Fréttablaðið - 13.04.2013, Side 18
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR
EITTHVAÐ
FYRIR ALLA
Á Hönnunarsafninu í Garða-
bæ stendur yfir sýning um sögu
leirbrennslunnar Glits en gripir
þeirra prýddu velflestar íslensk-
ar stofur um árabil. Eftir að hafa
dottið allrækilega út af tískurad-
arnum hefur áhuginn á leirgripum
Glits vaknað á ný undanfarin ár. Á
sýningu Hönnunarsafnsins má sjá
valda gripi úr sögu leirbrennslunn-
ar sem stofnað var til af miklum
listrænum metnaði.
Sýningin ber heitið Innlit í Glit
og þar má sjá muni frá árunum
1958 til 1973 úr sögu Leirbrennsl-
unnar Glits. Glit var um margt
langt á undan sinni samtíð og
markar djúp spor í íslenskri leir-
listarsögu, á tíma þegar íslensk-
ur listiðnaður var í frumbernsku.
Margir af okkar þekktustu lista-
mönnum á 20. öld unnu hjá Gliti.
Breytingar á áherslum og vilji
til að auka framleiðslugetu og
tæknivæða hana leiddi til þess að
fyrirtækið breytti um gír og iðn-
væddist og tók framleiðslan nýja
stefnu úr lista- og hönnunarsögu
Íslands inn í sjálfa iðnaðarsögu
Íslands.
Á morgun klukkan tvö mun
Þóra Sigurbjörnsdóttir vera með
almenna leiðsögn um sýninguna og
um leið fjalla um hina sýninguna á
Hönnunarsafninu, Nordic Design
Today. Nordic Design Today kynn-
ir úrval nýrrar norrænnar hönn-
unar á tímum sem einkennast af
leit að nýjum einkennum og leið-
um. Hönnuðirnir eru Front, Harri
Koskinen, Henrik Vibskov, Sigurd
Bronger, Sigurður Gústafsson og
Steinunn Sigurðardóttir.
Alexandra Baldursdóttir
gítarleikari
Hundaklapp og fl eira
Hundurinn minn kemur úr
pössun um helgina og ég ætla
að leika við hann daginn út og inn.
Þá mun ég æfa með hljómsveitinni
minni og spila svo á tónleikum á
Ellefunni í kvöld. Sunnudagurinn
fer svo í meira hundakúr, innlit í
raunveruleikann og kaffidrykkju
áður en ég strunsa inn í vikunna.
„Ég er að fjalla um heillandi við-
fangsefni, ástina og dauðann og
það er, held ég, meiri fegurð í þessu
verki en þeim sem ég hef gert
áður,“ segir Sigtryggur Magna-
son leikskáld um nýjasta verk sitt,
Nú er himneska sumarið komið.
Umfjöllunarefnið er ást langömmu
hans og langafa sem náði út yfir
gröf og dauða. Hún lést úr berkl-
um 28 ára að aldri en nokkru eftir
andlát hennar byrjaði hönd hans að
hreyfast og skrifa, þar sem hann
sat við borð og fyrstu orðin voru
ástarorð til hans að handan.
„Þetta er svo stór saga í eðli sínu
að ég vissi ekki hvernig ég ætti að
finna henni farveg. Sumir mundu
segja: Þetta er kvikmynd. Aðrir:
Þetta er skáldsaga – en flestar
mínar hugmyndir leita í leikhús.
Það tók mig hins vegar talsverðan
tíma að fjarlægja mig sögunni og
búa til listaverk úr henni,“ segir
Sig tryggur. Hann ólst upp í húsi
langafa síns og langömmu í Reykja-
hverfi í Suður-Þingeyjarsýslu og
því er hann ánægður með að fá að
sýna leikritið í Dillonshúsi sem til-
heyri gömlum tíma. „Það er ein-
hver eilífð á þessum stað sem pass-
ar akkúrat verkinu. Í því er ung
kona sem flýr erfiðleikana í sínu
ástalífi í þá kyrrstöðu sem ríkir hjá
afa hennar. Hann hefur einangrað
sig og hún ekki hitt hann í tuttugu
og tvö ár.“
Þetta er fimmta leikverk Sig-
tryggs og hann hefur áður sýnt á
óhefðbundnum stöðum, til dæmis
heima hjá sér og á strippklúbbi.
„Það sem er gaman við að sýna
á skrítnum stöðum er að þá fær
maður svo hugrakka áhorfendur,“
segir hann. „Það er jú visst öryggi
í því að setjast í sitt númeraða sæti
í leikhúsi en þegar fólk er í svona
mikilli nálægð við leikarana er það
ekki bara að taka inn verkið sjálft
heldur miklu meira og mörk leiks
og veruleika verða óljós.“ Hann
reiknar með að um þrjátíu áhorf-
endur rúmist í stofunni í Dillons-
húsi og hlær þegar því er slegið
fram að þá standi sýningar í nokk-
ur ár. „Það fer eftir hvernig geng-
ur. Við stefnum á sex sýningar
núna á einni viku.“
Leikstjóri verksins er Una Þor-
leifsdóttir og með hlutverkin fara
Hjalti Rögnvaldsson og Svan-
dís Dóra Einarsdóttir, sambýlis-
kona Sigtryggs. Búningar eru
eftir Agnieszku Baranowsku og
höfundur inn ber lof á allt þetta
fólk.
