Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 7. maí 2013 | SKOÐUN | 15
Ég hef stundum fengið þá spurn-
ingu hvort einstaklingur sé með
sykursýki ef honum finnst sætindi
og sykur agalega góð og viðkom-
andi borði að eigin mati of mikið af
sætindum. Í þessum ágæta orða-
leik felst auðvitað misskilningur
um eðli vanda þeirra sem glíma
við þennan alvarlega sjúkdóm.
Við heyrum hann oft nefndan í
tengslum við aðra sjúkdóma, sem
áhættuþátt til dæmis fyrir hjarta-
og æðasjúkdómum eða nýrnabil-
un, taugavanda og jafnvel blindu.
Þá er orðið algengt að við tengjum
saman offitu og líkurnar á að þróa
sykursýki, sérstaklega á meðgöngu
og þannig mætti lengi telja. Hann
hlýtur því að vera algengur, ekki
satt?
Það er rétt, sykursýki er eitt
alvarlegasta og jafnframt að verða
eitt algengasta heilsufarsvandamál
í heiminum. Ef við skoðum tölurnar
eru þær sláandi og hræða mann í
raun og veru, vegna þess að meg-
invandi þróunar þessa sjúkdóms
byggir á lífsstílsþáttum og neyslu-
mynstri. Samkvæmt gögnum IDF
(International Diabetes Founda-
tion) er talið að ríflega 370 millj-
ónir manna glími við sjúkdóminn
á heimsvísu og tíðni sjúkdómsins er
áætlað um 8,3% sem stendur. Það
er feiknahá tala og fer vaxandi.
Gögn frá WHO (World Health Org-
anization) áætla að tæplega 200
milljónir manna viti ekki af sjúk-
dómnum, eða um 50%, og því má
gera því skóna að um hálfur millj-
arður manna sé í dag með sykur-
sýki.
Aðeins áfram um tölur áður en
ég útskýri sjúkdóminn. Árið 2012
létust að minnsta kosti 4,8 milljónir
manna af völdum sykursýki og við
eyddum á heimsvísu rúmlega 470
milljörðum dollara það árið í með-
ferð fyrir þá sem eru með slíka
greiningu. Um helmingur þeirra
sem lést var yngri en 60 ára. Þró-
unin á næstu 20 árum sýnir tvöföld-
un þessara talna. Það er því óhætt
að segja að við séum að glíma við
faraldur.
Veikluð starfsemi
En eins og ég kom inn á í upphafi
hefur sykursýki ekki neitt að gera
með neyslu á sykri í þeim skiln-
ingi, heldur er það svo að innkirtla-
starfssemi sykursýkissjúklinga er
veikluð eða biluð og þeim tekst ekki
að vinna úr næringarefnunum sem
við innbyrðum á eðlilegan hátt.
Brisið leikur þarna lykilhlutverk
en ákveðnar frumur í því fram-
leiða insúlín, hormón sem hefur
það verkefni að hjálpa frumum að
taka til sín glúkósa, en einnig að
ýta undir forðasöfnun í lifrinni. Þá
hefur insúlín talsverð áhrif á blóð-
fitu- og próteinefnaskipti okkar
en einnig saltbúskap og gerir það
þannig að einu mikilvægasta horm-
óni líkamans.
Sykursýki sem sjúkdómur er
aftur á móti skilgreindur í tvær
tegundir sem eru nefndar 1 og 2
og svo einnig það sem kalla má
forstig. Þeir sem eru með tegund
1 framleiða ekkert insúlín, grein-
ast yfirleitt ungir og eru á milli
5-10% af öllum tilfellum. Ástæðan
getur verið margvísleg; ættgengi,
umhverfisþættir og veirusjúkdóm-
ar, auk þess sem ástæðan er oft
ekki þekkt. Þeir sem eru með teg-
und 1 þurfa að fá insúlín í sprautu-
formi alla jafna ævilangt. Hinn
hópurinn, sem er margfalt stærri
og fellur undir tegund 2, er sá þar
sem framleiðsla á insúlíni er ekki
nægjanleg, eða nýting þess skert.
Ástæðurnar eru mjög margar en sú
algengasta að talið er byggir á lífs-
stílsvanda; offitu, lélegu mataræði,
lítilli hreyfingu, streitu og sam-
blöndu slíkra þátta. Þó er þekkt að
ákveðin ættlægni er til staðar auk
þess sem ákveðnir sjúkdómar geta
ýtt undir þróun slíkrar sykursýki.
Einkennin geta verið lítil sem
engin um langan tíma, en í flestum
tilvikum verður vart við aukinn
þorsta, þvaglát, hungurtilfinningu,
munnþurrk, þreytu og slappleika,
þyngdartap og einbeitingarskort. Í
versta falli geta komið upp alvarleg
einkenni eins og truflanir á öndun,
kviðverkir, krampar og dá sökum
alvarlegra salt- og sykurtruflana.
Greiningin er einföld í báðum til-
vikum, hún felst í læknisviðtali og
blóðrannsókn sem allir ættu að fara
í með reglubundnu millibili. Með-
ferðin á tegund 2 sykursýki bygg-
ir á lyfjum í töfluformi og jafn-
vel insúlíni í erfiðum tilvikum en
fyrst og fremst í að breyta og bæta
lífsstíl viðkomandi einstaklings
til hins betra í öllum tilvikum og
gefast aldrei upp við það verkefni.
Vanastjórnun og lífsstílsbreyting
er ódýrasta og besta leiðin til að
glíma við þennan tröllvaxna vanda
sem við stöndum frammi fyrir í
aukningu tíðni sykursýki á heims-
vísu. Því má aldrei gleyma!
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Vanastjórnun og
lífsstílsbreyting er
ódýrasta og besta leiðin
til að glíma við þennan
tröllvaxna vanda sem við
stöndum frammi fyrir …
Varúð, sjúkur í sykur
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-1
2
0
2
Fráleit niðurfærsla
Því meira sem ég hugsa um flata
skuldaniðurfærslu Framsóknar,
því meira sýnist hún út í hött.
Ekkert vit er í að nota sameigin-
legt fé okkar til að borga fyrir
þá, sem steyptu sér í rosaskuldir
til að eignast 400 fermetra
húsnæði. Meginhluti flatrar
niðurfærslu fer í að greiða slíkt
óhóf og það er fráleitt. Því miður
er óráðsíufólkið öflugt og liggur á
Framsókn með kröfur sínar. Það
eina, sem hægt er að gera fyrir
þetta fólk, er að gefa því kost á
að skila lyklunum og ganga út
skuldlaust. Lyklaleiðin er sann-
gjarnari en flata niðurfærslan,
sem er á kostnað þeirra, sem
ekki höfðu ráð á að skulda.
http://www.jonas.is/
Jónas Kristjánsson
Bjartir en
þöglir nýliðar
Það er eins og pólitísk umræða
hafi dáið.
Pólitíkusar liggja kannski enn í
þynnku eftir kosningarnar.
Þó er nú á dagskrá sjálf
verkefnaskrá næsta kjörtímabils.
—
Það heyrist t.d. ekkert í Bjartri
framtíð.
Maður hefði haldið að nú væri
bullandi færi fyrir flokkinn sem
lagðist hvað harðast gegn flötum
skuldaniðurfellingum að stíga
fram og útskýra afhverju.
Ekki síst þegar búið er að
gefa út að slík niðurfelling verði
grundvöllur væntanlegrar ríkis-
stjórnar.
Ding ding– á ekkert að mæta
á þing?
http://blog.pressan.is/
Andrés Jónsson
AF NETINU