Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 4
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 FJÁRMÁL Framlög ríkisins til stjórnmála- flokka á árunum 2010 til 2013 nema rúmlega 1,2 milljarði króna. Árlegar greiðslur hafa numið frá 295 til 334 milljóna króna á ári. Þetta kemur fram í yfirliti fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru sam- kvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Fram- lagið fer til stjórnmálasamtaka sem hafa fengið hið minnsta einn mann kjörinn á þing eða náð 2,5% atkvæða. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum. Samfylkingin hefur fengið 375 milljónir á tímabilinu, Vinstri græn 273 milljónir. Sjálf- stæðisflokkur fékk í sinn hlut 298 milljónir og Framsóknarflokkurinn 186 milljónir. Fimmti flokkurinn sem hlaut greiðslur úr ríkissjóði á tímabilinu var Borgarahreyfingin eða 91 milljón. Þegar litið er til greiðslu til stjórnmála- hreyfinga er taka til úrslita nýliðinna kosn- inga kemur í ljós að þrjár hreyfingar náðu 2,5% lágmarkinu án þess að tryggja sér þing- mann; Dögun, Flokkur heimilanna og Lýð- ræðisvaktin. Greiðslur til þeirra verða hátt í 30 milljónir króna, en framlögin koma ekki til greiðslu fyrr en í byrjun næsta árs. - shá Ríkið greiddi stjórnmálaflokkunum um 300 milljónir á ári á kjörtímabilinu: Flokkarnir fengið 1,2 milljarða króna Samfylkingin 375 Sjálfstæðisflokkurinn 298 Vinstri-græn 273 Framsóknarflokkurinn 186 Borgarahreyfingin 91 ➜ Framlög til flokka 2010-2013 Allr tölur eru í milljónum króna VEÐUR Ellefu stiga hita mældist í Skaftafelli í gær en níu stig í Reykja- vík. „Þetta er ágætis hiti en hvort sumarið er komið þori ég ekki að segja. Það gætu komið einhverjar breytilegar áttir með hlýindum en svo kólnar aftur. Svona er þetta bara alltaf í apríl og maí,“ segir Kristín Hermannsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Það hlýnar kannski heldur næstu daga. Verður norðaustan- átt á miðvikudag og norðaustan eða breytileg á fimmtudag. Það ætti því að verða heldur hlýrra í bili. Hitinn gæti farið upp í tólf stig á suðvest- urhorninu. Á föstudag er útlit fyrir að það verði suðlægar áttir um helgina og hiti tvö til sjö stig.“ - kh Búast má við betra veðri: Hiti gæti farið upp í tólf stig LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akra- nesi stöðvaði fyrir skömmu konu við akstur sem reyndist ökurétt- indalaus. Þetta var í þrettánda skiptið sem hún er stöðvuð vegna þessa. Þá stöðvuðu lögreglumenn annan ökumann sem þeir vissu að var sviptur ökuréttindum og stöðvuðu för hans. Prófun á lög- reglustöð benti til að hann væri auk þess undir áhrifum amfeta- míns, metamfetamíns og kanna- bisefna. Læknir var fenginn á lög- reglustöð til að taka blóðprufu sem send var til frekari rannsóknar. - kh Ólögleg Skagakona á ferð: Án ökuréttinda í þrettánda sinn STJÓRNSÝSLA„Sýningar kvikmynda á vegum safnbíós eins og Kvik- myndasafnið rekur geta ekki átt samleið með rekstri leikhúss í sama húsnæði,“ segir í bréfi Erlends Sveinssonar, forstöðumanns Kvik- myndasafns Íslands, vegna ákvörð- unar bæjarráðs Hafnarfjarðar að fela Gaflaraleikhúsinu rekstur Bæjar bíós. Í bréfi Erlends segir að verði leik- húsi falinn rekstur hússins verði kvikmyndasýningum hætt. „Mun safnið þá eðli málsins samkvæmt í kjölfarið taka niður sýningarað- stöðu sína, sýningarvélar, mynd- varpa, sýningartjald, öryggiskerfi og fleira. Jafnframt er eðlilegt að safnið kanni rétt sinn vegna kostn- aðar sem það hefur lagt út í,“ skrif- ar Erlendur. Þrátt fyrir þessa skýru afstöðu Kvikmyndasafns Íslands samþykkti bæjarráðið að fela bæjarstjóra að undirbúa samning við Gaflara- leikhúsið um