Fréttablaðið - 18.04.2013, Side 78

Fréttablaðið - 18.04.2013, Side 78
18. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50 „Tónlistarfólkið verður um hundrað talsins og það gistir á gamla herhótelinu sem heitir nú Bed and Breakfast Keflavík. Svo eru um tvö hundruð gisti- pláss í boði fyrir gesti. „Íbúum“ svæðisins fjölgar því um þrjú hundruð manns þessa helgi,“ segir Tómas Young, sem skipuleggur tónlistar- hátíðina All Tomorrow´s Parties. Hátíðin fer fram á Ásbrú í Keflavík helgina 28. til 29. júní. Að sögn Tómasar vinna aðstandendur Bed and Breakfast Keflavík nú að því að fjölga gistirýmum á vallarsvæðinu til að geta hýst alla hátíðargestina. „Þau eru að breyta tveimur blokkum við hlið hótels ins í íbúðarherbergi sem við leigjum svo af þeim.“ Hátíðin var fyrst haldin í Englandi árið 2000 og að sögn Tómasar þykir hún mjög „fan-friendly“. „Ég á enn eftir að finna gott íslenskt orð yfir þetta hugtak en hugmyndin á bak við hátíðina er sú að gestir geti átt í persónulegum samskiptum við listamennina og öfugt.“ Meðal þeirra tuttugu hljómsveita sem koma fram á hátíðinni má nefna Nick Cave og hljómsveitina Bad Seeds, The Fall, Chelsea Light Moving, sem Thurston Moore, stofnandi Sonic Youth, fer fyrir, og hljóm- sveitina Squrl með kvikmyndaleikstjórann Jim Jarmusch í fararbroddi. Miðasala á hátíðina er hafin á Midi.is. - sm Gestir fylla tvær íbúðarblokkir Búist er við því að um 300 manns gisti á Ásbrú í tengslum við tónlistarhátíð. VINALEG HÁTÍÐ Tómas Young tón- leikahaldari segir tónlistarhátíðina All Tomorrow´s Parties vera þannig gerða að gestir og tónlistarfólk geti átt í samskiptum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Ég er algert tónlistarnörd, þetta kemur í staðinn fyrir golfið hjá mér,“ segir Gunn- laugur Jónsson knattspyrnuþjálfari, sem síðustu mánuði hefur verið að undirbúa útvarpsþætti um íslenska tónlist sem nefn- ast Árið er … íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Fyrsti þátturinn fer í loftið þann 4. maí og í hverjum þætti verður eitt ár í íslenskri tónlistarsögu tekið fyrir frá árinu 1983. Til- efnið er þrjátíu ára afmæli Rásar 2. Gunn- laugur hefur hingað til verið betur þekkt- ur fyrir lipra takta á knattspyrnuvellinum. „Þetta er mitt áhugamál og ég næ ágætis jafnvægi þarna með knattspyrnunni.“ Gunnlaugur sér um handritagerð ásamt Ásgeiri Eyþórssyni og Jónatani Garðars- syni. Við hljóðnemann sitja svo Ásgeir og söngkonan Sigríður Thorlacius. Gamlar upptökur í bland við viðtöl við tónlistar- menn eru meðal þess sem verður á boð- stólnum. - áp Þjálfari með útvarpsþætti um íslenska tónlist Gunnlaugur Jónsson sér um handritið og Sigríður Thorlacius situr við hljóðnemann. TAKA SAMAN HÖNDUM Gunn- laugur Jónsson skrifar hand- ritið að nýjum útvarpsþáttum um íslenska tón- list og Sigríður Thorlacius situr við hljóðnem- ann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ➜ „Íbúum“ Ásbrúar fjölgar um 300 manns meðan á hátíðinni stendur. „Ég hef verið í skýjunum síðan ég fékk símtalið,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri en stuttmynd hans, Hvalfjörður, er ein af níu myndum sem keppa um Gullpálmann í Cannes í maí. Myndin er frumraun Guðmund- ar í leiknu efni. Hann sá um leik- stjórn, handritsgerð og framleiðslu ásamt Antoni Mána Svavarssyni. „Þetta var alltaf markmiðið en það er ekki gefið að komast í gegnum þetta nálarauga,“ segir Guðmund- ur en 3.500 myndir frá 132 löndum voru sendar inn í keppnina. Guðmundur ætlar að fylgja myndinni til Cannes. Rúnar Rúnars son er meðframleiðandi myndarinnar, ásamt Dönunum Darin Mailand-Mercado og Jacob Oliver Krarup. „Þetta er skemmti- legur sirkús. Við stefnum á að frumsýna myndina í kjölfarið á Íslandi.