Fréttablaðið - 05.06.2013, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.06.2013, Blaðsíða 4
5. júní 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Vegurinn lokaður eftir skriðu 1 HÚSAVÍK Vegurinn um Köldukinn verður áfram lokaður, að minnsta kosti út þessa viku, eftir að stór aurskriða féll á veginn um tvöleytið í gærnótt. Að minnsta kosti ein skriða féll á svæðinu í gær og sérfræðingar frá Ofan- flóðasjóði hafa lagt mat á hættuna af frekari skriðuföllum. Gunnar Bóasson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Húsavík, segir að vegurinn verði að vera lokaður að minnsta kosti út vikuna. Mikil hætta sé á frekari skriðuföllum. Þjóðvegurinn á milli Húsavíkur og Akureyrar er því lokaður og er vegfarendum bent á að fara um Fljótsheiði og Aðaldalsveg. Það lengir leiðina þó ekki nema um átta kílómetra eða svo. Ekkert farið milli lands og eyja 2 VESTMANNAEYJAR Öllum ferðum Herjólfs milli lands og Vestmanna- eyja var aflýst í gær. Ekkert var flogið á milli heldur. Í tilkynningu frá Eimskip í gær kom fram að ölduhæð við Landeyjahöfn hefði verið 3,6 metrar, en búist var við því að ölduhæðin myndi lækka um miðnætti í nótt. Búist var við því í gær- kvöldi að hægt yrði að sigla í dag, en ákvörðun verður tekin nú í morgunsárið. Reið á hesti inn í afmæli 3 BORGARNES Ölvaður hestamaður reið á hesti sínum inn í félagsheimili hestamanna í Borgarnesi um helgina. Maðurinn mætti í afmæli stúlkna þar og hótaði þeim og ógnaði. Hann kom svo á hrossinu inn í húsið og skemmdi innanstokksmuni og parket. Afmælisgestir urðu nokkuð hræddir við þetta og kölluðu til lögreglu. Maðurinn verður sektaður fyrir athæfið að því er fram kemur í frétt Skessu- horns af málinu, en ekki er víst hvort stúlkurnar hyggjast kæra hann fyrir hótanirnar. LÖGREGLA Mikilvægt er að for- eldrar fylgist vel með netnotkun barna sinna segir Þórir Ingvars- son rannsóknarlögreglumaður, en hann sérhæfir sig í netöryggi barna. Fréttablaðið sagði frá því í gær að samkvæmt heimildum væru dæmi fyrir því að börn undir lög- aldri notuðu klámmyndir sem þau finna á netinu sem gjaldmið- il á skráardeilisíður. Þórir segir málið erfitt viðfangs en vill brýna fyrir foreldrum að kenna börnum sínum ábyrgð og öryggi í netsam- skiptum. „Almennt séð er mikil- vægt að foreldrar fylgist vel með netnotkun barnanna sinna. Einnig er mikilvægt að átta sig á því að netsíur eru ekki endanleg lausn þegar kemur að öryggi barna á netinu,“ segir Þórir. Samkvæmt 210. grein almennra hegningarlaga er öll dreifing á klámi bönnuð og lögin því brotin í hvert skipti sem slík skráarskipti eiga sér stað. Ekki hefur verið farið í sértækar aðgerðir hjá lög- reglu til þess að stöðva slíka dreif- ingu og segir Þórir málið mjög flókið. „Dreifing á klámi er ólögleg og refsiverð en hvaða aðgerðir er hægt að fara í gegn þessari þróun er erfitt segja,“ segir Þórir. - mlþ AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Lögregla vill brýna fyrir foreldrum að fylgjast með netnotkun barna sinna: Ábyrgð foreldra mikil á netinu Netsíur eru ekki endan- leg lausn þegar kemur að öryggi barna á netinu. Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður Veðurspá Föstudagur Fremur hægur vindur. SUMARBLÍÐA UM N- og A-vert land í dag og á morgun en skýjað að mestu V-lands. Skúrir V-lands síðdegis á morgun en bætir í úrkomuna á föstudag. Fremur hægur vindur víðast hvar. Hiti 10-20 stig, svalara á föstudag. 