Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 92

Fréttablaðið - 13.04.2013, Blaðsíða 92
13. apríl 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52MENNING „Það var ótrúlega auðvelt að finna fuglaverk eftir íslenska lista- menn. Það eru 39 listamenn sem eiga verk á þessari sýningu, ég hefði hæglega getað haft þá tvö- falt fleiri,“ segir Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, sýningarstjóri sýn- ingarinnar Fuglar – listin að vera fleygur sem verður opnuð í Gerðu- bergi í dag. Sýningin leggur undir sig öll fjögur sýningarrými Gerðu- bergs og á henni má sjá fugla í öllum birtingarmyndum „eins og maður inn sér þá,“ segir Þórunn. „Þeir eru fiðraðir, tálgaðir, teikn- aðir, glerjaðir, málaðir, myndaðir, mótaðir og talaðir á flug. Fuglar á ljósmynd og fuglar í lifandi mynd.“ Þórunn segir að henni hafi strax dottið einhverjir listamenn í hug og svo hafi eitt leitt af öðru. „Ég fékk ábendingar, áhugaverð verk fóru að rifjast upp fyrir fólki þegar það heyrði af sýningunni.“ Þess má geta að boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna og smiðju í gerð fuglahúsa fyrir börn og fjölskyldur þeirra á Barna- menningarhátíð í Reykjavík sunnudaginn 28. apríl. Á sýning- artímabilinu verða auk þess ýmsir viðburðir sem tengjast efninu. Sýningin stendur til 21. júní og er opið virka daga frá kl. 10-17 og um helgar frá 13-16. sigridur@frettabladid.is Fuglar í öllum myndum Sýningin Fuglar– listin að vera fl eygur verður opnuð í Gerðubergi í dag. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir sýningarstjóri segir fugla íslenskum listamönnum hugleik- FUGL Finnbogi Pétursson er höfundur þessara verks. RJÚPA OG FÁLKI Verkið eftir Söru Riel er að finna á sýningunni í Gerðubergi sem verður opnuð í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjölbreyttur hópur listamanna á verk á sýningunni Fuglar: Aðalheiður Eysteinsdóttir, Benedikt Gröndal, Birgir Andrésson, Bjarni Massi, Björn Björnsson, Björn Ingvarsson, Bragi Ásgeirsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Brynja Davíðsdóttir, Finnbogi Pétursson, Frosti Friðriksson, Guðmundur frá Miðdal, Guðmundur Páll Ólafsson, Hafþór Ragnar Þórhallsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Helgi Þórsson, Hulda Hákon, Ilmur Stefánsdóttir, Ísleifur Jónsson, Jarþrúður Karlsdóttir, Jón Baldur Hlíðberg, Jón Karlsson, Jón Óskar, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Magnús Kjartansson, Magnús Pálsson, Ómar Óskarsson, Páll Steingrímsson, Pétur Magnússon, Sara Gunnarsdóttir, Sara Riel, Signý Kolbeinsdóttir, Steingrímur Eyfjörð, Svana Lovísa Kristjánsdóttir, Svava Björnsdóttir, Tumi Magnússon, Vera Sölvadóttir, Þórarinn Eldjárn og Þórdís Alda Sigurðardóttir eru nöfn þeirra í stafrófsröð. 26 karlar og 13 konur fást við fugla Skyrtur frá 3.990 kr. Kjólar frá 4.990 kr. Leggings frá 1.990 kr. gallbuxur frá 5.990 kr. sundbolir frá 3.990 kr. Lukkuleikur með flottum vinningum og léttar veitingar í boði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.