Fréttablaðið - 07.05.2013, Blaðsíða 36
7. maí 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24MENNING
„Þetta kom skemmtilega á óvart, en það er
víst óvenjulegt að Reumert-verðlaunin falli
útlendingi í skaut,“ segir Börkur Jónsson
leikmyndahönnuður en leikmynd hans í sýn-
ingunni Bastarðar var valin leikmynd ársins
á Reumert-hátíðinni, leiklistarverðlaunahá-
tíð Dana, á sunnudagskvöld.
Bastarðar er sam-
starfsverkefni Vestur-
ports, Borgarleikhússins,
Malmö Stadtsteater og
Får302 í Kaupmannahöfn.
Forvinna sýningarinnar
var unnin af alþjóðlegum
hópi á Íslandi í vor og lauk
með tveimur forsýningum
á Listahátíð og var verkið
svo sýnt í Kaupmannahöfn
og Malmö, áður en það fór í reglulegar sýn-
ingar á Stóra sviði Borgarleikhússins fyrr
á leikárinu.
Leikmynd Barkar var að sönnu stórbrot-
in; áhorfendur sátu í hring í kringum skógi
vaxið svið, yfir því gnæfði málmgrind og á
miðju sviðinu var djúpur hylur.
„Þetta er að mörgu leyti sérstök leik-
mynd,“ segir Börkur, „mjög stór og kostaði
mikla handavinnu. Hún umlykur áhorfendur
og fyllir þannig vitin og sjónsviðið; það sitja
allir inn í skóginum sem verkið gerist í. Svo
var hún sýnd í tjaldi áður en við uppfærðum
hana fyrir Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu
og það var líka mjög spennandi og tæknilega
krefjandi.“ Börkur segist þó ekki geta metið
hvort þetta sé hans best heppnaða leikmynd
til þessa. „Hver leikmynd er utan um ákveð-
ið verkefni og það er mjög erfitt að taka hana
úr því samhengi og bera þær saman.“
Börkur hefur um nokkurt skeið verið í
hópi fremstu leikmyndahönnuða landsins
og unnið mikið með Vesturporti, þar sem
umgjörðin skiptir ekki síst máli. Börkur
segir það þó aldrei vera markmiðið að slá
sér við á milli sýninga.
„Maður hugsar bara hvert verkefni fyrir
sig, það verður að vera þannig. Maður má
ekki falla í þá gryfju að setja upp leikrit á
öðrum forsendum en verksins sjálfs. En á
hinn bóginn þá reyni ég líka að endurtaka
mig ekki og setja mér markmið til að gera
verkið krefjandi. Það verður að hafa fyrir
þessu.“ Hann segir vinnuferlið með Vestur-
porti líka eiga vel við sig. „Það er allt opið
og frjálst; allir hafa rétt á sinni skoðun og
þær eru teknar til greina. Enginn er básaður
af í eigin horni, enda er ekki hægt að vinna
þannig í leikhúsi; það er ávísun á misheppn-
aða sýningu.“
Börkur segir vel mögulegt að Reumert-
verðlaunin eigi eftir að verða til þess að
verkefnum utanlands fjölgi. Vesturport
stefnir nú á að setja Hróa hött á svið í Berg-
en og því næst í Boston. „Hver veit nema sú
sýning endi svo á Broadway.“
bergsteinn@frettabladid.is
„Það verður að hafa fyrir þessu“
Börkur Jónsson leikmyndahönnuður hlaut dönsku Reumert-verðlaunin á sunnudag fyrir leikmynd sína í sýningunni Bastarðar.
ÚR BASTÖRÐUM Börkur segir leikmyndina að mörgu leyti óvenjulega, hún sé mjög stór og útheimti mikla handavinnu enda umlykur hún áhorfendur og fylli
sjónsviðið.
BÖRKUR
JÓNSSON