Fréttablaðið - 18.04.2013, Page 2
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Ég er síðastur út,“ sagði Pól-
verji á miðjum aldri sem í gær
flutti úr Vesturvör 27 eftir að öllum
var gert að yfirgefa húsið.
Vesturvör 27 í Kópavogi er
atvinnuhúsnæði. Þar hefur engu
að síður um árabil búið fjöldi fólks
sem langflest er innflytjendur,
fyrst og fremst frá Póllandi og
Litháen. Í byrjun mars var sagt frá
baráttu fólksins fyrir því að fá að
vera áfram í húsinu eða fá aðstoð
frá Kópavogsbæ til að fá húsaskjól
annars staðar.
„Fólkið útvegaði sér á endan-
um sjálft staði til að fara á. Sjálf-
ur er ég búinn að leita mikið en
ekki gengið vel. Ég fer á gistihús
uppi í Grafarvogi til að byrja með.
Kannski tekst mér að kaupa íbúð,“
sagði Pólverjinn, sem ekki lét nafns
getið en kvaðst starfa hjá Póst-
húsinu, við útburð Fréttablaðsins.
Bæði vatn og rafmagn hafði
verið tekið af Vesturvör 27 fyrir
nokkru. Innandyra var aðvörun
frá slökkviliðsstjóra um að öryggis-
kröfur væru ekki uppfylltar og að
allir þyrftu að vera farnir
úr húsinu fyrir 18. apríl,
það er í dag.
Pólski viðmæland-
inn okkar virtist taka
þróun sinna húsnæð-
ismála eins og hverju
öðru hundsbiti. „Þetta er bara eðli-
legt,“ svaraði hann spurður um
hvaða augum hann liti að þurfa að
yfirgefa vistarveruna sem
hann hefði haft
á leigu.
Eins komið
hefur fram í
Fréttablaðinu
er það félagið
Drómi sem á
Vesturvör 27.
Komið hefur
fram í yfirlýs-
ingu frá Dróma
að félagið sjálft
hafi ekki verið
leigusali fólksins
heldur þriðji aðili.
Drómi hafi hins
vegar ítrekað krafist þess af leigu-
salanum að sjá til þess að húsið yrði
rýmt vegna þess að það væri í afar
bágu ástandi og óhæft til útleigu,
meðal annars vegna skorts á flótta-
leiðum við eldsvoða. Til stendur að
rífa húsið.
gar@frettabladid.is
Íbúarnir allir fluttir
úr hitalausa húsinu
Síðasti íbúinn í Vesturvör 27 flutti í gær úr vatns- og rafmagnslausu húsinu. Hann
segir mannskapinn hafa fundið sér þak yfir höfuðið á ýmsum stöðum. Sjálfur
flytji hann á gistiheimili en vonist til að geta eignast íbúð. Húsið er óíbúðarhæft.
FLUTNINGAR Í VESTURVÖR Síðasti
íbúinn í Vesturvör 27 yfirgaf húsið í gær
og naut aðstoðar félaga síns við flutn-
ing búslóðar sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
SKILABOÐ
FRÁ SLÖKK
VILIÐSSTJÓ
RA
FRÉTTABLAÐIÐ 1.
APRÍL Þrettán íbúar
voru eftir í Vesturvðr
27 í byrjun apríl og
sögðust hafa í engin
hús að venda. Þau
hefðu endurtekið
þurft að þola vatns-
leysi þrátt fyrir
skilvísar leigugreiðslur.
REYKJAVÍK Aldrei hafa jafn
margar konur setið sem
borgarfulltrúar og á fundi
borgarstjórnar á þriðjudag,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins. Af fimmtán fundar-
mönnum voru tíu konur.
Fréttablaðið ræddi við
Helgu Laxdal, skrifstofu-
stjóra borgarstjórnar, sem
sagði kvennametið líklega
hafa verið slegið. „Með öllum
hefðbundnum fyrirvörum
embættismanna get ég sagt,
með 99 prósenta vissu, að
þetta hafi aldrei gerst áður.“
Gunnar Eydal, sem var
skrifstofustjóri borgar-
stjórnar í áratugi, man
heldur ekki eftir því að svo
margar konur hafi setið
borgarstjórnar fund.
„Borgarráð var nær ein-
göngu skipað konum á einum
fundinum en ég man ekki
eftir því í borgarstjórn. Þetta
er með því mesta sem ég hef
heyrt um.“ - kóp
Tíu af fimmtán borgarfulltrúum á fundi á fimmtudag voru konur:
Kvennametið slegið á borgarstjórnarfundi
BRETLAND Útför Margrétar
Thatcher, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, fór fram
frá Pálskirkju í London í gær-
morgun.
2.300 manns voru viðstaddir
útförina, ættingjar, vinir, sam-
starfsmenn og embættismenn
víðs vegar að úr heiminum.
Benedikt Jónsson, sendiherra
Íslands í Bretlandi, var fulltrúi
Íslands.
Elísabet Bretlandsdrottning
og forsætis ráðherrann David
Cameron voru meðal gesta,
auk forsætisráðherranna fyrr-
verandi Tony Blair, Gordon
Brown og John Major.
