Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 1
SAMFÉLAGSMÁL „Þetta er síðasta
sort,“ segir Jóhann Karl Þóris-
son, aðalvarðstjóri lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Sjö úti-
gangsmenn gistu fangageymslur
í fyrrinótt að eigin ósk því þeir
höfðu ekki í önnur hús að venda.
Stór hluti mannanna er af erlend-
um uppruna. Vegna uppruna síns
eiga þeir ekki kost á að nota gisti-
skýlin í borginni því til þess þurfa
skjólstæðingar að hafa skráð lög-
heimili í Reykjavík.
„Þeir fá enga sérmeðferð held-
ur er bara skellt í lás á eftir þeim
eins og öðrum föngum. Þeir þurfa
því að fá sérstakt leyfi til að pissa
eins og gengur um aðra svo banka
þeir bara á hurðina að morgni
þegar þeir vilja komast út og er
þá sleppt. Þetta er mjög sorglegur
veruleiki,“ segir Jóhann.
Reykjavíkurborg hyggst skoða
mál erlendu mannanna sérstak-
lega. „Þetta er nýr vandi sem við
blasir,“ segir Elfa Björk Ellerts-
dóttir, upplýsingafulltrúi velferða-
sviðs borgarinnar.
„Það er hér hópur erlendra
manna á vergangi sem varð fyrst
sýnilegur fyrir einhverri alvöru í
fyrravor. Þetta er því miður ekki
í fyrsta sinn sem þeir sækja í lög-
reglustöðina í ár. En þangað hafa
þeir sótt nokkrum sinnum frá því
í mars. Okkur þykir sannarlega
kominn tími til að skoða þeirra
mál sérstaklega,“ segir Elva.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins eru mennirnir sem um
ræðir í kringum tíu. Þeir hafast
við í miðbænum á daginn eða nýta
sér dagsetur á Hólmaslóð. Hjálp-
ræðisherinn er lokaður á sumrin
og nýttur sem gistiheimili fyrir
ferðamenn. Mennirnir eru því með
öllu úrræðalausir. - mlþ
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
HREYFINGARLEYSIKyrrseta hefur slæm áhrif á heilsu. Nýleg bresk könn-
un leiddi í ljós að fjórðungur fullorðinna einstaklinga
gengur í aðeins eina klukkustund á viku. 43 prósent til
viðbótar ganga í minna en tvær klukkustundir á viku.Þurrktæki
Er rakastigið of hátt?
www.ishusid.isS: 566 6000
Stjórnaðu rakastiginu,dragðu úr líkum á myglusvepp
Skipholti 29b • S. 551 0770
15% afsláttur af sumarvörum
Boston
leður
Svart, Hvítt st. 35-48Rautt st. 36-42Blátt st. 36-47
Reynsluaostur Nissan LeafMclaren P1 að seljast uppAlfa Romeo jepplingur
Honda og Mazda auka hagnað
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2013
B LAR
2 SÉRBLÖÐ
Fólk | Bílar
Sími: 512 5000
7. maí 2013
106. tölublað 13. árgangur
Grípa þarf til aðgerða
Ekki dugar lengur að þagga niður
vandann sem ríkir í fataiðnaði í
Bangladess heldur þurfa vestræn
fyrirtæki að grípa til raunverulegra
aðgerða. Þetta segja sérfræðingar í
almannatengslum. 12
Fornskógurinn í Drumbabót Nú
er sannað að birkiskógur í Fljótshlíð
eyddist í hamfaraflóði veturinn 822
til 823. 2
Neita sök Lýður Guðmundsson og
Bjarnfreður Ólafsson segjast ekki
hafa gert neitt rangt við 50 milljarða
hlutafjáraukningu í Existu. 6
Utanríkismál vegalítil Sagnfræð-
ingur telur mikilvægi utanríkismála í
myndun ríkisstjórnar veigaminni en
oft áður. 10
Þetta er mjög sorg-
legur veruleiki.“
Jóhann Karl Þórisson,
aðalvarðstjóri
MENNING Brynja Þorgeirsdóttir
tekur við sem ritstjóri Djöflaeyjunnar
á RÚV. 34
SPORT Rúnar Kárason og félagar hjá
Grosswallstadt hafa átt í vandræðum
með að fá greidd laun í vetur. 30
10, 30 og 100 stk pakkning fæst
án lyfseðils í næsta apóteki
„Snjöll og
bráðskemmtileg
spennusaga.“
B R Y N D Í S L O F T S D Ó T T I R
B Ó K S A L I
www.forlagid.is
SKOÐUN Björn Guðmundsson,
íbúi í Norðlingaholti, skrifar um
skógræktar öfgar í Elliðaárdal. 16
MENNING „Þetta var þrælgaman. Ég sat og
glotti við tönn megnið af tímanum,“ segir
Finnur Friðriksson, dósent við kennaradeild
Háskólans á Akureyri. Hann komst að áhuga-
verðum niðurstöðum þegar hann rannsak-
aði muninn á ummælum og hegðun karla og
kvenna á einni Facebook-síðu yfir einn sólar-
hring. Hann skoðaði tvö hundruð stöðuupp-
færslur frá 113 mismunandi einstaklingum
og 516 ummæli frá 360 einstaklingum á síð-
unni.