Nú er himneska sumarið komið
tekur um það bil eina og hálfa
klukkustund í sýningu. Miðapant-
anir eru á himneska@gmail.com og
upplýsingar eru á facebook.com/
himneska.
Fjallar um ást og dauða
Nú er himneska sumarið komið, nýtt leikrit eftir Sigtrygg Magnason, verður frumsýnt í Dillonshúsi
í Árbæjarsafni í kvöld klukkan 20. Verkið er byggt á ástarsögu langafa og langömmu höfundarins.
VIÐ DILLONSHÚS „Það er einhver eilífð á þessum stað sem passar akkúrat verkinu,“ segir Sigtryggur, sem hér er ásamt sambýliskonu sinni og aðalleikkonu verksins,
Svandísi Dóru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Halla Margrét Jóhannes-
dóttir leikkona
Skrifa ljóð í bústað
Um helgina ætla ég í sumar-
bústað og kannski kemur
einhver skrifsystir með
mér. Ég er allavega að fara
í bústað til þess að skrifa,
því ég er að leggja lokahönd
á handrit að ljóðabók sem
kemur út á sumarsólstöðum.
Elías Karl Guðmundsson
laganemi
Fastur í bókunum
Það styttist í hið árlega
„showdown“ sem kallast
vorpróf svo ég verð líklega
fastur í bókunum. Kannski
tek ég samt smá hlé og spila
NBA 2k13 eða bý mig undir
nýju Arrested Development-
seríuna. Allt opið samt.
Áslaug Arna Sigurbjörnsd.,
formaður Heimdallar
Kíkir á Kvennatöltið
Um helgina ætla ég að reyna
lesa lögfræðibækurnar, sem
hafa setið á hakanum í
baráttunni en ég er í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn. Þá ætla ég að kíkja á
Kvennatöltið og fá mér sushi
og hvítvín með vinkonum.
KUNNUGLEGIR GRIPIR Vasarnir
frá Glit eru til á mörgum íslenskum
heimilum.
Menning Þeir sem eiga gamla silfur-
gripi í fórum sínum geta mætt með
þá í Þjóðminjasafnið milli klukkan 14
og 16 á morgun og fengið þá greinda
af sérfræðingum safnsins. Greiningin
er ókeypis en fólk er beðið að taka
númer í afgreiðslu safnsins.
Eigendur taka að
sjálfsögðu gripina
með sér aftur
að greiningu og
myndatöku lokinni
en greiningin snýst
um aldur, efni og
uppruna gripanna en
ekki verðgildi þeirra.
Greiningardagur í Þjóðminjasafni
Silfrið á safn
Fjölskylda Sjósundskeppni, vita-
smiðja, rannsóknarsetur sjávardýra,
lifandi tónlist, svipmyndir frá fyrsta
vitaverði Gróttu, vöfflukaffi, vitaskoð-
un og fleira spennandi verður í boði á
árlegum Fjölskyldudegi í Gróttu í dag.
Gróttudagurinn hefur unnið sér fastan
sess í lífi Seltirninga, en á síðasta ári
var metaðsókn í eyjuna.
Dagskráin hefst klukkan 13 og opið
verður fyrir fótgangandi út í Gróttu frá
klukkan 12.10-16.10. Björgunarsveitin
Ársæll verður á staðnum til að ferja
þá sem ekki treysta sér til að ganga
yfir eiðið.
Fjölskyldudagur í Gróttu
Vöffl ukaffi og
vitaskoðun
Tónlist Elektra Ensemble fær þau
Katie Buckley hörpuleikara og
Frank Aarnink slagverksleikara í
Duo Harpverk í heimsókn á síðustu
tónleikum vetrarins á Kjarvalsstöðum
annað kvöld klukkan 20. Saman flytja
þau nýlega og spennandi tónlist m.a.
eftir nígeríska tónskáldið Ayo Oluranti,
Japanann Toru Takemitsu og Grammy-
verðlaunahafann Jennifer Higdon. Þau
flytja jafnframt verk sem samin hafa
verið sérstaklega fyrir þessa tónleika
eftir Oliver Kentish, Ásbjörgu Jóns-
dóttur, Bergrúnu Snæbjörnsdóttur og
Gísla Magnússon.
Tónleikar á Kjarvalsstöðum
Nígerísk tónlist
á tónleikum
Leirbrennsla með listrænan metnað
Munir frá leirbrennslunni Glit prýddu stofur landans um árabil og nú eru þeir komnir á hönnunarsafn.