Fréttablaðið - 13.04.2013, Síða 88
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 48
BAKÞANKAR
Karenar
Kjartansdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Það hafa verið til
margar grimmar
pyntingaraðferðir í
gegnum tíðina...
En sú versta er
án efa að ræna
einhvern svefn-
inum! Það getur til
lengdar látið þig
gera hvað sem er!
Ættum við
að kæra
hann?
Jaaaa....
hringdu í
lögfræðing.
Ég gerði gat á vegginn
þegar ég ætlaði að drepa
flugu með kjöthamrinum.
Ekkert mál. Ég næ í sparslið. Þú tókst
sannarlega
vel á þessu!
Sem stoltur fyrrverandi
nemi í táningsfábjána-
háskólanum er það
skylda mín að styðja
við bakið á núverandi
nemendum.
Tapað - fundið
Þar sem þú ert
minnsti krakkinn
í bekknum þínum
ætla ég að kalla þig
„strump“!
Halló,
strumpur!Úff! Hannes! Þú getur ekki
kallað einhvern „strump“
sem er hærri en þú!!
Ha? Talaðu
hærra, strumpur!
Ég heyri ekki í þér
þarna niðri!
Ég á furðulegasta
bróður í heiminum!
LÁRÉTT
2. sinni, 6. persónufornafn, 8. skinn,
9. gogg, 11. kvað, 12. deyfa, 14. yfir-
stéttar, 16. ólæti, 17. gagn, 18. hækkar,
20. eyrir, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. stjórnarumdæmis, 3. skammstöfun,
4. sýklalyf, 5. svelg, 7. matarlím, 10.
fálæti, 13. of lítið, 15. baklaf á flík, 16.
rölt, 19. gyltu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sefi, 6. ég, 8. húð, 9. nef,
11. ku, 12. slæva, 14. aðals, 16. at, 17.
nyt, 18. rís, 20. fé, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. eh, 4. fúkalyf, 5.
iðu, 7. gelatín, 10. fæð, 13. van, 15.
stél, 16. ark, 19. sú.
Ísland
Vettvangsheimsókn og samráðsfundir
Vottunarstofan Tún vinnur að mati á grásleppuveiðum við Ísland
samkvæmt staðli Marine Stewardship Council (MSC) um sjálfbærar
fiskveiðar.
Matsnefnd sérfræðinga mun afla upplýsinga um þessar veiðar, m.a. með
viðræðum við fulltrúa veiða og vinnslu, rannsóknar-, eftirlits- og
stjórnstofnanir og aðra hagsmunaaðila. Í þeim tilgangi mun nefndin
funda í Reykjavík dagana 21.-24. maí n.k.
Hagsmunaaðilar sem hafa upplýsingar um grásleppuveiðar sem þeir telja
að taka beri tillit til við matið eru hvattir til að koma þeim á framfæri við
Vottunarstofuna Tún.
Óski hagsmunaaðilar eftir að funda með fulltrúum matsnefndar eru þeir
beðnir að tilkynna það eigi síðar en kl. 17.00 miðvikudaginn 15. maí n.k.
til Vottunarstofunnar Túns (vt.: Gunnar Á. Gunnarsson, tun@tun.is).
Beiðninni skulu fylgja upplýsingar um (1) nafn viðkomandi aðila og
fulltrúa hans, auk netfangs og símanúmers, (2) tengsl viðkomandi aðila
við grásleppuveiðarnar, og (3) þau mál sem óskað er eftir að ræða.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu MSC (http://www.msc.org) eða
með því að hafa samband við MSC eða Tún.
MSC-mat á
Tilkynning um
grásleppuveiðum við Ísland
Vottunarstofan Tún / sími: 511 1330 / tun@tun.is / www.tun.is
Sumir vilja meina að Ísland hafi byggst upp fyrir misskilning. Landnám hafi
hafist á hlýindaskeiði og þar sem landið
var gróið gat hér þrifist blómlegt mann-
líf með menntastofnunum og heilbrigðis-
stofnunum í klaustrum og miklum sam-
skiptum við útlönd. Ísland var enginn
útnári í menningarlegum skilningi enda
hefðu Íslendingar ekki eignast jafn stór-
fengleg verk og Íslendingasögurnar við
slíkar aðstæður. Velmegun, virðing
fyrir listum og víðsýni skapaði for-
sendur fyrir slíkri sköpun. En
það tók að kólna og trjágróður að
minnka sem gerði það að verkum
að Íslendingar gátu ekki smíðað
skip og einangruðust.
ÞÁ reið hver pestin á fætur
annarri yfir þjóðina og með
þessu tapaðist þekking og
reynsla. Í örvæntingu
reyndi fólk að friða
forlögin sem skapaði
jarðveg fyrir hindur-
vitni og forheimskun.
Íslendingar urðu ein
fátækasta þjóð Evrópu
og um langt skeið virð-
ist fólk aðeins hafa
hugsað um það eitt
að tóra. Það segir sig
sjálft að í örbirgð er
hvorki hægt að skapa
þekkingu né hafa
áhyggjur af ofbeit eða öðrum þáttum sem
hafa áhrif á framtíðina. Uppblásturinn
var því ekki bara landfræðilegur heldur
líka menningarlegur.
Í upphafi 20. aldar tók hagur Íslendinga
svo nokkuð að vænkast með vélvæðing-
unni í Bretlandi sem gerði þjóðinni kleift
að vélvæða skipin sín og nýta auðlindina
hafið, sem fram til þess hafði aðallega
verið til bölvunar þar sem svo ógnvæn-
legur fjöldi sjómanna drukknaði ár hvert.
Heims styrjöldin síðari reyndist svo mikil
blessun fyrir Íslendinga. Blessuð Marshall-
aðstoðin sem Bandaríkjamenn veittu
Evrópu löndum gerði þjóðinni svo kleift
að byggja upp efnahagskerfi sitt og verða
í raun sjálfstæð. Íslendingar þekkja því
manna best hve mikilvægt það getur verið
að hjálpa fólki að geta hjálpað sér sjálft.
ÞRÓUNARAÐSTOÐ Íslendinga hefur
að miklu leyti verið á því formi að hingað
gefst nemum frá fátækum ríkjum kostur
á að koma til að bæta við þekkingu sína
sem svo nýtist í heimalandinu. Til dæmis
hefur fjöldi nemenda útskrifast héðan úr
Landgræðslu- og Sjávarútvegsskólanum.
Þetta nám var greitt með þróunaraðstoð
Íslendinga. Þekkingin gerir þjóðunum
kleift að bjarga sér og í framtíðinni kaupa
vörur af öðrum löndum. Íslendingar, sem
er í nöp við þróunaraðstoð, geta ef til vill
huggað sig við markaðslegu sjónarmiðin
nú eða landkynninguna.
Blessaðir peningarnir