Fréttablaðið - 05.06.2013, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 5. júní 2013 | MENNING | 19
Við höfðum búið
okkur undir að það yrði
einhver hugmynda-
fræðilegur ágreiningur
en þetta hefur smollið
mjög vel saman
Valdís Björt
Guðmundsdóttir
út á bók
Bálskotin
Ég vil að við skjótum hvort annað
á báli
að við stöndum á bálinu miðju
og skjótum.
Við horfumst í augu og skjótum.
Hjörtun brenna ekki lifandi
svo við horfumst í augu.
Bergþóra Einarsdóttir
➜ Úr Innvolsi
Ólafur Elíasson myndlistarmaður sýnir
ný verk á sýningunni Tiltrú sem opnar í
galleríinu i8 fimmtudaginn 6. júní.
Þetta er fjórða einkasýning Ólafs í
galleríinu og samanstendur af fjórum
verkum, sem öll fjalla um staðsetningu
mannsins í veröldinni, skynjun hans og
upplifun.
Ljósmyndaserían The Hut Series inni-
heldur myndir af fjallakofum á hálendi
Íslands. Myndirnar eru teknar að vori,
áður en snjóa leysir og jafnvel áður en
hlerar hafa verið teknir frá gluggum.
Glerverkið Your fading self (west) er
frístandandi í sýningarrýminu og sést
utan frá götu. Það stendur á steyptri uppi-
stöðu, er að hluta gegnsætt og að hluta
hjúpað daufum fölva sem setur sjónina úr
jafnvægi um stund.
Þriðja verkið er líka leikur að sjón-
skynjun. Fimm þríhyrndir speglar eru
festir á einn vegg gallerísins og eru allir
kenndir við hik eða efa (Hesitant move-
ment sky; Hesitant movement ground,
Hesitant movement up; Hesitant Move-
ment right og Hesitant you).
Fjórða verkið nefnist Trust compass og
er áttaviti gerður úr rekaviði og látúns-
stöngum sem halda sívölum seglum.
Sýningin stendur til 17. ágúst. - bs
Ólafur Elíasson sýnir Tiltrú á Íslandi
Opnar sína fj órðu einkasýningu í i8 á fi mmtudag. Ný verk um staðsetningu, rýmisskynjun og upplifun.
TRUST COMPASS Eitt af fjórum nýjum verkum Ólafs í i8.
➜ Höfundar Innvols
Bergþóra Einarsdóttir
Elín Ósk Gísladóttir
Guðrún Heiður Ísaksdóttir
Hertha Richardt Úlfarsdóttir
Katla Ísaksdóttir
Maó
Nanna Halldórsdóttir
Selma Leifsdóttir
Valdís Björt Guðmundsdóttir
Þórunn Þórhallsdóttir
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
MIÐVIKUDAGUR
5. JÚNÍ 2013
Tónlist
12.00 Hádegistónleikar Schola Can-
torum fara fram í Hallgrímskirkju í dag
kl. 12. Aðgangseyrir er kr. 2000.
16.00 Magni og Matti koma fram í
lista- og menningamiðstöðinni Líf
fyrir líf á Laugavegi 103 (við Hlemm, á
móti 10-11). Tónleikarnir eru á vegum
ABC barnahjálpar, sem er 25 ára og
heldur upp á afmælið allan júnímánuð.
Aðgangur er ókeypis.
21.00 Styrktartónleikar í þágu Einstakra
barna fara fram á Café Rósenberg í
kvöld kl. 21. Fram koma Elísabet Orms-
lev, Maja Eir, Elís Veigar, Hrefna Hrund,
Bjarni töframaður, Felix Bergsson og
fleiri. Kynnir er Logi Bergmann Eiðsson.
Aðgangseyrir er kr. 2500.
22.00 Sóley og Dj Flugvél & geim-
skip þeyta skífum á efri hæð Faktory.
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Textarnir eru ekki merktir höf-
undum sínum en aftast í bókinni er
tekið fram hver skrifaði hvað.
„Okkur langar að taka höfundinn
og reyna að skilja hann frá efninu,“
segir Valdís Björt. „Búa til rými
fyrir textann þannig að hann fái
að njóta sín óháð því hver skrifaði
hann.“
Nýræktarstyrkurinn nam 250
þúsund krónum en áður hafði Inn-
vols fengið 300 þúsund króna styrk
úr Hlaðvarpanum.
„Við höfum verið mjög lánsam-
ar. Handritið er nú komið í umbrot
og bókin kemur vonandi út í ágúst
sem hliðarspor á vegum útgáfunnar
Útúrdúrs.“ bergsteinn@frettabladid.is
Sjóvá kynnir ókeypis fyrirlestra Safetravel og Slysavarnafélagsins
Landsbjargar um búnað og öryggismál í gönguferðum. Farið verður
yfir helstu atriði varðandi undirbúning og framkvæmd. Fyrirlestrarnir eru
ætlaðir öllu áhugafólki um lengri og skemmri gönguferðir.
Miðvikudaginn 5. júní kl. 20.00–21.30 í Reykjavík
húsnæði Hjálparsveitar skáta, Malarhöfða 6.
Fimmtudaginn 6. júní kl. 20.00–21.30 á Akureyri
húsnæði Björgunarsveitarinnar Súlna, Hjalteyrargötu 12.
Sjóvá er aðalstyrktaraðili Slysavarnafélagsins Landsbjargar
safetravel.is
UNDIRBÚNINGUR FYRIR GÓÐAR GÖNGUFERÐIR
Frekari upplýsingar má finna á Facebook-síðu Safetravel Iceland.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.