Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 40
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28
TÓNLIST ★★ ★★★
Grúska Babúska
Grúska Babúska
SYNTHADELIA RECORDS
Grúska Babúska er
fyrsta plata samnefndr-
ar sveitar sem skipuð
er þeim Hörpu Fönn
Sigurjónsdóttur, Arn-
dísi A. K. Gunnarsdótt-
ur, Guðrúnu Birnu La
Sage de Fontenay og Dísu Hreið-
ars. Umbúðirnar eru að sönnu
frumlegar og glæsilegar, usb-lyk-
ill í líki babúsku, en innihaldið öllu
misjafnara að gæðum.
Á köflum gengur blandan af
þjóðlaga- og rafpoppi mjög vel
upp hjá Grúsku Babúsku. Þess
ber helst merki í fyrstu tveimur
lögunum (af sex, því í raun er um
stuttskífu að ræða), Slagaranum
og Daradada. Bæði eru stórgóð,
melódísk og nánast dáleiðandi.
Þessar lagasmíðar henta fjöl-
skrúðugum hljóðfæraleiknum og
vel útfærðum röddununum vel, en
útsetningar þeirra eru líka hráar
og skemmtilega á skjön við flest-
ar viðteknar reglur. Þá sigla Burg
og Snilldarlag (hið fyrra nokkurs
konar skringileg afbökun
á Brennið þið vitar og
það síðara eftir fiftís-
uppskrift) gremjulega
lygnan sjó eftir lofandi
byrjun.
Meðlimir Grúsku
Babúsku skammast
sín ekki fyrir að setja
krúttheit í öndvegi (einn
þeirra lét hafa eftir sér í við-
tali að tónlist sveitarinnar mætti
kannski helst lýsa sem „krúttlegri
og krípí“), en öllu má nú ofgera.
Miðaldakirkja og Spiladósarvals
eru svo hreinlega svo ofboðs-
lega krúttleg lög, með tilheyrandi
barnalegum söng og banal texta-
gerð, að hlustun á þau framkall-
ar pirringsviðbrögð hjá undirrit-
uðum. Á svo stuttri skífu kemur
slíkt harkalega niður á heildar-
upplifuninni.
Að því sögðu er ljóst að Grúsku
Babúsku-meðlimir luma á góðum
hugmyndum og útfærslum. Von-
andi verður næsta (stóra?) plata
markvissari. Kjartan Guðmundsson
NIÐURSTAÐA: Kaflaskiptur frum-
burður en nokkur lög lofa virkilega
góðu.
Kaflaskipt Babúsku-frumraun
GRÚSKA BABÚSKA „Á köflum gengur
blandan af þjóðlaga- og rafpoppi mjög
vel upp hjá Grúsku Babúsku.“
Von er á 20 til 25 erlendum leikstjór-
um og fólki úr kvikmyndabransan-
um til Íslands á kvikmyndahátíðina
Reykjavík Shorts & Docs sem hefst á
fimmtudaginn. Meðal annars koma
hingað blaðamenn frá Screen Inter-
national og Indie Wire en blaðamað-
ur Indie Wire starfar einnig fyrir
kvikmyndahátíðina Sundance.
Kim Longinotto, ein þekktasta
heimildarmyndagerðarkona Breta
og leikstjóri Salma, kemur hingað til
lands og einnig James Moore, leik-
stjóri opnunarmyndar hátíðarinnar,
Mission to Lars.
Helstu sýningarflokkar hátíðar-
innar eru pólskar stuttmyndir, þýsk-
ar stuttmyndir, stutt- og heimildar-
myndir um málefni lesbía, homma,
tvíkynhneigðra og transfólks og loks
náttúra og útivist.
Sérstakur flokkur tileinkaður
íslenskum konum í kvikmyndagerð
verður einnig á hátíðinni. Um er
að ræða nýjar og nýlegar stutt- og
heimildarmyndir og tónlistarmynd-
bönd í leikstjórn kvenna. Nánari
upplýsingar um hátíðina má finna á
Shortsdocsfest.com.
Erlendir leikstjórar til Íslands
Hópur erlendra leikstjóra sækir kvikmyndahátíðina Reykjavík Shorts & Docs.
MISSION TO LARS Opnunarmynd hátíðarinnar er MIsson to lars.
Leikarinn Josh Duhamel varð fyrir miklum vonbrigðum með nektar-
strönd sem hann heimsótti. Á sínum yngri árum fór hann í bakpoka-
ferðalag um Evrópu með vini sínum og varð mjög spenntur þegar hann
rakst á nektarströnd.
„Það eftirminnilegasta við ferðina var þegar við fórum á ítalska nekt-
arströnd. Við héldum að þar yrði hellingur af sætum stelpum en þar var
í staðinn fullt af nöktum, gömlum körlum,“ sagði Duhamel. „Við áttum
eiginlega engan pening á þessu ferðalagi en vínið var ódýrara en vatnið
á ítölsku rivíerunni. Ég nýtti mér það til fullnustu.“
Duhamel er kvæntur söngkonunni Fergie og eiga þau von á sínu fyrsta
barni.
Karlar á nektarströnd
Josh Duhamel varð fyrir miklum vonbrigðum.
DUHAMEL Leikarinn varð fyrir miklum
vonbrigðum á ítalskri nektarströnd.
➜ Stærstu myndirnar verða sýndar í Bíói Paradís. Einnig verða
myndir sýndar á Kexi Hosteli og er ókeypis inn á þær.
IRON MAN 3 3D 5.20, 8, 10.10, 10.40(P)
LATIBÆR 6
G.I. JOE 2 3D 8
OBLIVION 5.30, 8
SCARY MOVIE 5 10.30
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
Empire Hollywood reporter
T.K. - Kvikmyndir.is H.V.A - FBL
5%
-H.S., MBL
G.H.J., RÚV
-H.V.A., FBL
“FÍNASTI FUGL”
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
EVIL DEAD KL. 8 - 10 14
FALSKUR FUGL KL. 6 12 / THE CALL KL. 10 16
SCARY MOVIE 5 KL. 8 14
LATIBÆR KL. 6 L
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
EVIL DEAD LÚXUS KL. 8 - 10.10 18
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
LATIBÆR KL. 4 L
FALSKUR FUGL KL. 6 14
SCARY MOVIE 5 KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 8 - 10.40 12
OBLIVION LÚXUS KL. 5.20 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 2D KL. 3.30 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.30 L
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
PASSION KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE PLACE BEYOND KL. 6 - 9 12
THE CALL KL. 10.10 16
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
LATIBÆR KL. 6 L
IN MEMORIAM? (L) 18:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50, 20:00
THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 20:00, 22:10
ON THE ROAD (L) 20:00, 22:20
DÁVALDURINN (16) 22:10
SLÓ Í GEGN Á ÞÝSKUM
KVIKMYNDADÖGUM
EFTIR
ÓMAR RAGNARSSON
IN MEMORIAM
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ: 950 KR MIÐINN
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
H.S. - MBL
T.K., KVIKMYNDIR.IS
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