Fréttablaðið - 05.06.2013, Blaðsíða 8
5. júní 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
Ákveðinna umskipta gætir á
fíkniefnamarkaðnum í Evrópu
um þessar mundir þar sem tilbú-
in fíkniefni, efni sem framleidd
eru úr kemískum efnum, eru að
ryðja sér sífellt meira til rúms.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
frá Eftirlitsmiðstöð Evrópu með
lyfjum og lyfjafíkn (EMCDDA),
sem er sjálfstæð stofnun á vegum
Evrópusambandsins.
Í ársskýrslu EMCDDA um
stöðu fíkniefnamála í Evrópu
kemur fram að þróunin sé að
mörgu leyti jákvæð. Minni nýlið-
un er í hópi heróínneytenda,
sprautunotkun dregst saman og
notkun á kannabisefnum, bæði
maríjúana og hassi, er á undan-
haldi í mörgum ríkjum.
Slæmu fréttirnar eru hins
vegar þær að merkja má aukna
neyslu á tilbúnum lyfjum á borð
við amfetamín í hinum ýmsu
myndum en einnig verða lög-
regluyfirvöld vör við sífellt fleiri
nýjar tegundir tilbúinna efna sem
jafnvel er ekki enn búið að banna,
en eru framleidd til að líkja eftir
áhrifum bannaðra efna. Í fyrra
fundust til dæmis 73 áður óþekkt
efni í ríkjum ESB, þar af nítján
efni sem eru skyld amfetamíni og
MDMA (E-töflum). Þá er að sjá að
neysla metamfetamíns, sem áður
einskorðaðist nær eingöngu við
Tékkland og Slóvakíu, sé að breið-
ast út og hefur hennar orðið vart
í Þýskalandi, Grikklandi, Kýpur
og Tyrklandi.
Fíkniefnamarkaðurinn er
umfram allt afar kvikur og kall-
ar, að mati skýrsluhöfunda, á að
ríkin hagi stefnumótun eftir því.
ASKÝRING | 8
FÍKNIEFNAMARKAÐURINN Í EVRÓPU
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
© GRAPHIC NEWS
BREYTINGAR Á NEYSLU FÍKNIEFNA ÁHYGGJUEFNI
Eftirlitsmiðstöð ESB með lyfjum og lyfjafíkn lýsir áhyggjum af breytingum
á eiturlyfjamarkaði á meginlandi Evrópu. Þar hafa notendur í auknum
mæli snúið sér frekar að tilbúnum fíkniefnum, sem jafnvel er ekki búið að
banna, en hefðbundnari lyfjum eins og heróíni og kókaíni.
Atvik þar sem fíkniefni voru haldlögð árið 2011 (þúsund atvik)
Yfi r 100
11-100
1-10
>1
Engar
upplýsingar
E-töfl ur/MDMA 1%
Kókaín og krakk 10%
Metamfetamín 1%
Amfetamín 4%
Heróín 4%
Hlutfall
fíkniefna sem
haldlögð voru:
Marijúana
41%
Hass
36%
Kannabisplöntur
3%
Noregur
25
Bretland
223
Belgía
37
Frakkland
100
Spánn
400
Ítalía 22
Á kortinu má
sjá þau lönd
þar sem fl est
atvik eru á ári.
Tyrkland 66
Finnland 13
Svíþjóð 18
Danmörk 14
Þýskaland 57
EFNI SELD Á NETINU
73 ný efni komu fram í ríkjum
ESB árið 2012, samanborið við
49 árið 2011.
Efnin eru seld í sérhæfðum versl-
unum eða á netinu, oft með villandi
merkingum til að komast hjá eft irliti.
Efnin eru hönnuð með það að sjónar-
miði að líkja eft ir áhrifum ólöglegra fíkni-
efna. Lítið er vitað um langtímaáhrif af þeim.
Árið 2010 voru 40 dauðsföll rakin til efna sem síðan
hafa verið bönnuð með lögum, til dæmis mefedrón.
HEIMILD: EMCDDA MYND/AP
MYNDARLEGUR
www.landrover.is
NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4
VERÐ FRÁ 10.990.000 KR.
Land Rover Discovery 4 er einn glæsilegasti jeppi sem til er. 211 hestafla dísilvél sem eyðir aðeins
8,3 l/100 km í blönduðum akstri*, ný 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýrinu og loftpúðafjöðrun
á öllum hjólum sem tengd er Terrain Response stillanlega fjöðrunarkerfinu.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
OPIÐ LAUGARDAG
FRÁ 12-16
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
9
9
0
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
Tilbúin fíkniefni
sækja fram í Evrópu
Ný skýrsla um fíkniefnamarkaðinn í Evrópu leiðir í ljós að hefðbundin efni eins og
kókaín og heróín gefa eftir á kostnað tilbúinna efna. Sum hver hafa ekki enn verið
bönnuð. Karl Steinar Valsson segir þróunina hafa verið svipaða hér á landi.
77 MILLJÓNIR
Evrópubúa hafa prófað kannabisefni
á ævinni
3 MILLJÓNIR
nota kannabis daglega eða allt að því.
14,5 MILLJÓNIR
Evrópubúa hafa prófað kókaín á
ævinni.
475 DAUÐSFÖLL
í Evrópu 2011 voru rakin til neyslu
kókaíns.
Þróunin á íslenskum fíkniefnamarkaði undan-
farin misseri hefur verið í takt við það sem
segir frá í skýrslunni, að sögn Karls Steinars
Valssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns. Hann
tók þó fram að hann hafði ekki lesið skýrsluna
sjálfa.
„Þessi birtingarmynd sem skýrslan virðist
sýna held ég að sé í takt við það sem við
höfum verið að sjá hér á landi. Uppgangur
amfetamíns eða efna sem eru skyld því er al-
veg í takt við það og enn ein vísbendingin um
að Ísland er í svipaðri stöðu og önnur lönd.“
Svipuð staða á íslenska markaðnum