Fréttablaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 66
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Hasarmyndin Olympus Has Fallen
var frumsýnd í kvikmyndahúsum
í gær. Annar af handritshöfundum
myndarinnar er hin íslenska Katr-
ín Benedikt, sem flutti vestur um
haf þegar hún var sex ára, en hand-
ritið skrifaði hún ásamt eiginmanni
sínum.
Olympus Has Fallen segir frá
Mike Banning sem starfar sem
öryggisvörður í Hvíta húsinu. Í
gegnum starfið tengjast Banning
og forsetafjölskyldan nánum vina-
böndum en þau bönd bresta þegar
forsetafjölskyldan lendir í hörmu-
legu bílslysi og Banning er í kjöl-
farið færður til í starfi. Skömmu
síðar ræðst norður-kóreska ill-
mennið Kang Yeonsak inn í Hvíta
húsið og tekur forsetann í gíslingu.
Hann fer fram á að bandarískir
hermenn sem staðsettir eru á Kór-
euskaga verði strax kallaðir heim.
Innrásin er þó einnig persónu leg
því Kang hyggst hefna dauða for-
eldra sinna með því að sprengja
allar kjarnaflaugar Bandaríkj-
anna í neðanjarðar byrgjunum sem
hýsa þær. Það er aðeins eitt vanda-
mál; Banning er enn á lífi inni í
Hvíta húsinu og hyggst koma í veg
fyrir áætlanir Kangs og bjarga
Hávær spennumynd
Olympus Has Fallen var frumsýnd í gær. Myndin skartar Gerard Butler í
hlutverki hörkutóls sem hyggst bjarga lífi Bandaríkjaforseta og samlanda sinna
frá árás hryðjuverkamanna. Íslensk kona er annar af handritshöfundunum.
MIKILL HASAR Kvikmyndin Olympus Has Fallen var frumsýnd í gærkvöldi. Myndin skartar Gerard Butler í hlutverki hörkutólsins
Mike Banning.
Handritið að Olympus Has Fallen er skrifað af hjónunum
Katrínu Benedikt og Creighton Rothenberger. Katrín er
íslensk en ólst upp í Bandaríkjunum.
„Eiginmaður minn og samstarfsmaður fékk
þessa hugmynd fyrir dálítið löngu. Við héldum
áfram að vinna með hana næstu árin og
vorum sífellt að betrumbæta handritið,“
sagði Katrín í viðtali við Fréttablaðið í mars.
Þetta er fyrsta handrit þeirra hjóna sem
gert er að kvikmynd og kveðst Katrín
himinlifandi með leikaravalið. „Líkam-
legt atgervi Gerards Butler hentar
mjög vel fyrir hlutverkið og einnig
leikur hann leyniþjónustufulltrúann
Mike Banning afar vel.“
Handritið skrifað af Íslendingi
lífi forsetans og um leið samlanda
sinna allra.
Skoski leikarinn Gerard Butler
fer með hlutverk hörkutólsins Mikes
Banning og með önnur hlutverk fara
Aaron Eckhart, sem forseti Banda-
ríkjanna, Morgan Free man, Angela
Bassett, Ashley Judd, Dylan Mc-
Dermott og Rick Yune, sem leikur
illvirkjann Kang Yeonsak. Leikstjóri
myndarinnar er Antoine Fuqua, sem
hlaut mikið lof fyrir myndina Train-
ing Day frá árinu 2001.
Á vefsíðunni Rotten tomatoes.
com fær Olympus Has Fallen
aðeins 48 prósent í einkunn frá
gagn rýnendum. Áhorfendur eru
þó töluvert jákvæðari og gefa
henni 79 í einkunn. Einn gagnrýn-
andi segir að svo virðist sem mark-
mið myndar innar sé að vera eins
„hávær, ofbeldisfull og þjóðremb-
ingsleg og hægt er“. Annar hælir
Butler fyrir frammistöðuna í hlut-
verki harðjaxlsins og segir hann
frábæran sem slíkan. sara@frettabladid.is
Ráðist verður í gerð framhalds-
myndarinnar Snow White and the
Huntsman, með Kristen Stewart
í aðalhlutverki, samkvæmt vef-
síðunni Huffingtonpost.com.