Biskupinn yfir London hélt
minningarræðu um Thatcher,
en hún hafði sjálf skipulagt
stóran hluta athafnarinnar. Þá
las David Cameron ritningarorð,
en Thatcher hafði óskað þess að
sitjandi forsætisráðherra lands-
ins gerði það við útför hennar,
sama úr hvaða flokki hann væri.
Björgvin Guðmundsson, rit-
stjóri Viðskiptablaðsins, var
meðal þeirra sem fylgdust með
útförinni í London.
„Það er ekki oft á lífs leiðinni
sem fólki gefst tækifæri til
að vera við útför einstaklings
sem hefur haft eins mikil áhrif
á hugmyndafræði stjórnmál-
anna um allan heim og Margret
Thatcher,“ sagði Björgvin. „Þess
vegna var það löngu ákveðið að
fara út til að vera viðstaddur
jarðarförina. Athöfnin var auð-
vitað tilkomumikil og það kom
svolítið á óvart hversu margir
mættu til að fylgjast með.“ - þeb
Eini kvenforsætisráðherra Bretlands var umdeildur jafnvel í útförinni:
Thatcher borin til grafar
SORG David Cameron forsætisráðherra
var sorgmæddur við útförina í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
■ Áslaug Friðriksdóttir
■ Diljá Ámundadóttir
■ Eva Baldursdóttir
■ Eva Einarsdóttir
■ Hanna Birna Kristjánsdóttir
■ Hildur Sverrisdóttir
■ Margrét Sverrisdóttir
■ Oddný Sturludóttir
■ Sóley Tómasdóttir
■ Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Þær sátu fundinn á þriðjudaginn
KONUR Í BORGARSTJÓRN Hanna Birna, Sóley, Oddný og
Diljá voru á meðal þeirra tíu kvenna sem sátu fundinn.
Páll, ætlarðu að taka þátt í
samkeppninni?
„Ég mun reyna það eftir föngum.“
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að blása til hug-
myndasamkeppni um það hvað á að gera við
fangelsið á Skólavörðustíg, Níuna, eftir að
starfsemi þess verður lögð af. Páll Winkel er
fangelsismálastjóri.
LÖGREGLUMÁL Seðlabankinn
hefur kært Samherja til Sérstaks
saksóknara vegna gruns um að
útgerðarfélagið hafi brotið gegn
gjaldeyrislögum. RÚV greindi
frá þessu í gærkvöldi.
Forsaga málsins er sú að í
mars í fyrra var gerð húsleit hjá
Samherja og lagt hald á töluvert
magn gagna. Farið var í aðgerð-
ina vegna gruns um að Samherji
hefði brotið gegn gjaldeyris-
lögum með því að selja dóttur-
félagi sínu í Þýskalandi sjávar-
afurðir frá Íslandi á undirverði.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, hefur frá upp-
hafi haldið því fram að fyrir-
tækið hafi farið að lögum. - th
Gruna gjaldeyrislagabrot:
Kæra Samherja
til Sérstaks
NÁTTÚRA Óðalsjörðin Teigarhorn í Djúpavogshreppi hefur verið frið-
lýst, en Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, undir-
ritaði friðlýsingu jarðarinnar sem fólkvangs.
Íslenska ríkið festi fyrr á árinu kaup á jörðinni. Þar er einn þekkt-
asti fundarstaður geislasteina (zeólíta) í heiminum og var sá hluti
jarðarinnar friðlýstur sem náttúruvætti árið 1975.
Teigarhorn við Berufjörð hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu og
skráningu veðurfars hér á landi. Þar hafa verið stundaðar veðurfar-
sathuganir síðan 1881 og mælingar á hitafari frá 1873.
Einnig var undirritaður samningur Umhverfisstofnunar við Djúpa-
vogshrepp um daglega umsjón og rekstur friðlýstu svæðanna. - shá
Djúpavogshreppur annast umsjón og rekstur:
Teigarhorn við Berufjörð friðlýst
GEISLASTEINAR Teigarhorn er heimsfrægt vegna steinanna sem finnast þar. Brotist
var inn á steinasafnið á staðnum fyrir nokkrum árum og steinum stolið í tugavís.
Málið er óupplýst.
DANMÖRK Lögregla og borgar-
yfirvöld í Kaupmannahöfn hyggj-
ast leggja beint til atlögu við
stóru glæpaklíkurnar sem hafa
staðið fyrir ofbeldisverkum í
borginni síðan í janúar. DR segir
frá þessu.
Markmiðið er að einbeita sér
að einni klíku í einu og kljúfa
niður; handtaka brotamenn og
bjóða öðrum meðlimum leið út úr
glæpalíferninu.
Fyrsta klíkan sem einblínt
verður á er LTF, Loyal to
Familia, sem hefur verið verið
fyrirferðar mikil að undanförnu
og er talin standa á bak við tvö
morð í borginni í ár.