umsjón og rekstur Bæjarbíós og einnig samninga við Leikfélag Hafnarfjarðar og Kvik- myndasafn Íslands um afnot af hús- næðinu. „Bæjarráð leggur áherslu á að við útfærslu nauðsynlegra end- urbóta á húsnæðinu verði eftir fremsta megni tekið tillit til þarfa Kvikmyndasafnsins vegna sýn- ingarhalds þess í húsinu og hugað verði að því að vernda það sem enn telst upprunalegt og hefur sérstakt varðveislugildi,“ var bókað í bæjar- ráðinu. Erlendur segist í samtali við Fréttablaðið ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu. Í fyrrgreindu bréfi til bæjaryfirvalda segir hann málið mundu verða óheillaspor fyrir kvikmyndamenningu þjóð- arinnar og að kvikmyndasýningar leggjast af í Hafnarfirði til fram- búðar. Kvikmyndasafnið hafi flutt í Hafnarfjörð vegna Bæjarbíós. „Sá flutningur var ekki óum- deildur og ráðuneyti menningar- og menntamála hefur orðið að verja þá ákvörðun allt til þessa dags vegna viðvarandi kröfu um að starfsemin eigi fremur heima í miðbæ Reykja- víkur en í Hafnarfirði,“ segir í bréfi forstöðumannsins sem bendir á sögulega sérstöðu Bæjarbíós. „Það er hiklaust talið einstakt í sinni röð, ekki aðeins á Íslandi held- ur einnig á Norðurlöndum og þótt víðar væri leitað,“ segir Erlendur, sem einnig minnir á að ríkið hafi lagt tugmilljónir króna í að færa bíóið til upprunalegs horfs. „Með þeirri endurgerð og virðingu fyrir sögu hússins hefur því verið bjarg- að frá þeirri niðurlægingu sem það var komið í eftir margra ára leik- hússtarfsemi.“ gar@frettabladid.is 206,8504 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,79 116,35 180,21 181,09 151,7 152,54 20,347 20,467 19,877 19,995 17,715 17,819 1,1668 1,1736 174,65 175,69 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 06.05.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Schwinn Lil sta rdust Barnahjól 28.995 kr. 16” stráka og stelpustell ERLENDUR SVEINSSON Forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands segir ómetanlegu menningarlegu djásni verða umbylt verði rekstur Bæjarbíós í Hafnarfirði falinn leikhúsi. Safnið muni þá hverfa úr bænum með allar sýningarvélar sínar. SANMSETT MYND ÁRÉTTING Myndin sem fylgdi frétt í blaði gærdagsins um tilraunaverkefni upp- lýsingaveitunnar Já var ekki af bíl á vegum fyrirtækisins líkt og mátti skilja af myndatexta. Kvikmyndasafnið farið fái Gaflaraleikhúsið Bæjarbíó Bæjarstjórnin í Hafnarfirði hyggst fela Gaflaraleikhúsinu rekstur Bæjarbíós sem Kvikmyndasafn Íslands leigir. Forstöðumaður safnsins segir það munu taka niður sýningarvélarnar, hverfa úr Hafnarfirði og leita réttar síns. Ráðuneyti menn- ingar- og menntamála hefur orðið að verja þá ákvörðun allt til þessa dags vegna viðvarandi kröfu um að starfsemin eigi fremur heima í miðbæ Reykjavíkur en í Hafnarfirði.“ Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands. Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur Hæg eða fremur hæg breytileg átt. HELDUR HLÝNAR um landið norðanvert næstu daga þó ekki séu hlýindi í kortunum. Á morgun og fimmtudag verður nokkuð bjart, síst þó á Austurlandi, en á föstudag snýst í sunnanátt með dálítilli vætu. 2° 5 m/s 5° 4 m/s 8° 4 m/s 8° 10 m/s Á morgun Strekkingur með SA-strönd annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 8° 6° 8° 2° 4° Alicante Aþena Basel 26° 21° 22° Berlín Billund Frankfurt 24° 19° 22° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 21° 17° 17° Las Palmas London Mallorca 25° 20° 23° New York Orlando Ósló 20° 26° 21° París San Francisco Stokkhólmur 21° 18° 19° 8° 4 m/s 6° 8 m/s 6° 4 m/s 3° 6 m/s 6° 3 m/s 6° 4 m/s 2° 3 m/s 9° 4° 9° 6° 6°

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.