, samtals 9,9%. Fjárfestar eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf eða Hlutabréfamiðlun Fjárfestingarbankasviðs Arion banka og skila áskrift rafrænt, en til þess notar fjárfestir kennitölu sína og lykilorð sem hann fær sent í netbanka sinn. Auk þessarar grunnskiptingar verður 10–20% hluta ráðstafað í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og magn eftirspurnar gefur tilefni til. ÚTHLUTUN Komi til þess að eftirspurn í útboðinu verði meiri en sem nemur stærð útboðsins, þá verða áskriftir í tilboðsbók A skertar um allt að 75% (utan áskriftir 100–500 þús.kr. og áskriftir starfsmanna VÍS að hámarki 3 milljónir kr.) og þurfi að koma til frekari niðurskurðar verða hæstu áskriftir lækkaðar frekar. Úthlutun til fjárfesta í tilboðsbókum B og C verður samkvæmt einhliða ákvörðun seljanda, sem taka mun mið af markmiðum útboðsins. ÁSKRIFTARTÍMABIL OG ÞÁTTTAKA Áskriftartímabil stendur frá föstudeginum 12. apríl klukkan 10.00 til þriðjudagsins 16. apríl klukkan 16.00. Þátttaka í útboðinu er heimil aðilum með íslenska kenntölu sem eru fjárráða og ráða búi sínu sjálfir og með þeim takmörkun- um sem kunna að leiða af lögum. Það þýðir m.a. að erlendir aðilar, skv. skilgreiningu 1.mgr. 1.gr. laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992, skulu sýna fram á að þeim sé heimilt að fjárfesta í verðbréfunum sem boðin eru í útboðinu, sbr. 13.gr.m og 13.gr.b. í gjaldeyrislögunum. Eindagi kaupverðs er áætlaður 23. apríl 2013. Stefnt er að því að 24. apríl 2013 verði fyrsti dagur viðskipta með hluti VÍS á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um VÍS og skilmála útboðsins sem er að finna í lýsingu VÍS dagsettri 27. mars 2013 sem gefin er út á íslensku. Fjárfestum er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti. Lýsinguna má nálgast rafrænt á vis.is/fjarfestar og arionbanki.is. Hana má einnig nálgast innbundna í höfuðstöðvum VÍS að Ármúla 3 í Reykjavík og hjá Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. Nánari upplýsingar um útboðið má nálgast á arionbanki.is, svo og með tölvupósti á visipo2013@arionbanki.is eða í síma 444 7000 milli kl. 9.00 og 20.00 meðan áskriftartímabilið stendur yfir. TILBOÐSBÓK A TILBOÐSBÓK B TILBOÐSBÓK C
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.