Fréttablaðið - 05.06.2013, Page 19
FRÉTTIR STOÐVAR 2
KL. 18.30 ALLA DAGA
365 MIÐLAR | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Jónas Unnarsson
Seinni hluti fyrstu seríu Revolution verður
sýndur á Stöð 2 á fimmtudögum í sumar.
Þættirnir fjalla um heim sem missir skyndi-
lega allt rafmagn og íbúarnir þurfa að læra
að komast af án þess. Fimmtán árum eftir
að rafmagnsleysið skellur á grillir í von um
að hægt sé að koma straumi á aftur. Eftir
miklu er að slægjast og því hefst hörð bar-
átta um yfirráð yfir orkulind framtíðar og
völdum í heiminum.
Aðalpersónur eru Charlie Matheson
og frændi hennar, Miles Matheson. Þau
þurfa að berjast við fyrrverandi vin Miles,
Sebastian Monroe, sem er nú valdasjúkur
og veruleikafirrtur einræðisherra.
Tracy Spiridakos leikur Charlie sem
heitir í raun Charlotte. Charlie er stráka-
stelpa en eftir að móðir hennar hverfur úr
lífi fjölskyldunnar tekur hún að sér að passa
upp á yngri bróður sinn. Hún er góðhjörtuð
en líkist sífellt meira föðurbróður sínum
sem telur tilganginn helga meðalið og svífst
einskis, jafnvel að drepa ef það hentar
honum.
Spiridakos er grísk-kanadísk leikkona.
Þessi 25 ára leikkona hefur komið fram í
fjölda smáhlutverka í sjónvarpsþáttum. Þar
má nefna Supernatural, Bionic Woman, The
L Word, Hellcats og Psych. Þá var hún í litlu
hlutverki í Rise of the Planet of the Apes.
REVOLUTION
Fimmtudaga kl. 20.30
HEIMUR
ÁN RAFMAGNS
Fréttir Stöðvar 2 hefjast eins og flestir vita klukkan
18.30. Lesari kvöldsins þarf að klæða sig upp, fara í
smink og hárgreiðslu og renna yfir textann. Yfirleitt
er vant fólk að störfum og förðunar- og hárgreiðslu-
fólk fljótt að athafna sig. Engu að síður þarf þó nokkr-
ar mínútur til verksins. Laugardaginn 12. febrúar
2011 átti Logi Bergmann Eiðsson að lesa en það hafði
eitthvað skolast til í dagbókum hans og klukkan 18.25
var hann ekki mættur.
„Logi mætir nú yfirleitt ekki sérlega snemma til
lestrar svo við höfðum ekki miklar áhyggjur framan
af. Þegar það voru fimm, sex mínútur í útsendingu
var okkur hins vegar hætt að litast á blikuna og var
ákveðið að ég myndi hlaupa í skarðið,“ segir Heimir
Már Pétursson, sem stýrði vaktinni á fréttastofunni
þennan dag. Hann var hins vegar hvorki með skyrtu
né bindi meðferðis og byrjaði á því að rífa Jónas
Margeir Ingólfsson, sem þá starfaði sem fréttamað-
ur á stöðinni, úr skyrtunni. „Hún var allt of lítil og
því var brugðið á það ráð að hlaupa yfir á Bylgju þar
sem Logi er með skrifstofu og finna skyrtu og bindi
af honum,“ lýsir Heimir. Hann hljóp svo inn í sett
með skyrtuna flaksandi og var fréttamaðurinn Andri
Ólafsson enn að festa á hann bindið þegar tíu sek-
úndna niðurtalning hófst.
Heyra má andstuttan Heimi lesa helstið í upphafi
og þegar hann svo kemur í mynd er bindið skakkt
og hárið í óreiðu. Eftir því sem líður á fréttatím-
ann skánar útgangurinn enda var klárað að sminka
hann, bindið lagað og hárið greitt á milli frétta.
„Í þriðju frétt var ég loks farinn að líta út eins og
maður,“ segir Heimir og hlær að uppákomunni þótt
honum hafi eflaust ekki verið skemmt rétt á meðan
á henni stóð. Logi Bergmann sést hins vegar í mestu
makindum með kaffibolla í baksýn en hann hafði
mætt tvær mínútur í hálf. „Honum til varnar þá hélt
hann að hann væri á frívakt og var heima með börn-
in sín. Hann þurfti því að finna pössum fyrir þau
áður en hann rauk af stað upp á fréttastofu eftir að
hringt var til hans.“
HEIMIR
HLEYPUR
Í SKARÐIÐ
Sléttur og strokinn.Skyrtan í kuðli og bindið skakkt.
ÓMISSANDI Í VIKUNNI
Dallas
Miðvikudag
Kl. 20.50
Grillað með Jóa Fel
Fimmtudag
Kl. 20.00
The Simpsons
Föstudag
Kl. 19.15
Latibær
Laugardag
Kl. 17.55
Tossarnir
Sunnudag
19.25
Game of Thrones –
lokaþáttur
Mánudag
Kl. 21.55
The Big Bang Theory
Þriðjudag
Kl. 20.00