Fréttablaðið - 05.06.2013, Side 34
5. júní 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 22
VILDI KOMA Í VEG FYRIR VÆL
„Ástæða þess að ég fékk Dönku til Stjörnunnar var fyrst og fremst sú að
við misstum Gunnhildi Yrsu ( Jónsdóttur) og Eddu Maríu (Birgisdóttur) af
miðjunni,“ segir Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar.
Óhætt er að segja að hinn marksækna Danka sé
leikmaður af allt öðrum toga en hinar baráttuglöðu
Gunnhildur Yrsa, sem leikur nú í Noregi, og Edda
María, sem er í barneignarleyfi.
„Ég var á þeirri skoðun að við þyrftum allt öðru-
vísi leikmann svo liðið væri ekki alltaf að miða
sig við þær og væla yfir brotthvarfi þeirra,“ segir
Þorlákur. Danka hefur fallið afar vel inn í leik
Garðabæjarliðsins eins og augljóst er af tölfræð-
inni. „Auðvitað tók það tíma en það er eins og
hún hafi alltaf verið í Stjörnunni, bæði félagslega
og á vellinum. Fyrirliðinn á miðjunni, Ásgerður
Stefanía (Baldursdóttir), stýrir þessu og leikmenn
eru fljótir að komast inn í hlutina með hana við
hliðina á sér.“
STJARNA Danka Podovac hefur farið á kostum með liði Stjörnunnar í sumar. Hún er
búin að vera lengi á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2006 - 2013
Lið - leikir - mörk
Stjarnan - 6 - 8
ÍBV - 39 - 27
Þór/KA - 13 - 9
Fylkir - 21 - 16
Keflavík - 52 - 20
Alls - 131 - 80
LEIKIR KVÖLDSINS
Þór/KA - Selfoss
ÍBV - Afturelding
FH - Breiðablik Í beinni á Vísi
Stjarnan - Þróttur
HK/Víkingur - Valur
TÖLFRÆÐI DÖNKU
SPORT
KÖRFUBOLTI Real Madrid er komið í úrslit spænsku úrvalsdeildarinn-
ar eftir að hafa lagt CAI Zaragoza, 77-63, í þriðja leik liðanna. Real
Madrid sópaði þar með Jóni Arnóri og félögum úr keppni 3-0. Zara-
goza byrjaði leikinn mjög vel og stóð lengi vel í stórveldinu. Real
Madrid var aftur á móti of stór biti í lokaleikhlutanum og fóru að
lokum með sigur af hólmi. Jón Arnór gerði 5 stig í leiknum. - sáp
CAI Zaragoza úr leik
Jón Arnór Stefánsson og félagar réðu ekki við Real.
Á FLEYGIFERÐ Jón Arnór sækir hér að körfu Real Madrid í leiknum í gær.
MYND/KARFAN.IS
FÓTBOLTI „Ég hef spilað á Íslandi í
sjö ár og ekki unnið neitt. Ég vildi
komast í lið sem hefði möguleika
á að vinna titil,“ segir Danka
Podovac, sem farið hefur á kost-
um í óstöðvandi liði Stjörnunnar í
sumar. Stjarnan hefur unnið alla
fimm leiki sína, aðeins fengið á
sig eitt mark og skorað tuttugu.
Átta þeirra hefur Danka skorað.
„Ég hef aldrei byrjað tímabil
jafnvel,“ segir Danka og minnir á
að þótt hún sé miðjumaður sinni
hún lítilli varnarskyldu. Hennar
hlutverk sé að koma samherjum í
færi og skora. „En ég væri aldrei
búin að skora svona mörg mörk ef
ekki væri fyrir frábæra frammi-
stöðu samherja minna.“
Höfðu ekki efni á henni
Danka hefur flakkað á milli liða
á Íslandi frá því hún gekk fyrst í
raðir Keflavíkur árið 2006. Eftir
þrjú tímabil með Keflavík lá leið-
in til Fylkis í Árbænum. Danka
skoraði 13 mörk í 17 leikjum með
Fylki en aftur söðlaði hún um.
„Hvorki Keflavík né Fylkir
höfðu nægt fjármagn til að geta
haldið mér þar,“ segir Danka.
Hún hafi því verið á flakki fyrir
nauðsyn enda knattspyrnan starf
hennar. Þór/KA á Akureyri naut
krafta hennar sumarið 2010 og
árin tvö á eftir var hún hjá ÍBV
í Eyjum.
