Fréttablaðið - 05.06.2013, Síða 14

Fréttablaðið - 05.06.2013, Síða 14
5. júní 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SIGRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR lést laugardaginn 25. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hallkell Þorkelsson Vigdís Ársælsdóttir Kristbjörn Þorkelsson Guðríður Pálsdóttir Þorkell Þorkelsson ömmu- og langömmubörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELLEN BJARNADÓTTIR Naustahlein 22, Garðabæ, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, mánudaginn 3. júní sl. Útför verður auglýst síðar. Guðmundur Sigurjónsson Rannveig Guðmundsdóttir Símon Ægir Gunnarsson Helga Guðmundsdóttir Jón Guðmundsson Alma Guðmundsdóttir Björn Jóhann Björnsson ömmubörn og langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA SIGURÐARDÓTTIR Nökkvavogi 29, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 3. júní. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. júní kl. 15.00. Elizabeth Haraldsdóttir Richard Webber Einar Valgeirsson Sigurður Valgeirsson Birna Leifsdóttir Valgeir Valgeirsson Auður Ingólfsdóttir Hörður Valgeirsson Kristín Þórsdóttir börn og barnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN HRAFNFJÖRÐ lést að morgni 3. júní. Sigríður Erna Sverrisdóttir Torfi Ólafsson Erla Björk Sverrisdóttir Magnea G. Hafberg Sverrisdóttir Sigurlaug Hrefna Sverrisdóttir Bjarni Arnarson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR (DÍA) Víðihlíð 31, Reykjavík, lést fimmtudaginn 30. maí á hjúkrunar- heimilinu Grund við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 11. júní klukkan 15.00. Ingólfur Einarsson Þórdís Öfjörð Skúladóttir Guðbjörg Einarsdóttir Finnur Egilsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGA J. GÍSLADÓTTIR Vogatungu 5, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 3. júní 2013. Guðrún Halldórsdóttir Baldur Jónsson Guðborg Halldórsdóttir Andri Már Ólafsson Birna Friðfinnsdóttir Baldur Baldursson Anna Rún Einarsdóttir Kristín Sveiney Baldursdóttir Hlynur Guðlaugsson og barnabarnabörn. „Þeir sem einhvern menningarsögu- legan áhuga hafa ættu að geta horft á þessa sýningu út frá ansi mörgum sjónarhornum,“ segir Inga Lára Bald- vinsdóttir, fagstjóri Ljósmyndasafns Íslands. Inga Lára er höfundur yfir- litssýningar á ljósmyndum Sig fúsar Eymundssonar, sem opnuð verður í Þjóðminjasafninu á laugardag, og nýrrar bókar um þennan fjölhæfa athafnamann sem kemur út sama dag. Á sýningunni, sem er liður í 150 ára afmæli Þjóðminjasafnsins, verða verkum þessa frumkvöðuls í ljós- myndun á Íslandi gerð skil og gefur meðal annars að líta upprunalegar myndir eftir Sigfús sem aldrei hafa áður komið fyrir sjónir almennings. Inga Lára segir þetta í raun fyrstu yfir- litssýninguna á ljósmyndum Sigfúsar. „Árið 1976 var gefin út bók eftir Þór Magnússon með úrvali mynda af ljós- myndastofu Sigfúsar, sem var mjög vinsæl. Á þessum tíma var að hefjast vakning á því að gamlar ljósmyndir hefðu menningar- sögulegt gildi og síðan hafa myndir Sigfúsar gengið aftur og aftur í bókum um sögu Reykjavíkur og húsasögu borg- arinnar, því hann var lykil- maður í ljósmyndun á 19. öld.“ Í bókinni sem kemur út á laugardag, sama dag og sýn- ingin opnar, er meðal annars farið yfir ævi Sigfúsar og hans stóra þátt í því að skapa myndina af Íslandi, eins og Inga Lára orðar það, enda var hann í raun fyrsti ljós- myndari landsins til að gera sig gildandi og gera ljósmyndun að alvöru atvinnuvegi. „Sigfús hafði alltaf mörg járn í eldinum, enda fjöl- hæfur maður og dug- legur. Hann byrjaði að taka myndir árið 1866 og rak ljósmyndastofu í Reykjavík til 1909 og lést tveimur árum síðar. Bókabúðina hóf hann að reka 1872 og seldi hana sama ár og hann lést. Þá stóð hann líka í prentsmiðjurekstri og bókaútgáfu, auk þess sem hann var umboðsmaður fyrir Allan-skipafé- lagið sem flutti Íslendinga vestur um haf. Það eru ákveðin forréttindi að fá að vinna að svona sýningu og skemmti- legt að fá tækifæri til að sinna rann- sóknarstarfi sem þessu,“ segir Inga Lára. kjartan@frettabladid.is Maðurinn sem skapaði myndina af Íslandi Á laugardaginn næsta verður opnuð fyrsta yfi rlitssýningin á ljósmyndum Sigfúsar Einarssonar og sama dag kemur út bók um hinn fj ölhæfa athafnamann. Inga Lára Baldvinsdóttir er höfundur sýningarinnar og bókarinnar. SÝNING Inga Lára Baldvins- dóttir er höf- undur sýningar og nýrrar bókar um Sigfús Eymundsson, ljósmyndara með meiru. FRÉTTA BLAÐIÐ/ANTON Á ÞINGVÖLLUM Að ofan: Mynd Sigfúsar af Almannagjá um 1874. Til vinstri: Sigfús Eymundsson, fljótlega eftir að hann hóf störf. Robert F. Kennedy var skotinn í morgunsárið þennan dag árið 1968. Hann hafði nýlega fengið útnefningu sem forsetaefni demókrataflokksins og undir morgun þennan dag ávarpaði hann stuðningsmenn sína í veislusal Ambassador-hótelsins í Los Angeles. Eftir ávarpið fór Kennedy, gegn fyrirmælum lífvarðar síns, í gegnum eldhúsið til að stytta sér leið. Þar varð hann, ásamt fimm öðrum, fyrir árás Sirhans Sirhan, palestínsks manns sem var reiður Kennedy fyrir stuðning hans við Ísraela í sex daga stríðinu en það hófst nákvæmlega ári fyrr. Kennedy lést af sárum sínum 26 klukkutímum eftir árásina. Hinir sem urðu fyrir árásinni komust lífs af. ÞETTA GERÐIST 5. JÚNÍ 1968 Robert Kennedy skotinn til bana MERKISATBURÐIR 1915 Danska stjórnarskráin veitir konum kosningarétt. 1920 Brjóstsykursgerðin Nói hefur starfsemi sína. 1956 Elvis Presley birtist í sjónvarpinu og hneykslar áhorfendur með mjaðmahnykkjum sínum. 1967 Sex daga stríðið hefst fyrir botni Miðjarðarhafs. 1968 Forsetaframbjóðandinn Robert F. Kennedy er skotinn. 1974 Ólafur V Noregskonungur heimsækir Ísland. 1975 Súesskurðurinn opnaður í fyrsta sinn eftir að sex daga stríðinu lauk.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.