Fréttablaðið - 18.04.2013, Page 4

Fréttablaðið - 18.04.2013, Page 4
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður- lands eystra hefur dæmt 25 ára mann í þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir að ganga hrottalega í skrokk á manni á áttræðisaldri í febrúar í fyrra. Maðurinn var að hefna sín á gamla manninum, sem er sagður hafa beitt móður hans grófu kynferðisofbeldi þegar hún var barn. Gamli maðurinn er afa bróðir árásarmannsins, sem viður- kenndi að hafa framið árásina þótt hann hafi ekki viljað gangast við öllu sem honum var gefið að sök í ákærunni. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa ruðst inn á heimili þess gamla með því að kasta steini inn um rúðu, slegið hann og sparkað í hann, traðkað á höfði hans og barið hann með fimmtán kílóa leðurstól með fimm arma fæti. Alvarlegustu áverkarnir voru af völdum stólsins. Í dómnum segir að árásin hafi verið „heiftúðug, hrottafeng- in og stórhættuleg“. Þá er það virt manninum til refsiþyng- ingar að árásin var framin „að næturlagi, á heimili brotaþola og í hefndartilgangi“. Hann var hins vegar sýknaður af tilraun til manndráps, enda þótti ekki sýnt að hann hefði ætlað að bana manninum eða að hann hefði mátt vita að árásin gæti leitt til dauða. Árásarmaðurinn, sem á saka- feril að baki, þarf að greiða afa- bróður sínum 1,3 milljónir í bætur. - sh Fékk þriggja og hálfs árs dóm fyrir að hefna mömmu sinnar með því að berja afabróður sinn: Dæmdur fyrir að berja meintan níðing Móðir árásarmannsins og önnur kona kærðu kynferðisbrot þess gamla eftir að hann varð fyrir ofbeldinu í fyrra. Málin voru kærð í janúar síðast- liðnum og hefur lögreglan lokið rannsókninni og sent málin til Ríkis- saksóknara. Þau eru mögulega fyrnd. Kynferðisbrotin kærð FERÐAÞJÓNUSTA Hvalaskoðunar- fyrirtækið Norðursigling á Húsa- vík hefur fjárfest í skonnortu sem hefur verið gefið nafnið Opal. Í fréttatilkynningu frá fyrir- tækinu segir að Opal sé 32 metra löng tvímastra skonnorta með níu segl. Skipið hefur káetur fyrir 12 farþega, í sex klefum, auk áhafnar. Opal er byggð sem togari í Dam- garten árið 1952 en árið 1973 tóku danskir eigendur við skipinu og breyttu í skonnortuna sem hún er í dag. Með þessari viðbót hyggst Norðursigling byggja enn frekar undir framboð á skútusiglingum og mæta aukinni eftirspurn eftir lengri ferðum og leiðöngrum. - shá Norðursigling bætir við sig: Ný skonnorta til Húsavíkur FAGURT FLEY Skonnorta sem þessi er mikil bæjarprýði. 209,7224 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 117,13 117,69 178,79 179,65 154,05 154,91 20,656 20,776 20,381 20,501 18,185 18,291 1,1956 1,2026 176,71 177,77 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 17.04.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is LEIÐRÉTT Í fyrirsögn um Bjarta framtíð í blaði gærdagsins átti að standa „frjáls framlög“ en ekki „frjáls félagasamtök“. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Sumarkort Komdu og svitnaðu með okkur! Einstakt tilbo ð í ræktina. Gildir til 1. ág úst. Verð kr. 16.90 0. BANDARÍKIN „Ég hef aldrei upp- lifað neitt þessu líkt. Aðrir læknar á spítalanum lýstu svip- uðum aðstæðum þann 11. sept- ember, en þá var allur spítalinn í viðbragsstöðu og eins þegar næturklúbbur brann í nær- liggjandi ríki fyrir nokkrum árum,“ segir Ólöf Viktors- dóttir, svæf- inga- og gjör- gæslulæknir á Massachusetts General-spítal- anum í Boston. Ólöf var á vakt á spítalanum þegar sprengjuárás- in í maraþoninu varð á mánudag. Ólöf segir daginn vera almenn- an frídag í Boston og að flestir spítalar hafi aðeins verið mann- aðir eins og það væri helgi. „Það er hins vegar ekki gefið frí á þessum degi á Mass General þannig að það var sem betur fer nóg starfsfólk til að taka á móti sjúklingum.