Fréttablaðið - 05.06.2013, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 05.06.2013, Blaðsíða 21
Stórborgarkokkurinn sem flutti frá iðandi mannlífi New York-borgar í sveitasæluna í Borgarfirðinum hefur vakið mikla athygli í þáttunum Hið blómlega bú. Árni Ólafur Jónsson fer á kostum þar sem hann tekst á við sveita- störfin í Árdal og matreiðir úr dýrindis hráefni úr eigin ræktun og frá bændun- um í kring. Þátturinn hefur fengið mjög góðar við- tökur. Árni Ólafur var inntur eftir því hvernig viðbrögð hann væri sjálfur að fá. „Fjölskyldan og vinir mínir eru auð- vitað öll mjög sátt við þetta allt saman. Svo hef ég líka fengið skilaboð frá fólki úti í bæ þar sem það lýsir ánægju sinni með þáttinn og efnistökin. Ég er því mjög ánægður með viðtökurnar.“ En hefur þessi reynsla haft áhrif á hvernig þú eldar og umgengst hráefni í dag? „Núna þegar ég hef kynnst því hversu mikil vinna er að baki því að ala skepn- ur og rækta grænmeti ber ég mun meiri virðingu fyrir hráefninu sem ég vinn með og reyni að láta sem allra minnst fara til spillis.“ Í kvöld fer Árni á sumarhátíð Kaupfélagsins, þar sem hann tekur þátt í bændaþríþraut og öðrum skemmtilegheit- um með sveitungum sínum og eldar rétti úr garðin- um. Meðal þess sem hann tekur sér fyrir hendur er að grilla pitsur. Uppskrift- irnar að réttum Árna má finna á vefsíðunni www. hidblomlegabu.is. Hér að neðan má finna hráefnið í pitsurnar en aðferðina má nálgast á heimasíðunni. Hið blómlega bú er á dagskrá klukkan 20.05 á miðvikudögum og endur- sýndur klukkan 17.10 á sunnudögum. ● Þættirnir eru kvikmynd- aðir í Vancouver. ● Þáttaröðin The Killing er byggð á dönsku þátta- röðinni Forbrydelsen. ● Persóna Söruh Linden heitir Sarah Lund í dönsku þáttunum. ● Leikkonan Sofi e Grå- bøl, sem leikur Söruh Lund, klæddist sér- stakri lopapeysu í fyrstu þáttaröðinni. Sú peysa var hönnuð af færeyska tískumerkinu Guðrun & Guðrun og tóku ófáir Ís- lendingar upp prjónana og gerðu sér eina slíka. ● Gråbøl kom sjálf fram í litlu hlutverki í banda- rískri útgáfu þáttanna. ● Leikkonan Mireille Enos klæðist nokkrum prjóna- peysum í bandarísku þáttunum. Hún segist hafa orðið afar leið á þeim enda þurfti hún að klæðast sömu peysunni í marga þætti í röð. ● Skrifaðar hafa verið bækur upp úr þátt- unum. Höfundur þeirra heitir David Hewson en bækurnar heita The Kill- ing: Book One og The Killing: Book Two. ● Í júlí 2012 var tekin ákvörðun um að ekki yrðu gerðar fl eiri þátta- raðir af bandarísku út- gáfu The Killing. Í ágúst var þeirri ákvörðun hnekkt og þriðja serían sett á dagskrá. ● Leikkonan Mireille Enos er með svarta beltið í karate. NOKKRAR STAÐREYNDIR Nú býðst áskrifendum Stöðvar 2 að eiga notaleg- ar stundir í baðstofu og heilsurækt World Class á sérstökum vildarkjörum. Áskrifendur geta keypt þriggja mánaða Bað- stofu- og heilsuræktarkort á 40% afslætti eða fengið 50% afslátt af stökum tíma og stökum baðstofutíma. World Class býður upp á 5 stjörnu heilsulind þar sem slökunar- og lækningarmátt- ur vatnsins er í hávegum hafður. Láttu nú dekra við þig, þú átt það skilið. Kynntu þér þetta og fleiri spennandi Vildartil- boð nánar inni á www.stod2.is. Stöð 2 Vild – er snilld. NOTALEGAR BAÐSTOFUSTUNDIR FYRIR VILDARÁSKRIFENDUR HIÐ BLÓMLEGA BÚ FÆR GÓÐAR VIÐTÖKUR HIÐ BLÓMLEGA BÚ Kl. 20.05 miðvikudaga Grilluð pitsa Í fjórar 10 tommu pitsur Innihald Pitsudeig 500 grömm brauðhveiti 325 millilítrar volgt vatn 2 teskeiðar salt ½ teskeið þurrger Álegg 300 grömm mozzarella Salt Álegg eftir smekk, þunnskorin. Sterk hvítlauksolía 100 millilítrar jómfrúarolía 4 hvítlauksgeirar, maukaðir ½ teskeið þurrkaðar rauðar chillipiparflögur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.