“ - áp Keppir um Gullpálmann Hvalfj örður keppir um Gullpálmann í Cannes. ➜ Árið 1992 er í sérstöku uppáhaldi hjá Gunnlaugi en þá komu út lögin Sódóma og Krókurinn með Sálinni, Horfðu til himins með Nýdönsk og Vegbúinn með KK. GLAÐUR Guðmundur ætlar fylgja mynd sinni, Hvalfirði, á Cannes. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Uppáhaldsborgin mín er New York. Ég fór þangað þrisvar sinnum í fyrra og fjórum sinnum árið þar áður. Borgin er mjög lifandi og þar er mikið af fólki, ég þrífst á því.“ Þura Stína Kristleifsdóttir, einn af fjórum rekstrarstjórum Priksins. BORGIN ➜ Hvalfjörður er þriðja íslenska stuttmyndin sem er valin í aðalkeppni Cannes. „Við fengum merina afhenta í júní- byrjun og þá grunaði engan að hún gæti verið fylfull. Öllum að óvörum kastaði hryssan svo litlu merfolaldi í síðustu viku,“ segir Einar Örn Sigurdórsson, starfs- maður hjá Íslensku auglýsinga- stofunni, um skemmtilegan atburð sem átti sér stað í síðustu viku. Þá varð Urður Einarsdóttir, dóttir hans og Brynhildar Davíðs dóttur, óvænt einni merinni ríkari þegar hryssa sem hún hafði fengið í fermingargjöf kastaði litlu mer- folaldi. Einar Örn segir að merin Sýn muni sinna móðurhlutverk- inu í sumar og því verði lítið um útreiðar túra hjá dóttur hans. Folald ið er talið undan Gerpi frá Stóra-Sandfelli, en sá var með Sýn í geymslu síðasta sumar. „Pabbinn er úrvalsgæðingur, að mér skilst, sem búið er að selja út. Við fengum þarna topphest í kaupbæti,“ segir hann og hlær. Urður, eigandi Sýnar, segir fréttirnar af folaldinu hafa komið sér skemmtilega á óvart. Hún heimsótti mæðgurnar um síðustu helgi og segir folaldið afskaplega krúttlegt, en það mun vera skjótt að lit, líkt og móðir þess, og bragg- ast vel í sveitinni. „Það er lítið og mjúkt og algjör dúlla. Það er dálítið feimið og ekki jafn gæft og mamman,“ segir Urður sem mun dvelja sumarlangt hjá afa sínum og ömmu á bænum Arnbjargarlæk í Þverárhlíð. Spurð hvort hún hafi þegar ákveðið nafn á folaldið segir Urður að nokkur komi til greina. „Ég hef verið að pæla í nafninu Þula, mér fannst það svo fallegt. Svo kemur nafnið Frostrós líka til greina því hún fæddist í sjö stiga frosti, sem er ekki æskilegt fyrir lítið folald,” segir Urður að lokum. sara@frettabladid.is Fermingargjöfi n kastaði merfolaldi Urður Einarsdóttir fékk hryssuna Sýn í fermingjargjöf í fyrra. Merin kastaði óvænt litlu merfolaldi í síðustu viku. Folaldið er að sögn eigandans mikið krútt. FOLALD Í KAUPBÆTI Urður Einarsdóttir fékk hryssu í fermingargjöf í fyrra. Öllum að óvörum kastaði merin í síðustu viku. Faðir hennar, Einar Örn Sigurdórsson, segir fjölskylduna ánægða með þennan óvænta glaðning. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Davíð Aðalsteinsson, bóndi á Arnbjargarlæk og móðurafi Urðar, varð fyrstur var við folaldið. „Merin hafði verið á húsi hjá okkur í vetur en úti frá því fyrir páska. Dag einn er mér litið út um gluggann og sé þá að henni fylgir folald. Ég ályktaði strax að hún hlyti að eiga folaldið enda er hún ein á túninu,“ segir Davíð. Hann viðurkennir að atburðurinn hafi komið honum í opna skjöldu, enda hafi hann verið grunlaus um ástand hryssunnar. „Það vissi enginn af því að merin hafði komist í fjörið í Reykjavík. Við erum þó öll mjög kát með þetta og þá sérstaklega fermingarbarnið sjálft.“ Alveg grunlaus um ástand hryssunnar GLAÐNINGUR Litla folaldið kom öllum á óvart, þá sérstaklega eiganda móður þess. MYND/EINAR ÖRN ★★★★ Í TRÚNAÐI EFTIR HÉLÈNE GRÉMILLION D YN A M O R E YK JA VÍ K „Frönsk verðlaunabók frá því í fyrra sem farið hefur sigurför um heiminn og það verðskuldað ... “ – FRIÐRIKA BENÓNÝSDÓTTIR, FRÉTTABLAÐIÐ D YN A M O R E YK JA VÍ K „Hittir man n beint í hjart astað“ – ELLE 2. SÆTI METSÖLULISTI EYMUNDSSON 10.-16. APRÍL. KILJUR - SKÁLDVERK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.