“ Hún var í vinnunni þegar fréttirnar af sprengingun- um bárust. „Allt var mjög óljóst til að byrja með, hversu margir voru særðir og hversu alvarlega. Öllum aðgerðum sem voru skipu- lagðar þennan eftirmiðdag var frestað og allar lausar skurð- stofur snarlega settar í stand til að taka á móti særðum sjúkling- um frá maraþoninu. Allt gerðist mjög hratt og innan við hálftíma eftir atburðinn voru komnir sjö sjúklingar til okkar inn á skurð- stofurnar.“ Eins og fram hefur komið eru þrír látnir eftir sprengju- árásina, og nú er talið að 176 hafi særst. Hluti þessa fólks kom á Mass General. „Alls kom 31 sjúklingur á spítalann, með mis- slæm meiðsli. Allt frá skrámum að alvarlegum brunasárum og sérstaklega virtust vera mikil meiðsli á neðri útlimum. Margir misstu fótlegg,“ segir hún. Ólöf segir stemninguna í borg- inni nú vera undarlega en yfir- vegaða á sama tíma. „Allir eru mjög slegnir og það er ekki um annað talað. Samt sem áður held- ur fólk ró sinni og lífið heldur að mestu áfram eins og vanalega.“ thorunn@frettabladid.is Íslenskur læknir í Boston aldrei upplifað annað eins Ólöf Viktorsdóttir, svæfinga- og gjörgæslulæknir á Mass General-spítalanum í Boston, var á vakt þegar sprengjuárás var gerð í borginni á mánudag. Alls kom 31 á spítalann og aðstæður voru eins og 11. september 2001, segir hún. Enginn hafði verið handtekinn eða var grunaður um að hafa staðið fyrir sprengjuárásinni í gærkvöldi. Yfirmaður FBI í Boston, Richard DesLauriers, sagði á blaðamannafundi að rannsókn málsins væri enn á frumstigi. Hann hvatti fólk til að láta lögreglu vita ef það hefði séð eitthvað sem gæti tengst sprengjunum. „Einhver veit hver gerði þetta,“ sagði hann. Lögregla hefur hvatt alla sem voru á svæðinu til þess að senda myndir og mynd- bönd til lögreglu í þeirri von að þar finnist vísbendingar. Enginn handtekinn eða grunaður enn Þrír eru látnir eftir árásina. Martin Richard, átta ára, var að fylgjast með maraþoninu ásamt fjölskyldu sinni. Móðir hans og systir eru báð- ar alvarlega slasaðar, en faðir hans og yngri bróðir sluppu ómeiddir. Þá var í gær greint frá því að 29 ára kona, Krystle Campbell, hefði látist. Boston-háskóli greindi einnig frá því að þriðja manneskjan sem lést hefði verið kínverskur framhalds- nemi við skólann. Nafn hennar var ekki opinberað af skólanum en fjölmiðlar hafa greint frá því að hún hafi heitið Lu Lingzi. Barack Obama Bandaríkjaforseti er kominn til Boston og mun tala í minningarathöfn fyrir fórnarlömbin í dag. ÞAU SEM LÉTUST ÓLÖF VIKTORSDÓTTIR MINNINGARATHÖFN Fjöldi fólks kom saman til minningar um fórnarlömbin í gær. Þessir háskólanemar grétu saman. NORDICPHOTOS/AFP MARTIN RICHARD KRYSTLE CAMPBELL Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Strekkingur/allhvasst S- og V-lands, annars heldur hægari. ÞAÐ HLÝNAR á morgun með töluverðum vindi og úrkomu. Líklega verður slydda í fyrstu og síðan rigning. Á laugardag og sunnudag kólnar heldur aftur með skúrum eða slydduéljum. Norðausturlandið sleppur þó að mestu við úrkomu þessa daga. -1° 3 m/s 0° 3 m/s 2° 5 m/s 3° 7 m/s Á morgun Vaxandi vindur, strekkingur eða allhvasst um tíma. Gildistími korta er um hádegi 3° 2° 4° 4° 1° Alicante Aþena Basel 24° 16° 24° Berlín Billund Frankfurt 19° 13° 17° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 21° 12° 12° Las Palmas London Mallorca 23° 14° 24° New York Orlando Ósló 15° 29° 10° París San Francisco Stokkhólmur 17° 19° 11° 3° 4 m/s 3° 3 m/s 0° 4 m/s -3° 6 m/s -2° 4 m/s -1° 3 m/s -5° 5 m/s 6° 3° 6° 4° 5° AKUREYRI Grunur um fjárdrátt Stjórnendur Verkmenntaskólans á Akureyri hafa vikið manni frá störfum, sem vann við bókhald skólans. Starfs- maðurinn er grunaður um fjárdrátt. Fjölmiðillinn Vikudagur greinir frá þessu. Ríkisendurskoðun hefur verið fengin til að skoða málið og í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um það hvort starfsmaðurinn verði kærður.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.