Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 14
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 D ómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Ástæðan er sú að leikir karlanna „eru hraðari, það eru fleiri atvik sem geta orkað tvímælis og það þýðir að gerðar eru meiri kröfur til dómaranna“ sagði Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri Knatt- spyrnusambands Íslands, í útvarpsþættinum Í bítið á Bylgjunni í gærmorgun. Hann benti á að ekki væri hægt að tala um kynjamisrétti í þessu sambandi þar sem dómarar í efstu deildum væru undantekningalítið karl- kyns. Þórir bætti um betur og afsakaði launamuninn með því að hið sama gilti þegar leikur í Meistaradeild Evrópu væri borinn saman við neðrideildarleik í Noregi. Leikurinn væri hrað- ari, erfiðleikastigið hærra og launagreiðslur hærri eftir því. Það var og. Íslensk kvennaknattspyrna hefur á undanförnum árum verið flaggskipið í íslenskri knattspyrnuútgerð og landslið kvenna stendur landsliði karlanna langt framar á alþjóðlegum skölum. Heldur eru þetta því kaldar kveðjur frá forráðamönnum KSÍ sem samkvæmt þessu meta framlag kvennanna til jafns við neðrideildarlið í Noregi á meðan karlalandsliðið er lagt að jöfnu við bestu lið Evrópu. Eða telur framkvæmdastjórinn að landslið kvenna sé samansett af konum sem ekki spila í efstu deild kvenna hér á landi? Að þar spili einhverjar ofurkonur sem sprottið hafi upp úr engu? Sennilegra er að honum þyki kvennaknattspyrna almennt bara vera eitthvert dútl sem líkja má við það sem honum þykir greinilega vera botninn í knattspyrnuheiminum: neðrideild- arlið í Noregi. Fordómarnir sem í þessum orðum birtast ættu svo sem ekki að koma neinum sem fylgst hefur með íslenskri knattspyrnu á óvart. Bæði forkólfar KSÍ og íþróttafréttamenn, sem flestir eru karlkyns, hafa talað niður til „stelpnanna okkar“ í gegnum árin þrátt fyrir frábæran árangur þeirra á alþjóðlegum mótum. Undir- tónninn er sá að knattspyrna sé karlmannaíþrótt og engan veginn hægt að taka sparkandi konur alvarlega. Þær standi sig auðvitað vel greyin á sínum krúttlegu forsendum en frammistaða þeirra standist engan samanburð við getu karlanna. Það versta er að þessir fordómar eru svo inngrónir að fram- kvæmdastjóri KSÍ virðist ekki sjá neitt athugavert við þessa samlíkingu. Honum er í mun að ekki sé hægt að ásaka sambandið um kynjamisrétti í launagreiðslum og bendir réttilega á að þar sem dómararnir séu langflestir karlkyns eigi sú skilgreining ekki við. Kvenfyrirlitningin sem í orðum hans birtist virðist hins vegar algjörlega fara fram hjá honum. Kvennaleikir eru auðveldari fyrir dómarana þar sem þeir eru hægari og færri atvik orka tvímælis segir hann. Gaman væri að sjá einhverja statistík sem styður þessa fullyrðingu eða liggur þarna að baki einungis sú viðtekna skoðun að konur séu stilltari, hlíti reglum betur og séu almennt með minni óskunda en karlar? Lifir mýtan um góðu stelpuna enn svona góðu lífi innan stjórnar KSÍ? Er þá ekki löngu tímabært að stokka upp í stjórninni og kynna meðlimi hennar fyrir 21. öldinni? Kvenfyrirlitning í fjórða veldi: Neðrideildar- leikur í Noregi Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Sumarið er gleðitími fyrir margar fjöl- skyldur og nú þegar hafa margir skipu- lagt sumarið, hvert á að fara og hvað á gera. Fríin snúast oftast um að gera eitt- hvað saman, upplifa eitthvað nýtt og öðru- vísi og eignast sameiginlegar minningar sem er einmitt svo mikilvægt í öllum fjöl- skyldum. Hjá þeim fjölskyldum sem standa höll- um fæti getur þessi tími valdið kvíða. Er hægt að verða við óskum barna sem svo gjarnan vilja upplifa skemmtilega hluti með