Fréttablaðið - 05.06.2013, Page 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
12
ÞÓRBERGSSETUROpin dagskrá verður í Þórbergssetri sunnudaginn 9. júní.
Dagskráin er tengd bókmenntum, menningarferðaþjónustu
og verkefni á vegum Ferðaþjónustu bænda undir heitinu
„BÆNDUR BJÓÐA HEIM“ | WWW.THORBERGUR.IS
K jartan Yngvi Björnsson rithöf-undur er staddur í Rúmeníu, nánar tiltekið Sighisoara í Transilvaníu. Þar stundar hann ritstörf ásamt Snæ-birni Brynjarssyni. „Við fórum hingað til að klára framhaldið á Hrafnsauga Þettaverður þá önnu bók
okkur til Sighisoara. Við hefðum kannski
átt að leita betur því leigubílstjórinn reyndist hálfsturlaður og heyrnarlaus,“
segir Kjartan. „Hann þrumaði með okkur
í gegnum hnausþykk þ k
Á VAMPÍRUSLÓÐUMFERÐIR Kjartan Yngvi Björnsson rithöfundur skrifar framhald Hrafnsauga í
Transilvaníu, ásamt Snæbirni Brynjarssyni.
ÓLÍK LÍFSGÆÐIKjartan segir að þótt lífs-gæði í Transilvaníu séu vissulega allt önnur e áÍ
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
MIÐVIKUDAGUR 5 JÚNÍ 2013
4. TÖLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR
DAGSKRÁRBLAÐ STÖÐVAR 2
ÚRSLITAVIÐUREIGN NBA HEFST Á STÖÐ 2 SPORT Á FIMMTUDAG
Á HÆLUM
FJÖLDA-
MORÐINGJA
2 SÉRBLÖÐ
Fólk | Stöð 2
Sími: 512 5000
5. júní 2013
130. tölublað 13. árgangur
Sá viðtal við Birgittu og
dreif sig til Íslands
Roy Albrecht íhugar að setjast að á
Íslandi til að geta tjáð skoðanir sínar
óáreittur. Viðtal við Birgittu Jónsdótt-
ur var kveikjan að Íslandsförinni. 2
Hrisingur olli ekki dauða Breskur
sérfræðingur segir hristing ekki
dánaorsök barns sem var í umsjá dag-
föður og lést 2003. 2
Persónuleikaröskun æ algengari
Sjálfsvígstilraunir eru algengar hjá
sjúklingum með jaðarpersónuleika-
röskun, sem verður æ algengari 4
Dæmdur fyrir smygl Íslendingur
í 12 ára fangelsi í Danmörku fyrir
amfetamínsmygl. 6
SPORT Danka Podovac hefur farið á
kostum í Pepsi-deild kvenna í sumar
og er markahæst. 22
Borðplatan
kostar aðeins
1,-*
Kvik Reykjavík
Suðurlandsbraut 16, Sími 5880500
* Tilboðið gildir við kaup á heilli eldhúsinnréttingu
til 16. júní 2013. Gildir fyrir öll plasthúðuð plötu-
efni í vörulista Kvik. Má ekki nýta samhliða
öðrum tilboðum.
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
LÍF Í LÆKJARGÖTU Heimafólk og ferðamenn arka yfi r Lækjargötu á rigningardegi í Reykjavík. Júní hefur verið vætusamur hingað til en veðrið hafði lítil áhrif á góða
skapið hjá þeim sem Fréttablaðið ræddi við í bæjarferð í gær. Sjá síðu 8 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skyrta
Kr. 2.490.-
KRINGLUNNI • SÍMI 5513200
Gallabuxur
Verð frá kr. 2.490.-
Bolungarvík 11° S 7
Akureyri 19° S 4
Egilsstaðir 18° SV 5
Kirkjubæjarkl. 10° SA 3
Reykjavík 12° SA 8
Best NA- til Sumar og sól á N- og A-
verðu landinu í dag. Dregur úr vindi og
úrkomu S- og V-til með deginum. Hiti
10-20 stig. 4
SKOÐUN Sif Sigmarsdóttir veltir fyrir
sér tilgangi símaráðgjafar Lækna-
vaktarinnar. 13
MENNING Hilmir Snær Guðnason
leikstýrir Monty Python-söngleiknum
Spamalot. 26
LÖGREGLUMÁL Metamfetamín er miklu
þekktara hér á landi nú en áður fyrr.
Þetta staðfestir Karl Steinar Valsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við
Fréttablaðið. Neysla metamfetamíns
einskorðaðist áður nær eingöngu við
Tékkland og Slóvakíu. Það hefur verið
að breiðast út um Evrópu samkvæmt
árlegri skýrslu Eftirlitsmiðstöðvar
Evrópu með lyf og lyfjafíkn um stöðu
fíkniefnamála í Evrópu.