- þj
Lögreglan í Danmörku:
Hyggst kljúfa
klíkurnar niður
Það er ekki oft á lífs-
leiðinni sem fólki gefst
tækifæri til að vera við út-
för einstaklings sem hefur
haft eins mikil áhrif...
Björgvin Guðmundsson
ritstjóri Viðskiptablaðsins
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
VIÐ HÖFUM …
innleitt dag
íslenskrar
náttúru
…
JANA SALÓME JÓSEPSDÓTTIR
16. SÆTI NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
auðgun
ngið tveggja og
ja ára fangelsisdóma fyrir
ofbeldisverk.
Fram kemur í dómi Hæsta réttar
að maðurinn hafi haldið því fram
að hann hafi engan áhuga á að
eiga samskipti eða samneyti við
stúlkuna.
- sh
ðgun.
FÓLK „Við höfum engan stað að
fara á,“ segir Danguole Visoc-
kiene, einn þrettán íbúa sem
standa nú frammi fyrir því að
verða bornir út úr Vesturvör 27,
jafnvel strax í dag samkvæmt við-
vörunum frá leigusalanum.
Danguole kveðst hafa búið í
Vesturvör 27 frá því hún flutti til
Íslands fyrir um sjö árum. Líkt
og aðrir íbúar í húsinu fékk hún
tilkynningu í fyrrahaust um að
rýma ætti húsið vegna niðurrifs.
Fyrir rúmu ári komst húsið í eigu
Dróma hf. sem sýslar með eignir
þrotabús SPRON.Danguole segir að íbúar hafi
í vetur flutt úr fimm íbúðum
af ellefu en að í sex íbúðum búi
enn samtals tólf fullorðnir og eitt
fimm ára barn. Þetta fólk er frá
Litháen og Póllandi.
„Ég hef ítrekað óskað eftir því
við Félagsþjónustuna í Kópavogi
að fá íbúð en mér er hafnað,“ segir
Danguole og sýnir svar frá ráð-
gjafa- og íbúðadeild um að hún fái
aðeins 17 punkta af þeim 24 sem
þurfi til að uppfylla skilyrði til
að fá félagslega íbúð. Hún kveðst
vera óvinnufær um þessar mundir
vegna veikinda. Hún lifi því af
bótum frá Tryggingastofnun.
„Hér í húsinu bjó kona sem
þekkti konu hjá Félagsþjónust-
unni. Það tók hana bara 24 klukku-
stundir að fá þar íbúð. Okkur
finnst það mjög óeðlilegt en fáum
engar skýringar,“ segir Danguole
sem aðspurð kveðst leita logandi
ljósi að öðru húsnæði. „Margir
leigusalar vilja fá leiguna greidda
svart og þá eru ekki húsaleigu-
bætur í boði. Aðrir vilja kannski
150 þúsund krónur á mánuði og
það er engin leið að ég geti borgað
það.“
Innifalið í leigunni sem íbúarnir
borga er tiltekin upphæð fyrir
heitt vatn. Danguole kveðst ávallt
hafa staðið í skilum með greiðslur.
Samt sem áður hafi heita vatnið
ítrekað verið tekið af húsinu í
vetur. Sömuleiðis hafi fulltrúi
leigusalans ítrekað birst með hót-
anir og jafnvel sparkað göt í veggi.
Nágranni Danguole í næstu íbúð
er Jurijus Teterevas og kona hans
og fimm ára barn sem þarfnast
mikillar umönnunar vegna ein-
hverfu. Jurijus er atvinnul
Hann segir þau, eins og Danguole,
hafa reynt án árangurs að fá íbúð
hjá Félagsþjónustunni, síðast í
fyrradag.„Það virðast allar dyr ver
okkur lokaðar. Við i
hvað við eiei
Bíða eftir útburði úr
hitalausum íbúðum
Íbúar í Vesturvör 27 í Kópavogi segjast nú bíða þess að verða varpað á dyr með allt
sitt án þess að eiga í önnur hús að venda. Drómi keypti húsið í fyrra og hyggst rífa
það niður. Íbúarnir segja heita vatnið ítrekað hafa verið tekið af húsinu í vetur.
ÍBÚAR Í VESTURVÖR 27 Nágrannarnir Danguole Visockiene og Jurijus Teteveras
eru hér fyrir á miðri mynd fyrir framan heimili sitt síðustu árin og bíða þess að
verða borin út.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Okkur finnst það
mjög óeðlilegt en fáum engar skýringar.Danguole Visockiene, íbúi í Vesturvör 27
ví að a í
ns-
t
m:
oðið að fá ðum er skilað. r.
éttindi og ldi áfram í viðtali éttar fólks
og sam-
- þeb
þrot:
bréf
mkomulagið en FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
aunakostnaður AriA i
Atlantshaf
u, sé sokkið.
Verið var að draga skipið frá
Nýfundnalandi til Dómin íska lýð-
veldisins á Karíbahafi þegar tog-
vírarnir slitnuðu. Írska strandgæslan nam í fyrra-
dag merki frá neyðarsendi sem
aðeins kviknar á þegar hann lendir
í sjó. Skipið var afar illa farið og
mikið var af rottum um borð.