Fréttablaðið - 18.04.2013, Page 64
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
Elfur Sunna Baldursdóttir er
einn þeirra útskriftarnemenda
Listnámsbrautar VMA sem sýna
lokaverkefni sín í gömlu verk-
smiðjunni á Hjalteyri nú um
helgina 20. og 21. apríl. Hún segir
verkin mjög fjölbreytt sem hóp-
urinn hafi unnið að frá upphafi
þessarar skólaannar, ásamt lestri
skólabóka og öðrum undirbúningi
undir stúdentsprófið. „Við erum í
bóklegum greinum eins og aðrir.
Svo fáum við að taka ýmsar verk-
legar greinar líka,“ segir Elfur
Sunna. Hún kveðst í upphafi hafa
getað valið milli myndlistar- og
textílkjörsviðs og valið textílinn.
Þar eru kenndar greinar eins og
vefnaður, fatasaumur og fleira.
„Það er virkilega góð aðstaða hér
til margra hluta.“
Fjögurra ára nám er nú að baki
og þegar Elfur Sunna er spurð
hvort hún hafi alltaf ætlað sér
að feta listabrautina svarar hún:
„Mamma er myndlistarkona og
ég ákvað fljótt að feta í fótspor
hennar. Svo er pabbi smiður,“
segir hún og upplýsir að þau heiti
Gígja Jóhannesdóttir og Baldur
Kristjánsson.
Elfur Sunna sýnir textíllista-
verk á svifi sem samanstendur af
kjól og kúlum. Það heitir Lita-
kyrrð. „Nafnið er útúrsnúningur
á orðinu litadýrð,“ segir hún og
leikur sér þannig með tungu-
málið. Varla hefur hún ofið efnið í
kjólinn og utan á kúlurnar? „Nei,
reyndar ekki en einn nemandinn,
Þórhallur Jóhannsson, sýnir stóla
sem hann óf áklæðið á sjálfur.“
Verksmiðjan á Hjalteyri verður
opin frá klukkan 14 til 17 laugar-
dag og sunnudag. Frír aðgangur
er á sýninguna og verður boðið
upp á heitt kakó og bakkelsi. Þar
sem engin kynding er í húsinu er
öllum ráðlagt að koma vel klædd-
ir til að geta notið sýningarinnar
til fulls. gun@frettabladid.is
List og litakyrrð
á Hjalteyri
Í gömlu verksmiðjunni á Hjalteyri efnir 21 útskrift ar-
nemandi Listnámsbrautar Verkmenntaskóla
Akureyrar til sýningarinnar Loksins nú um helgina.
STÓLAR Þórhallur
Jóhannes son sýnir stóla sem
hann óf sjálfur áklæðið á.
ELFUR SUNNA
Sú var ekki í
vandræðum með
að redda mynd af
sjálfri sér.
Myndir/Elfur Sunna
SKYSSA Teikning
af verkinu Litakyrrð
sem verður á svifi.
KJÓLL Einn af þremur kjólum sem
Ragnheiður Vilma Ingvarsdóttir
hannaði og saumaði fyrir sýninguna.
LITAKYRRÐ
Hluti verksins
hennar Elfar
Sunnu er
þessi kjóll.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Námskeið
17.00 Kristín Jónsdóttir verður með
námskeið um Hávamál í Bókasafni Sel-
tjarnarness við Eiðistorg. Hávamál eru
eitt frægasta Eddukvæðið, ásamt Völu-
spá. Þátttökugjald er kr. 1.000.
Opið Hús
12.00 Geymslur Þjóðminjasafnsins
að Vesturvör 16-20 í Kópavogi verða
opnar almenningi. Þar er að finna um
350.000 gripi og tæplega fimm millj-
ónir mynda í eigu safnsins.
Kvikmyndir
18.00 Norræna kvikmynda hátíðin
heldur áfram í Norræna húsinu.
Aðgangur er ókeypis á allar myndir
og eru þær allar sýndar með enskum
texta. Fyrst verður sýnd myndin
Grínistinn (dönsk) og svo klukkan
20.00 verður sýnd myndin Uppreisnin
í Kautokeino (norsk).
Uppákomur
12.15 Þóra Arnórsdóttir velur verk vik-
unnar á Kjarvalsstöðum. Uppákoman
er í tengslum við sýninguna Flæði sem
stendur þar yfir núna.
20.00 Höfnin, innblásturstími fyrir
hönnuði, teiknara, hugsuði, kúnna, vini
og alla sem hafa áhuga, verður haldin
á Faktorý.
Málþing
20.00 Hönnunarmiðstöðin heldur
málþing um hönnun og arkitektúr í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Fulltrúum stærstu framboðsflokkana
hefur verið boðin þátttaka í þinginu.
Tónlist
20.00 Álftaneskórinn og Kór
Laugarnes kirkju halda tónleika í
Laugarneskirkju. Stjórnendur eru
Bjartur Logi Guðnason og Arngerður
María Árnadóttir.
21.00 Blússveit Þollýar spilar á Græna
hattinum á Akureyri. Miðaverð er kr.
2.000.
21.00 Lára Rúnars, Ylja og Foreign
Mona koma fram á tónleikum á Café
Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
22.00 Hljómsveitin Síðasti bærinn í
dalnum heldur tónleika á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er
kr. 1.000.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.