Stewart mun aftur bregða sér í
hlutverk Mjallhvítar, sem þó er
töluvert ólík þeirri Mjallhvíti sem
fólk þekkir úr samnefndu ævin-
týri.
Ekki hefur fengist staðfest
hvort Rupert Sanders muni leik-
stýra seinni myndinni, en frægt
er orðið þegar upp komst um
framhjáhald hans og Stewart.
„Ég er mjög spennt fyrir þessu.
Ég má samt ekkert segja um
verkefnið,“ hafði IndieWire eftir
Stewart í desember.
Framhald um
Mjallhvíti
MJALLHVÍT Kristen Stewart mun
bregða sér aftur í hlutverk Mjallhvítar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Íslendingar verða í öndvegi í kvik-
myndahúsunum um helgina því
ekki nóg með að mynd Katrínar
Benedikt, Olympus Has Fallen, sé
frumsýnd, eins og fram kemur hér
að ofan, heldur er íslenska mynd-
in Falskur fugl líka frumsýnd á
morgun.
Það er Jón Atli Jónasson sem
skrifar handritið að Fölskum
fugli eftir samnefndri skáldsögu
Mikaels Torfasonar. Meðal leik-
ara eru Styr Júlíusson, Alexía
Björg Jóhannesdóttir, Hilmir Snær
Guðnason og Damon Younger.
Myndin fjallar um hinn 16 ára
gamla Arnald sem kemur að eldri
bróður sínum látnum eftir að
hann framdi sjálfsmorð. Arnald-
ur á erfitt með að takast á við lífið
eftir atvikið, eins og öll fjölskylda
hans, og í kjölfarið leiðist hann út
í óreglu, sem ber enn fleiri vanda-
mál í för með sér.
Fyrir þá sem eru í stuði fyrir
meira grín og kaldhæðni er fimmta
Scary Movie-myndin væntanleg í
bíó á morgun líka. Grínmyndirnar
voru afar vinsælar í upphafi aldar-
innar og komu þær fyrstu fimm út
á árunum 2000 til 2006. Sú fyrsta
sló rækilega í gegn en þær sem á
eftir fylgdu náðu þó aldrei sömu
vinsældum. Eftir sjö ára hlé hefur
nú verið ákveðið að reyna aftur
og sú fimmta sett saman. Leikar-
arnir eru ekki af verri endanum
en þau Ashley Tisdale, Simon Rex
og glaumgosinn Charlie Sheen fara
þar í broddi fylkingar. Í Scary
Movie myndunum er gert grín að
hinum ýmsu atriðum úr vin sælum
myndum. Að þessu sinni eru hjónin
Dan og Jodie í aðalhlutverkum en
þegar þau koma heim með ný-
fæddan son sinn virðist draugur
hafa fylgt þeim og undarlegir
atburðir fara að gerast. - trs
Íslenskt og endur-
koma Scary Movie
Tvær kvikmyndir verða frumsýndar komandi helgi.
FULLT AF
GRÍNI Í
Scary Movie
er gert grín
að atriðum
úr mörgum
vinsælustu
myndum
síðustu ára.
Leikarinn Leonardo DiCaprio telur sig heppinn að
hafa fengið tækifæri til að starfa sem leikari. Hann
kveðst fullur þakklætis og segir það jafnframt vera
sinn drifkraft til að sinna starfinu vel.
„Það að fá eitt tækifæri er eins og að vinna í
lottói. Ég hef alltaf hugsað með mér að ég
verði að gera þetta vel og vinna mikið
því annars hafi ég glatað einstöku tæki-
færi,“ sagði leikarinn í viðtali við tíma-
ritið Esquire.
Þakklátur fyrir starfi ð
Leikarastarfi ð er eins og að vinna í lottói.
SÁTTUR Leonardo DiCaprio
er ánægður með starf sitt.
NORDICPHOTOS/GETTY