„Það er misjafnt hvernig framboðið
er á því. Það er þó miklu þekktara nú
en áður, þó að við höfum ekki verið að
taka það í miklu magni; söluskömmtum
eða jafnvel stærri neysluskömmtum.“
Íslenski fíkniefnamarkaðurinn dreg-
ur að miklu leyti dám af straumum og
stefnum í Evrópu, segir Karl Steinar.
Í skýrslunni kemur meðal annars
fram að tilbúin fíkniefni, til dæmis
amfetamín og skyld efni, hafi sífellt
verið að að ryðja sér meira til rúms
síðustu ár. Þá er átt við efni sem búin
eru til frá grunni en byggja ekki á nátt-
úrulegum afurðum eins og kókaín eða
heróín.
Mörg þessara efna eru ný þannig að
ekki er enn búið að banna þau. Í fyrra
fundust til að mynda 73 áður óþekkt
efni í ríkjum Evrópusambandsins, þar
af 19 efni sem skyld eru amfetamíni og
MDMA (e-töflum).
„Uppgangur amfetamíns hér á landi,
eða efna sem eru skyld því, er alveg
í takt við það og enn ein vísbending-
in um að Ísland er í svipaðri stöðu og
önnur lönd,“ segir Karl Steinar.
Í evrópsku skýrslunni segir að þró-
unin sé að mörgu leyti jákvæð. Minni
nýliðun sé í hópi heróínneytenda og
sprautunotkun dragist saman og notk-
un á kannabisefnum, bæði hassi og
maríjúana, sé á undanhaldi í mörgum
ríkjum. - þj, kóp / sjá síðu 8
Amfetamín- og rítalínfaraldur
Tilbúin efni verða sífellt algengari á fíkniefnamarkaðnum í Evrópu. Sama þróun á sér stað hérlendis. Sum til-
búnu efnanna hafa ekki enn verið bönnuð. Borið hefur á metamfetamíni undanfarið. Rítalínið stórvandamál.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir ekki hafa orðið
mikil breyting á vímuefnamarkaðnum síðustu tvö til þrjú árin.
Fyrir nokkru hafi rítalín, sem er löglegt lyf, komið inn á hinn
ólöglega vímuefnamarkað og tekið yfir stóran hluta af neysl-
unni, sumir segi þriðjung eða allt að helming af markaðnum
fyrir örvandi eiturlyf.
„Við sjáum þetta frá Vogi að hópurinn sem er háður
örvandi vímuefnum hefur notað meira af rítalíni en nokkru
sinni fyrr.“
Rítalínið er áhyggjuefnið
Hermann Gunnarsson fjölmiðlamað-
ur, betur þekktur sem Hemmi Gunn, er
látinn. Hann var 66 ára gamall, fæddur
9. desember 1946. Hermann varð bráð-
kvaddur í Taílandi í gær, en hann var þar
í fríi.
Hemmi varð fyrst þekktur sem einn
fremsti knattspyrnumaður Íslands. Hann
starfaði svo um áratuga skeið í fjölmiðl-
um, fyrst sem íþróttafréttamaður á Rík-
isútvarpinu. Hann stjórnaði lengi einum
vinsælasta sjónvarpsþætti landsins, Á
tali hjá Hemma Gunn. Síðustu ár starf-
aði hann bæði í sjónvarpi og útvarpi hjá
365 miðlum, bæði á Stöð 2 og á Bylgjunni.
Þá var hann einnig tónlistarmaður, söng
inn á nokkrar plötur og gaf út sólóplötuna
Frískur og fjörugur. Hann lét af störfum
á Bylgjunni í apríl síðastliðnum og hugðist
þá leggja lokahönd á sjálfsævisögu sína.
Viðbrögðin við fréttum af and-
láti Hemma í gærkvöldi voru gríð-
arleg og mörg þúsund Íslending-
ar höfðu tjáð harm sinn og samúð
með aðstandendum hans á netinu
í gærkvöldi. „Það er ekki skrýtið
þó öll þjóðin elski hann, og mikið
eigum við eftir að sakna hans,“
sagði Heimir Karlsson, vinur
og fyrrverandi samstarfs-
maður Hemma á Bylgjunni í
samtali við Vísi í gærkvöldi.
Hermann lét eftir sig
fjölda afkomenda, börn og
barnabörn. - þeb
Íslendingar syrgja ástsælan fjölmiðlamann og skemmtikraft:
Hemmi Gunn fallinn frá
HERMANN GUNNARSSON
ÞÓRARINN
TYRFINGSSON
KARL STEINAR
VALSSON
➜ Notkun
kannabisefna
er á undan-
haldi í mörgum
Evrópulöndum.