Fréttablaðið - 18.04.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 18.04.2013, Síða 8
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 VIÐSKIPTI Sigrún Ragna Ólafs dóttir, forstjóri VÍS, verður við skráningu VÍS á markað eftir helgi fyrsti kvenforstjórinn til að stýra skráðu félagi eftir hrun. „Mér hafði verið bent á að þetta kynni að vera tilfellið, en svo sem ekki leitt hugann mikið að þessu,“ segir Sigrún Ragna. Allur tími hennar hafi farið í að einbeita sér að því að ljúka skráningarferlinu. Taka á bréf VÍS til viðskipta í Nas- daq OMX Kauphöll Íslands þriðju- daginn 24. apríl, síðasta vetrardag. Um leið segir Sigrún Ragna vitan lega jákvætt að fá konu í hóp þeirra sem stýra skráðum fyrir- tækjum hér á landi. „Ég hef líka þá bjargföstu trú að það skipti máli að hafa góða dreifingu í hópum, alveg sama hvort það er hjá forstjórum, í stjórnum eða hjá stjórnendum almennt.“ Upphaflega stóð til að selja 60 pró- sent hlutafjár í VÍS í útboðinu sem lauk á þriðjudag en það hlutfall var hækkað í 70% í ljósi mikils áhuga. Seld voru bréf í félaginu fyrir 14,3 milljarða króna á genginu 7,95 til 9,20 krónur á hlut. Í verðmati á VÍS sem Greining Íslandsbanka gaf nýverið út í til- efni af útboðinu voru bréf félagsins metin á 7,05 krónur á hlut. Hæsta sölugengi í útboðinu er því þrjátíu prósentum yfir verðmatsgenginu og meðalgengið fimmtungi yfir verð- mati Greiningar Íslandsbanka. Sigrún Ragna segir mikinn áhuga almennra fjárfesta á VÍS ánægju- SIGRÚN RAGNA ÓLAFSDÓTTIR Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti VÍS í Kauphöll Íslands verði þriðjudagurinn 24. apríl næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VÍS brýtur ísinn í Kauphöll Íslands Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, verður fyrsta konan eftir hrun til að stýra fyrirtæki sem skráð er í Kauphöll Íslands. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum VÍS í útboði sem lauk á þriðjudag. Bréf seldust á allt að 30% yfir verðmatsgengi. Hildur Petersen var fyrsta konan til að gegna starfi for- stjóra í fyrirtæki sem skráð var í Kauphöll Íslands, þegar hún stýrði Hans Petersen hf. Félagið var skráð í Kauphöllina frá desember 1998 þar til í október 2000. Samkvæmt upplýsing- um úr Kauphöllinni finnast þess ekki önnur dæmi að kona hafi stýrt skráðu fyrirtæki. Hildur Petersen var sú fyrsta árið 1998 legan og fagnar því að fá með þessu inn í félagið tæplega 5.000 nýja hluthafa. Með því hafi líka verið rutt úr vegi fyrirvörum sem Kaup- höllin hafi sett um fjölda hluthafa í félaginu. „Þetta er mjög góð dreifing og heppilegt, ekki síst fyrir trygginga- félög sem eru með mjög dreifðan hóp viðskiptavina, að eignarhaldið sé dreift. Það fer mjög vel saman,“ segir hún. Þá segir Sigrún Ragna ljóst að VÍS sé eitt form af félögum sem mjög heppilegt sé að hafa með öðrum skráðum félögum. „Þar eru mis- munandi tegundir af félögum og við höfum kynnt þetta félag sem sterkan kost í að vera arðgreiðslufélag.“ olikr@frettabladid.is 1 0 ÁRUM Ársfundur Umhverfisstofnunar 2013 hvað gerist á í umhverfismálum Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlinda- ráðherra flytur ávarp Uppgjör síðustu fimm ára og kynning á stefnu til 2017 Ari Eldjárn með uppistand Föstudaginn 19. apríl 9:45–12:00 Grand Hótel Engin skráning – bara mæta DÓMSMÁL Slitastjórn Glitnis reynir nú að sækja bætur til sakborning- anna í Vafningsmálinu, þeirra Lár- usar Welding og Guðmundar Hjalta- sonar. Bótakrafan hljóðar upp á 102 milljónir evra, jafngildi tæplega sextán milljarða króna að núvirði, sem er sama upphæð og Glitnir lán- aði Milestone í febrúarbyrjun 2008. Skaðabótamálið var höfðað í mars í fyrra en hefur verið í bið- stöðu mánuðum saman á meðan sakamál sérstaks saksóknara vegna sömu viðskipta var rekið fyrir dóm- stólum. Lárus, sem var forstjóri Glitnis fyrir hrun, og Guðmund- ur, sem var yfir fyrirtækjasviði bankans, voru í lok desember dæmdir í níu mánaða fangelsi fyrir umboðssvik við lán- veitinguna til Mile- stone. Þar af voru sex mánuðir skilorðs- bundnir. Í k j ö l f a r i ð fór skaðabóta- málið aftur af stað – Lárus og Guðmundur skiluðu greinar- gerðum, málið er komið á dag- skrá Héraðsdóms Reykjavíkur á nýjan leik og fljótlega verð- ur ákveðið hvenær það verður tekið til aðalmeðferðar. Sakamálinu var hins vegar áfrýjað til Hæstaréttar og verði dómnum snúið er óvíst hvað verður um skaðabóta- málið. - sh Slitastjórn höfðar 16 milljarða skaðabótamál gegn Vafningssakborningum: Reyna að sækja Vafningsféð LÁRUS WELDING Verst nú sextán milljarða skaðabótamáli slitastjórnarinnar. www.sonycenter.is Sony Center Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700 Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645 Hágæða vatnsþéttur Android snjallsími SONY XPERIA Z 5” TFT snertiskjár með HD upplausn 13 megapixla myndavél, LED flass HD videoupptaka TILBOÐ 129.990.- Verð áður 139.990.- Vatnsþéttur Android snjallsí SONY XPERIA V 4,3” TFT snertiskjár með HD upplau 13 megapixla myndavél, LED flass HD videoupptaka VERÐ 99.990.- Frábær Android snjallsími SONY XPERIA TIPO 3,2” TFT snertiskjár með rispuvörn 3,15 megapixla myndavél Videoupptaka VERÐ 22.990.- Góð kaup á snjallsíma SONY XPERIA J 4” TFT snertiskjár með HD upplausn 5 megapixla myndavél, LED flass Videoupptaka TILBOÐ 39.990.- Verð áður 43.990.- Vatns og rykvarinn Android snjallsími SONY XPERIA GO 3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn 5 megapixla myndavél, LED flass HD Videoupptaka VERÐ 48.990.- mi sn Allt það besta frá Sony í snjallsíma Frábært verð!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.