„Við áttum möguleika á titlin-
um í fyrra hjá ÍBV en það tókst
ekki. Nú tel ég okkur vera með
besta liðið í deildinni. Ég hef
aldrei átt betri möguleika á að
vinna titilinn,“ segir Danka.
Engir hamborgarar
Danka býr með Megan Manthey,
bandarískum leikmanni Stjörn-
unnar. Hún segir þær stöllur ná
vel saman og samvistin gangi vel.
„Það eru engir hamborgarar,“
segir Danka og hlær aðspurð um
matinn sem herbergisfélaginn
bjóði upp á.
„Við eldum stundum saman
og skiptumst líka á. Svo förum
við stundum út að borða,“ segir
Danka sem varð íslenskur ríkis-
borgari í apríl. Hún segir ríkis-
borgararéttinn hafa hjálpað til
við að starfa innan Evrópu.
„Með vegabréf frá Serbíu er
erfitt að vera lengur en þrjá mán-
uði nokkurs staðar í Evrópu,“
segir Danka. Ísland getur þó ekki
nýtt Dönku í landslið sitt enda er
hún þrautreyndur landsliðsmað-
ur Serba.
kolbeinntumi@365.is
Markheppinn fl akkari
Danka Podovac hefur farið á kostum í Pepsi-deild kvenna í sumar. Danka er
markahæst í deildinni þrátt fyrir að leika sem framliggjandi miðjumaður.
Íslenski ríkisborgarinn saknar kærastans og fj ölskyldunnar heima í Serbíu.
BIRTING LÝSINGAR
Útgefandi: REG 2 Smáralind, fagfjárfestasjóður,
kennitala 621112-9960, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
REG 2 Smáralind, fagfjárfestasjóður, hefur birt lýsingu í tengslum við
umsókn um að flokkur eignavarinna skuldabréfa væri tekinn til
viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf.
Lýsingin er dagsett 4. júní 2013 og staðfest af Fjármálaeftirlitinu,
gefin út á íslensku og gefin út rafrænt og birt á vefsíðu Stefnis hf. sem
er rekstraraðili sjóðsins, nánar tiltekið á slóðinni
www.stefnir.is/kaupholl. Lýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu 12
mánuði. NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir opinberlega ef skuldabréfin
eru tekin til viðskipta og þá hvenær fyrsti mögulegi viðskiptadagur
með bréfin eru á hinum skipulega verðbréfamarkaði, en NASDAQ OMX
Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins
viðskiptadags fyrirvara.
Skuldabréfin eru gefin út af REG 2 Smáralind sem er
fagfjárfestasjóður rekinn af Stefni hf. Upphafleg höfuðstólsfjárhæð
útgefinna skuldabréfa, sem öll hafa verið seld, og heildarheimild
útgáfu nemur 6.600.000.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru gefin út
rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. Auðkenni flokksins er
REG2SM 12 2. ISIN-númer skuldabréfanna er IS0000022549. Bréfin
eru gefin út í íslenskum krónum og er hver eining skuldabréfanna 1 kr.
að nafnverði. Tilgangur með því að fá skuldabréfin tekin viðskipta á
skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. er að tryggja
fjárfestum að starfshættir og upplýsingagjöf um m.a. fjárhagsstöðu
útgefanda séu í samræmi við Reglur fyrir útgefendur fjármálagerninga,
útgefnar af NASDAQ OMX Iceland hf., eins og þær eru á hverjum tíma,
svo og að auka markaðshæfi skuldabréfanna.
Nánari upplýsingar um REG 2 Smáralind og skuldabréfaflokkinn
REG2SM 12 2 má finna í lýsingu sjóðsins. Fyrirtækjaráðgjöf
Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með því ferli að
fá skuldabréfin tekin til viðskipta í Kauphöllinni.
Reykjavík, 4. júní 2013
Stjórn Stefnis hf.
KEILIR
ÁSBRÚ
578 4000
keilir.net
NÝTT TÆKIFÆRI TIL NÁMS
HÁSKÓLABRÚ
Á Háskólabrú er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem
hafa ekki lokið stúdentsprófi. Að námi loknu uppfylla
nemendur inntökuskilyrði í háskóla hérlendis og erlendis.
Háskólabrú er skipulögð í samstarfi við Háskóla Íslands.
Kennsla á Háskólabrú fer fram í staðnámi og fjarnámi.
NÁMSFRAMBOÐ
FÉLAGSVÍSINDA- OG LAGADEILD
HUGVÍSINDADEILD
VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD
VERK- OG RAUNVÍSINDADEILD
Umsóknarfrestur til 5. júní