vinum og fjölskyldu? Ósk um sumar- búðir, hjól, hestanámskeið eða annað sem vinirnir eru að gera, getur verið ókleifur múr fyrir margar fjölskyldur. Hvað þá að geta gert eitthvað saman sem fjölskylda, hvort sem það er að fara í útilegu eða í sumarbústað. Sumarið getur því verið erf- iður tími hjá þeim sem búa við fátækt. Oft er eina lausnin að börnin fái að fara eða gera eitthvað en staðan leyfir ekki að fjöl- skyldan í heild upplifi nýja hluti. Augljóst er að börn og foreldar sem búa við slíkar aðstæður búa ekki við sömu lífsgæði og aðrar fjölskyldur landsins. Hvað gerum við þá? Hjálparstarf kirkjunnar hefur undanfar- in ár í samstarfi við Velferðarsjóð barna aðstoðað efnaminni fjölskyldur við að verða við óskum barna sinna. Vænting- arnar eru margvíslegar, oft í takt við hvað vinir barnanna eru að gera; fara í sumar- búðir, fara á línuskauta eða á siglinga- námskeið. Við höfum valið að hlusta á óskir hvers barns og fjölskyldu þess í stað þess að kaupa t.d. sumarbúðir fyrir alla. Það er mikilvægt fyrir börn og unglinga að geta verið með vinum og deilt upp- lifunum með þeim, jákvæð sameiginleg upplifun lifir lengi og styrkir félagsauð hvers barns. Við vildum gjarnan geta gert meira í að styðja fjölskylduna í að gera hluti saman, t.d. með því að fara í útilegu eða sumarbústaðaferð, en til þess þarf aukið fjármagn. Fjármagn sem er vel varið og skilar góðum arði OG gleðilegu sumri fyrir fleiri. Ert þú aflögufær? Þá getur þú greitt valgreiðslu í heimabankan- um þínum eða haft samband við Hjálpar- starfið. Er sumarið gleðitími fyrir alla? HJÁLPARSTARF Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar ➜ Hjálparstarf kirkjunnar hefur undanfarin ár í samstarfi við Vel- ferðarsjóð barna aðstoðað efna- minni fjölskyldur við að verða við óskum barna sinna. www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu „Snjöll og bráðskemmtileg spennusaga.“ B R Y N D Í S L O F T S D Ó T T I R B Ó K S A L I Sjónarsviptir Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hlaut ekki brautargengi í nýafstöðn- um þingkosningum, en leggur fram mat á stöðunni í stjórnarmyndun á bloggi sinu. Hann segist vona að „Krónustjórnin“ muni leggja áherslu á að halda krónunni. Jón fjallar í stuttu máli um fyrrverandi félaga sína í fráfarandi ríkisstjórn. „Svika- söng“ forsætisráðherra og hennar „heimiliskatta“ um krónuna, sem og „smákattanna“ í for- ystu aðila vinnumarkaðarins, í gjaldmiðilsmálum mætti jafnvel segja að varðaði við „drottinssvik“. Brotthvarf Jóns Bjarnasonar af þingi verður sannarlega áfall fyrir upplýsta og hófstillta umræðu á Alþingi. Hrært í pottunum Fyrrverandi samherji Jóns í ríkisstjórn, Össur Skarphéðinsson, fráfarandi utanríkisráðherra, hefur mundað pennann svo eftir hefur verið tekið síðustu daga og vikur og nýtt hann til að hræra í hinum pólitísku pottum sem kraumar duglega í. Á meðan forsvars- menn væntanlegrar stjórnarandstöðu halda sig til hlés atast Össur og segir meðal annars að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi „brutt tauga- kerfi“ Sjálfstæðisflokksins svo flokkurinn minni helst á borðtusku og forsvarsmenn hans séu bæði tilbúnir til að afsala sér forsætisráð- herrastólnum og ganga að skulda- lækkunarhugmyndum Framsóknar. Enn brosa borgarbúar Síðustu misserin hafa sjálfstæðis- menn í Reykjavík reynt að hamra á því að brandarinn hjá Besta flokknum væri búinn. Í könnun sem var kynnt í gær kom hins vegar fram að tæpur þriðjungur borgarbúa myndi ljá Jóni Gnarr og félögum atkvæði sitt, rétt undir kjörfylgi flokksins. Reykvíkingar virðast því ennþá vera til í gamanið. thorgils@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.