Fréttablaðið - 18.04.2013, Page 18
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Ársfundur Landspítala 2013
í Salnum í Kópavogi
Þriðjudaginn 23. apríl kl. 14:00-16:00
Öryggismenning í öndvegi
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
Ávarp
Björn Zoëga forstjóri
Öruggir verkferlar
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Ársreikningur Landspítala 2012
Afhending styrks úr Verðlaunasjóði í læknisfræði
Verðlaunahafinn kynnir rannsóknir sínar
Carl-Johan Wallin, svæfingalæknir á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
Lean Healthcare and Safety Culture in Hospitals
Starfsmenn heiðraðir
Björn Zoëga forstjóri og Erna Einarsdóttir starfsmannastjóri
Fundarstjóri: Benedikt Olgeirsson, aðstoðarforstjóri Landspítala
Besta leiðin til þess að halda grill-
inu hreinu er að láta það aldrei
verða verulega óhreint. Það þarf
til dæmis að þrífa grindurnar bæði
að ofan og neðan eftir að grillað er.
Það er að vísu ekki skemmtilegt að
taka til við þrif á grilli að lokinni
ljúffengri máltíð í kvöldsólinni en
þá verður að þrífa grillið áður en
grillað er næst.
Að setja steik-
ina ofan á leifar
af hamborgur-
unum frá því í
fyrrasumar er
auk þess ekki
lystaukandi.
„ M a ð u r s é r
stundum þykkt
lag af fitu í grill-
um og ég hef heyrt menn tala um
að brenna þetta bara og láta loga
vel. Hitinn í grillinu er að vísu
það mikill að hann drepur ör verur
en þegar fitan brennur myndast
krabbameinsvaldandi efni. Fitu
sem lekur niður í grillið eða situr
á grillgrind þarf að hreinsa burtu
eftir að matreiðslu lýkur. Ann-
ars heldur hún áfram að brenna
við næstu grillun,“ segir Ingi-
björg Jónsdóttir, sérfræðingur hjá
Matvæla stofnun.
Hún getur þess að við grillun
sé mest hætta á myndun krabba-
meinsvaldandi efna þegar matur-
inn brennur eða fita af kjöti eða
marineringu lekur niður á kolin
eða heitt grillið. „Þá logar í fitunni
og reykur með tjöruefnum mynd-
ast. Reykurinn leikur um kjötið og
efni úr honum setjast á það. Sé fita
ekki hreinsuð burt eftir grillun
Mikilvægt að þrífa
grillið eftir notkun
Hreinsa þarf burt fitu í grilli eftir að matreiðslu lýkur til þess að koma í veg fyrir
myndun skaðlegra efna. Efnin geta sest á matinn sem verið er að grilla.
Gæta þarf þess að kjöt eða safi úr kjöti komist ekki í snertingu við mat-
væli sem eru tilbúin til neyslu.
Mælt er með því að nota tvær tangir við grillun, aðra fyrir hrátt kjöt og
hina fyrir grillað kjöt. Setjið kjötið ávallt á hreint fat að lokinni grillun.
Góð regla er að fjarlægja það fat sem hráa kjötið var á þegar allt kjötið er
komið á grillið. Heimild: Matvælastofnun
Forðist matarsýkingu
Átta af þeim fimmtán flugfélögum sem halda uppi áætlunarflugi frá
Keflavík í sumar rukka farþega fyrir innritaðan farangur. Frá þessu
er greint í frétt á vefnum turisti.is. Þar segir jafnframt að gjaldið geti
numið um þrjú þúsund krónum fyrir hvora leið.
Farangursgjald Easy-Jet er það hæsta hér á landi eða 3.100 krónur.
Það kostar því 6.200 krónur að taka með sér eina tösku. Farangurs-
gjald Vueling er 3.000 krónur aðra leið en Wow Air 2.900 krónur.
Fimm félög heimila eina til tvær töskur án þess að greitt sé auka-
lega. Bent er á að sum erlendu flugfélögin heimili eina tösku ef bók-
aðir eru farmiðar úr dýrari verðflokkum.
Flugfélögin sem halda uppi áætlunarflugi frá Íslandi:
Meirihluti rukkar fyrir farangur
Í LEIFSSTÖÐ
Það getur kostað
yfir sex þúsund
krónur að taka
eina tösku með
sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐ GRILLIÐ Grillmaturinn verður óhollur ef grillið er ekki þrifið.
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
veldur hún aukinni myndun skað-
legra efna sem berast með reykn-
um upp úr grillinu og sest á það
sem verið er að grilla.“
Skúffuna þarf að hreinsa með
sköfu og þvo síðan með sápuvatni.
Brennara þarf að hreinsa á tveggja
til þriggja mánaða fresti.
Best er að leita ráða hjá sölu-
manni um þrif á þeirri tegund
grills sem keypt hefur verið.
ibs@frettabladid.is
BRÆÐINGUR OG LÚPÍNUSEYÐI INNKALLAÐ
Matvælastofnun hefur fengið upp-
lýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Suður-
lands um framleiðslu á Krónu Bræðingi
við óheilnæmar aðstæður. Sala á
bræðingnum hefur verið stöðvuð og
hún innkölluð af markaði. Þeir sem
eiga umrædda vöru eru beðnir um að
neyta hennar ekki og farga. Varan var
framleidd í Hveragerði en er merkt FS
Dreifingu í Garðabæ.
Einnig hafa borist upplýsingar frá
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um
framleiðslu á lúpínuseyði frá Svarta
Hauki við óheilnæmar aðstæður. Fyrir-
tækið hefur stöðvað sölu á vörunni og
innkallað hana af markaði. Neytendur
eru hvattir til að farga vörunni.
Nánari upplýsingar er að finna á vef
Matvælastofnunar, mast.is.