Finnur flokkaði efnið á Facebook í sam-
félags-, stjórnmála- og hversdagsflokka.
Samkvæmt niðurstöðu hans setja konur tvö-
falt oftar en karlar inn hversdags-stöðuupp-
færslur, til dæmis ef þær hafa skroppið í bíl-
túr á Þingvöll, sett inn myndir af börnunum,
eða svokallaða „montstatusa“ um börnin sín.
Í samfélagsflokki tjáðu konurnar sig um föt
eða tísku en karlar ræddu íþróttir og skelltu
inn bröndunum. Karlar tjáðu sig jafn-
framt mun meira um tónlist eða
kvikmyndir en konur. Jafnræði var á
milli kynjanna þegar stjórnmálaum-
ræða var annars vegar.
Á Facebook virtust karlar tjá sig
að langmestu leyti um stöðuupp-
færslur hjá öðrum körlum og konur
gerðu það sama hjá öðrum konum, eða
í um 75% tilfella í báðum tilvikum.
- fb / sjá síðu 34
Rannsakaði muninn á ummælum og hegðun karla og kvenna á Facebook:
Konur eru montnari á Facebook
RANNSÓKN Finnur Friðriksson
dósent skoðaði tvö hundruð
stöðuuppfærslur frá 113 mis-
munandi einstaklingum á
Facebook.
STJÓRNSÝSLA Forstöðumaður
Kvikmyndasafns Íslands segir
safnið munu hverfa frá Hafnar-
firði og kvikmyndasýningar í
bænum leggjast
af verði Gafl-
araleikhúsinu
falinn rekstur
Bæjarbíós.
Bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði
vilja að Gafl-
araleikhúsið
taki við rekstri
Bæjarbíós og að
Kvikmyndasafnið verði þar líka.
Forstöðumaðurinn segir það ekki
ganga. Kvikmyndasafnið hafi
flust í Hafnarfjörð vegna Bæjar-
bíós. Safnið muni leita réttar síns
vegna tugmilljóna sem fóru í end-
urgerð hússins sem hafi bjargað
því „frá þeirri niðurlægingu sem
það var komið í eftir margra ára
leikhússtarfsemi“. - gar
Fararsnið á Kvikmyndasafni:
Segja ófært að
deila BæjarbíóiErlendir ógæfumenn
gista hjá lögreglunni
Hópur erlendra útigangsmanna hefur engan næturstað og leitar því á náðir lög-
reglu til að geta hallað höfði sínu. Þeir mega ekki sækja gistiskýlin nema hafa
skráð lögheimili í Reykjavík. „Sorglegur veruleiki,“ segir aðalvarðstjóri.
Bolungarvík 2° NA 5
Akureyri 6° A 3
Egilsstaðir 6° A 4
Kirkjubæjarkl. 8° SA 4
Reykjavík 8° NA 4
Rigning með köflum eða slydda
sunnan- og austanlands en bjart með
köflum norðaustan til. Strekkingur allra
syðst annars fremur hægur vindur. 4
SAMGÖNGUR „Isavia ohf. fer
vinsamlega fram á að notkun
nafnsins Leifsstöð verði hætt í
fréttaflutningi þegar átt er við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar en
þess í stað notað fullt nafn flug-
stöðvarinnar, styttingu þess
„FLE“, Keflavíkurflugvöllur eða
flugstöðin á Keflavíkurflugvelli
eftir því sem best þykir henta
hverju sinni,“ segir í orðsendingu
frá Isavia.
Vísað er til þess að Leifsstöð
sé skráð firmanafn óskylds aðila.
Því sé enginn réttur til notkunar
nafnsins í tengslum við flugstöð-
ina.
„Orðið virðist á hinn bóginn
allmikið notað í daglegu tali fólks
og stundum á opinberum vett-
vangi, hugsanlega til styttingar
í einhverjum tilvikum eða hrein-
lega af vana en það réttlætir ekki
notkunina á opinberum vett-
vangi,“ segir Isavia. - gar
Misskilningur leiðréttur:
Leifsstöð heitir
ekki Leifsstöð
ERLENDUR
SVEINSSON
ÍSLANDSMEISTARAR DAG EFTIR DAG Karla- og kvennalið Fram urðu Íslandsmeistarar í handbolta tvo daga í röð.
Stelpurnar unnu á sunnudaginn og strákarnir fylgdu því síðan eftir með því að vinna titilinn í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM, VALLI