Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 37
ÞRIÐJUDAGUR 7. maí 2013 | MENNING | 25
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 07. MAÍ 2013
Tónleikar
20.00 Sigurgeir Agnarsson, sellóleikari
og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó-
leikari koma fram á tónleikaröðinni
Þriðjudagsklassík í Garðabæ sem haldin
er í Tónlistarskóla Garðabæjar.
Fundir
19.30 Kristín Arnþórsdóttir bókasafns-
fræðingur leiðir umræður um Ósjálfrátt
eftir Auði Jónsdóttur innan bókmennta-
félagsins, sem er opinn félagsskapur
bókaáhugamanna sem hittist reglulega
á Bókasafni Seltjarnarness.
20.00 Félagsvist spiluð hjá Félagi eldri
borgara í Reykjavík Stangarhyl 4.
Tónlist
20.30 Kvintett danska kontrabassaleik-
arans Richard G. Andersson og íslenska
saxófónleikarns Sigurðar Flosasonar
kemur fram á djasskvöldi á Kexi.
21.00 Kammerhópurinn Stilla heldur
tónleika á Rósenberg.
Fyrirlestrar
12.00 Randi Benedikte Brodersen, lekt-
or í dönsku máli við Háskóla Íslands,
heldur fyrirlesturinn Sprogmixere og
purister. Sprogbrug, sprogholdninger
og identitet blandt danskere i Norge. í
fyrirlestrasal Norræna hússins.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
BÆKUR ★★★ ★★
Úlfshjarta
Stefán Máni
JPV-ÚTGÁFA
Stefán Máni rær á ný mið í nýj-
ustu bók sinni Úlfshjarta. Bókin
er flokkuð sem „young-adult“
bók en einfaldara er nú að
flokka hana sem unglingabók,
enda markhópurinn 12 til 15 ára
unglingar, ef mér skjátlast ekki.
Í anda þeirra bóka sem vin-
sælastar hafa verið fyrir þennan
aldurshóp er Úlfshjarta með
yfirnáttúrulegu ívafi, aðalsögu-
hetjan Alexander reynist vera
varúlfur og fjallar sagan um þau
átök sem því fylgja og leiðina til
bata með aðstoð óvirkra varúlfa.
Stefnuskrá óvirkra varúlfa er
sótt þráðbeint í 12 spora kerfi
AA-samtakanna að öðru leyti
en því að sporin eru þrettán
í tilfelli varúlfanna og erfða-
venjurnar sömuleiðis. Freist-
andi er því að lesa söguna sem
varnaðar orð til unglinganna um
að varast áfengi og eiturlyf sem
breyta karakternum og gera fólk
óábyrgt gerða sinna. Verst bara
að unglingarnir fatta þau skila-
boð sennilega ekki.
Þótt bókin sé með
þessum formerkjum
er hér árgangs Stefán
Máni á ferð: átök pers-
óna við sjálfar sig og
þá sem standa þeim
næst, átök milli góðs
og ills alias undir-
heimalýðs og þeirra
sem feta þrönga stíg-
inn, yfirnáttúrulegir
kraftar, glæpir og
syndagjöld.
Auk Alexanders
eru aðalpersónur
bókarinnar stelpan
sem hann er skotinn í, Védís,
vondi varúlfurinn Rúnar sem
þó á sér málsbætur, góði óvirki
varúlfurinn Sæmundur, sem
leiðbeinir Alexander um leiðina
út úr varúlfamennskunni, og
drulludelinn Eddi feiti sem virð-
ist vera rotinn frá grunni. Allar
þessar persónur þekkjum við úr
fyrri bókum Stefáns Mána nema
unglingana tvo en þó má með
góðum vilja lesa Alexander sem
yngri útgáfu af Herði lögreglu-
manni sem við þekkjum úr nýj-
ustu glæpasögum SM. Allar eru
þær vel dregnar og sannfærandi
þótt lesandi eigi dálítið erfitt
með að kyngja því að Alexander
sé nítján ára, eins barnslegur og
óreyndur og hann er.
Védís er hins vegar
sterkasta kvenpers-
óna sem SM hefur
skapað og óskandi að
hann skrifaði fleiri
bækur með hana í for-
grunni.
Sagan er vel sögð
og mátulega spenn-
andi, ofbeldi og kynlíf
í hæfilegum skömmt-
um og hin aldagamla
barátta þeirra sem eru
á skjön við samfélagið
skemmtilega sett fram.
Ofan í kaupið er hér heilmikill
fróðleikur um goðsöguna um
varúlfa í gegnum aldirnar þótt
atriðið frá Noregi á þrettándu
öld hefði gjarnan mátt missa
sig.
Bókin er prýðilega stíluð og á
köflum er textinn með því besta
sem Stefán Máni hefur skrifað.
Það er ekkert slegið af kröfun-
um þótt ætlaður lesendahópur
sé yngri en sá sem hann hefur
áður skrifað fyrir.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Hressileg og vel skri-
fuð unglingasaga með sannferðugum
persónum og skemmtilegri útfærslu á
átökunum við fíkniefnaneyslu.
13 spora kerfi fyrir varúlfa
2010 Grímuverðlaunin fyrir leikmyndina í Fjölskyldunni
2008 Grímuverðlaunin fyrir Hamskiptin (tilnefndur til Evening Standard
Theatre Awards fyrir sömu sýningu 2006)
2006 Grímuverðlaunin fyrir Woyzeck og Afmælisveisluna
Styttum prýddur ferill Barkar
FJÖLSKYLDAN
HAMSKIPTI
AFMÆLISVEISLAN
WOYZECK
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
7
3
6
KEX klikkar ekki
Pétur Marteins og Gunnar kokkur á KEX taka á móti þúsundum erlendra og innlendra ferðalanga í
hverjum mánuði. Sumir ferðast yfir hálfan hnöttinn og vantar afslappaða gistingu meðan aðrir koma
gangandi í mat, drykk eða á tónleika. Það eru alltaf hundrað hlutir í gangi á KEX og þess vegna þurfa
kerfin að vera traust og örugg.
Fyrirtæki
Með Símavist er fyrirtækið
í sterkara sambandi