11° 7 m/s 12° 10 m/s 12° 8 m/s 10° 11 m/s Á morgun Fremur hægur vindur. Gildistími korta er um hádegi 9° 8° 12° 13° 12° Alicante Basel Berlín 24° 25° 20° Billund Frankfurt Friedrichshafen 19° 22° 23° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 18° 18° 22° London Mallorca New York 18° 25° 22° Orlando Ósló París 28° 17° 23° San Francisco Stokkhólmur 17° 19° 10° 3 m/s 11° 3 m/s 18° 5 m/s 17° 3 m/s 19° 4 m/s 17° 7 m/s 8° 7 m/s 10° 9° 12° 17° 16° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður Sstærsti aldurshópurinn sem greinist með persónuleikaröskun ungt fólk á aldrinum 18 til 25 ára að því er fram kemur í Læknablaðinu. Eftir því sem aldurinn hækkar fækki tilfellum og hjá mörgum einstaklingum gangi persónuleikaröskunin yfir á 15-20 árum ef tekið er á sjúkdómnum nægi- lega snemma. Þó sé ýmis annars konar vandi, eins og skortur á vinnufærni og félagslegri færni, sem erfitt getur reynst að vinna á. Flestir á aldrinum 18 til 25 ára HEILBRIGÐISMÁL Sjúklingar með jaðarpersónuleikaröskun sækja mjög í geðheilbrigðiskerfið og þeim virðist fara fjölgandi. Þetta kemur fram í viðtali við Halldóru Ólafsdóttur geð- lækni í Lækna- blaðinu. Jaðarpersónu- leikaröskun ein- kennist af hvat- vísi , miklum óstöðugleika í samskiptum, skapsveiflum og óstöðugri sjálfs- mynd. Sjálfskaði og sjálfsvígstil- raunir eru einn- ig algengar hjá þessum einstak- lingum. Þess- ir þættir koma yfirleitt í ljós snemma á full- orðinsárum. Að sögn Halldóru reynast sjúk- lingarnir heilbrigðis- og velferð- arkerfinu dýrir þar sem margir þeirra endi á örorku. Greining á persónuleikaröskun sé flókin og tímafrek og illa hafi gengið að lækna þessa einstaklinga. Páll Matthíasson, fram- kvæmdastjóri geðsviðs Landspít- ala, segir meðferðarnálgun við röskuninni, sem Landspítalinn tók upp árið 2011, hafa gefið góða raun. Erlendar rannsóknir sýni að hún geti fækkað bráðainnlögn- um þessa sjúklingahóps um 70 til 90 prósent og dregið verulega úr sjálfskaðatilraunum. „Við ákváð- um að setja upp nokkurs konar Sífellt fleiri þjást af persónuleikaröskun Einstaklingar með jaðarpersónuleikaröskun sækja í auknum mæli í geðheilbrigðis- þjónustuna. Meðferðin er flókin og röskunin dýr fyrir samfélagið segir geðlæknir. dagdeild sem er kölluð lífsfær- niprógramm en byggir á díalekt- ískri atferlismeðferð. Þar er um að ræða þjálfunarbúðir sem nota meðal annars svokallaða núvit- und til að ná stjórn á tilfinning- um, streitu og bæta sjálfstraust og samskipti við aðra. Þetta hefur gefið mjög góða raun og bindum við vonir við að meðferðin verði til þess að bæta langtímahorfur þessa sjúklingahóps.“ Í grein Læknablaðsins kemur fram að á hverjum tíma séu um 40 manns í virkri meðferð við pers- ónuleikaröskun á geðsviði Land- spítala. „Þar fyrir utan er hópur fólks sem kemur á göngudeild eða er á legudeild og bíður eftir þess- um úrræðum eða öðrum. Þessi hópur er sannarlega að stækka og okkur finnst við sjá mun fleiri tilfelli en fyrir tveimur áratugum þótt við höfum ekki neina hald- bæra skýringu á því.“ hanna@frettabladid.is umferðarslys og óhöpp urðu hér á landi árið 2011. HALLDÓRA ÓLAFSDÓTTIR PÁLL MATTHÍASSON GEÐDEILD Yfirlæknir á geðsviði Landspítalans, segir í samtali við Læknablaðið ýmis vandkvæði fylgja greiningu og meðferð einstaklinga með jaðarpersónuleikaröskun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 6.064 Það er 1.775 slysum minna en tíu árum fyrr, þegar óhöppin voru 7.839 talsins. Heimild: Hagstofan.is LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu telur ekki tilefni til frekari rannsóknar vegna fjögurra ára gamallar stúlku í Breiðholti. Grunur lék á því að hún hefði verið numin á brott er hún var að leik fyrir utan heimili sitt síðastliðinn þriðjudag. Ekki var vitað um ferðir hennar í klukkustund. Maður var handtekinn í tengslum við málið en sleppt að lokinni skýrslutöku. Skýrsla var tekin af stúlkunni í Barnahúsi í morgun en að henni lokinni þótti ekki ástæða til þess að rannsaka málið frekar. Meint brottnám stúlku: Rannsókn hætt LANDIÐ 1 2 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.