Fréttablaðið - 18.04.2013, Síða 70
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
„Eftir 25 ára afmælistónleikana í fyrra helltist yfir
okkur löngun til að gera þetta aftur að ári. Þetta var
svo einstök upplifun“, segir Jón Ólafsson, meðlimur
í hljómsveitinni Nýdönsk.
Hljómsveitin hefur nú ákveðið að blása til tón-
leika í Eldborgarsal Hörpunnar 21. september og
er stefnan að stórtónleikar með sveitinni verði
árlegur viðburður héðan í frá.
Stefnt er að því að hafa tónleikana í september
ár hvert, sem Jón telur vera góðan mánuð þar sem
það sé lognið á undan storminum sem fylgir jóla-
ösinni með tilheyrandi útgáfu- og jólatónleikum.
„Tónleikarnir verða ólíkir frá ári til árs. Við höfum
gefið út reiðinnar býsn af efni í gegnum tíðina
þannig að það ætti ekki að vera vandamál. Hugsan-
lega fáum við svo gesti til að krydda þetta aðeins,“
segir Jón og bætir við að þeir gætu rétt eins komið
úr hópi dýratemjara eins og tónlistarfólks.
Tónleikarnir bera yfirskriftina Fram á nótt eftir
einu þekktasta lagi hljómsveitarinnar en vinsæl-
ustu lög sveitarinnar verða einmitt höfð í brenni-
depli. „Við tónlistarmennirnir höfum tilhneigingu
til að lauma minna þekktum lögum inn á milli
þeirra þekktustu því okkur þykir svo gaman að
spila þau. Að þessu sinni ætlum við þó að beygja
okkur í duftið og spila eingöngu okkar vinsælustu
lög. Þegar nær dregur munum við bjóða upp á
skoðanakönnun þar sem áhangendur geta pantað
uppáhaldslög sín fyrir tónleikana.“ Forsala miða
hefst 2. maí. - trs
Nýdönsk með árlega tónleika
Vinsælustu lög sveitarinnar í brennidepli og áhangendur fá að hafa áhrif á valið.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
LAST SHOP STANDING (L) 20:00
CHASING ICE (L) 18:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50, 20:00
THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 22:10
ON THE ROAD 16) 20:00, 22:20
SLÓ Í GEGN Á ÞÝSKUM
KVIKMYNDADÖGUM
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
AÐEINS EIN
S Ý N I N G
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
- V.J.V., SVARTHÖFÐI
- T.K., KVIKMYNDIR.IS
STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI!
OBLIVION KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
OBLIVION LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALIATION 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
ADMISSION KL. 8 - 10.20 L
I GIVE IT A YEAR KL. 10.30 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
SAFE HAVEN KL. 8 14
- H.S.S., MBL
OBLIVION KL. 6 - 9 12
KAPRINGEN KL. 8 - 10 12
SAFE HAVEN KL. 5.30 - 10 12
JAGTEN (THE HUNT) KL. 10.30 12
OBLIVION KL. 5.45 - 8 - 10.15 12
GI JOE KL. 8 - 10.15 16
ADMISSION KL. 5.45 L
OBLIVION 5.30, 8, 10.30
G.I. JOE RETALIATION 3D 5.50, 8, 10.15
I GIVE IT A YEAR 8
SNITCH 10.10
THE CROODS 3D - ÍSL TAL 6
T.V. - Bíóvefurinn
T.K. - Kvikmyndir.is
V.J.V. - Svarthöfði
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
H.S. - MBL
THE NEW YORK TIMES
LOS ANGELES TIME
WALL STREET JOURNAL
TIME
T.K., KVIKMYNDIR.IS
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL
18.00 Grínistinn (DIRCH). Danmörk
2012/109 mín.
20:00 Uppreisnin í KAUTOKEINO
(KAUTOKEINO-OPPRØRET). Noregur 2008/96 mín.
Allar kvikmyndirnar eru sýndar með
enskum texta og er frítt inn á hátíðina.
Nánari upplýsingar á norraenahusid.is
NORRÆN
KVIKMYNDA
HÁTÍÐ
11.–21. APRÍL 2013
NORRÆNA HÚSIÐ
KYNNIR:
Á SVIÐI Hægt
verður að sjá
Nýdönsk á sviði
árlega héðan í frá.
Það styttist í tónleikahátíðina Kefl avík Music Festival sem verður haldin 7.-10.
júní. Hefur nú verið greint frá komu þriggja erlendra atriða í viðbót. - trs
Fleiri erlendir lista-
menn boða komu sína
The Temper Trap er ástralskt
indírokkband sem hefur
verið að frá árinu 2005.
Bandið hefur notið gífurlegra
vinsælda í heimalandinu
auk þess að hafa til að
mynda náð góðum árangri
á vinsældalistum í Belgíu,
Írlandi og Bretlandi.
Strákarnir hlutu meðal annars tilnefningu til
hinna virtu BRIT verðlauna í fyrra, hituðu upp
fyrir Coldplay á tónleikaferðalagi þeirra um
Ástralíu og Nýja-Sjáland í lok síðasta árs og eru
bókaðir til að hita upp fyrir sjálfar goðsagnirnar í
Rolling Stones á 50 ára afmælistónleikum þeirra í
Hyde Park í Lundúnum í sumar.
➜ The Temper Trap
Ástralski rapparinn Iggy Azelea er 22 ára gömul en hefur verið að
rappa frá því hún var fjórtán. Þrátt fyrir að hafa verið komin með
útgáfusamning árið 2008 tók ferillinn hennar ekki af stað fyrir
alvöru fyrr en 2011 þegar lag hennar Pu$$y sló rækilega í gegn
á YouTube. Hún var valin á lista hiphop-tímaritsins XXL yfir tíu
heitustu nýliðana í bransanum í fyrra en hún var fyrsta konan og
fyrsti rapparinn utan Bandaríkjanna til að komast á þann lista.
Iggy hefur einnig gert það gott í fyrirsætuheiminum og er á
samning hjá fyrirsætuskrifstofunni Wilhelmina Models Inter-
national þar sem söngkonurnar Fergie og Natasha Bedingfield
eru líka á skrá. Þær Iggy og Natasha hafa líka tekið höndum
saman í tónlistinni auk þess sem Iggy hefur unnið með stjörnum
á borð við T.I, Snoop Dogg og Dr. Dre og er nú að vinna í tveimur
nýjum lögum með Rihönnu.
Dagskráin hjá Iggy er þétt bókuð á komandi mánuðum og
kemur hún til að mynda fram á tónleikunum Chime for Change í
London í júní, ásamt söngkonunni Beyoncé og fleirum.
➜ Iggy Azelea
Saul Milton og Will
Kennard mynda tónlistar-
tvíeykið Chase & Status.
Þeir spila raftónlist
og hafa slegið í gegn í
heimalandinu, Bretlandi
að undanförnu. Önnur
plata þeirra, No More
Idols, komst í annað sæti
breska vinsældalistans
þegar hún kom út árið 2011 og var slegin til gulls á
fyrstu vikunni í sölu. Þeir hafa einnig gert það gott á
listum yfir vinsælustu danstónlist síðustu ára.
Chase & Status hafa meðal annars komið fram með
Rihönnu og rapparanum Tinie Tempah, sem er einmitt
væntanlegur á Keflavík Music Festival líka.
➜ Chase & Status