Fréttablaðið - 06.06.2013, Síða 4
6. júní 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
NJÓTTU ÞESS
AÐ TAKA
NÆSTA SKREF
FÉLAGSMÁL „Það er óásættanlegt að
börnum sé boðið upp á þær aðstæð-
ur að vera með fullorðnum á böllum
þar sem má vera með vín á flösk-
um,“ segir Inga Vildís Bjarnadótt-
ir úr samstarfshópi um forvarnir í
Borgarbyggð.
Forvarnarhópurinn gagnrýnir
svokölluð „flöskuböll“ í reiðhöllinni
í Faxaborg þar sem gestir mega
hafa með sér áfengi og þar sem ald-
urstakmarkið er aðeins sextán ár.
Hestamannafélögin Skuggi í Borg-
arnesi og Faxi í Borgarbyggð reka
Faxaborg, sem að stærstum hluta er
í eigu sveitarfélagsins.
Eftir ábendingu frá forvarnar-
hópnum í fyrra setti Borgarbyggð
reglur um að börn yngri en átján
ára mættu ekki sækja dansleiki í
húsnæði sem sveitarfélagið á nema
í fylgd með fullorðnum.
Síðasti dansleikurinn í Faxaborg
með sextán ára aldurstakmarki var
með Páli Óskari á síðasta vetrar-
dag. Forvarnarhópurinn hefur aftur
óskað eftir íhlutun sveitarfélagsins.
„Við erum ekki að tala
um að það sé hræði-
legt að detta í það einu
sinni heldur til hvers
það leiðir. Og við vilj-
um ekki að sveitar-
félagið bjóði upp
á þær aðstæður.
Ekki er Reykja-
víkurborg að
halda úti hús-
næði þar sem
sex t á n á ra
krakkar eru
velkomnir inn
á böll þar sem áfengi flýtur,“ segir
Inga Vildís.
„Þetta eru engin lög og við ákváð-
um að hunsa þetta,“ segir Kolbeinn
Magnússon, formaður stjórnar Sel-
áss, rekstrarfélags Faxaborgar.
Alger einhugur hafi verið um málið
hjá hestamannafélögunum.
Að sögn Kolbeins er um að ræða
tvo dansleiki á ári, svokallaða
Sauðamessu Borgnesinga í
október og ball sem reið-
höllin heldur sjálf í fjáröfl-
unarskyni á síðasta vetrar-
dag.
„Við verðum að halda
okkur á fullu gasi til að
missa ekki höllina held-
ur koma henni á réttan
kjöl,“ segir Kolbeinn og undirstrik-
ar að ballið síðasta vetrardag hafi
verið auglýst með leyfi sýslumanns.
„Við ákváðum að fara ekki að
þessum tilmælum þeirra og vera
í staðinn með mjög öflugt eftirlit.
Krakkarnir voru til algerrar fyrir-
myndar,“ segir Kolbeinn. „Okkur
persónulega, mér og mörgum fleiri,
finnst þessi forvarnarhópur fari
offari. Eru ekki sextán ára krakk-
ar betur komnir undir eftirliti á
samkomu en hangandi í sjoppum
og húsasundum?“
gar@frettabladid.is
Unglingaball með víni
tekjuleið fyrir reiðhöll
Forvarnarhópur segir „flöskuböll“ með sextán ára aldurstakmarki í reiðhöllinni
Faxaborg í Borgarnesi ávísun á unglingadrykkju. Forsvarsmaður Faxaborgar segir
böllin nauðsynlega fjáröflun. Því séu tilmæli um hækkun aldursmarksins hunsuð.
FAXABORG Reksturinn er í járnum og hestamannafélögin skjóta stoðum undir fjár-
haginn með balli síðasta vetrardag. MYND/FAXABORG
Okkur persónulega,
mér og mörgum fleiri,
finnst þessi forvarnarhóp-
ur fari offari.
Kolbeinn Magnússon,
formaður stjórnar Seláss.
PÁLL ÓSKAR Skemmti á
unglingaballi í Faxaborg
þar sem allt ku hafa farið
vel fram.
206.112 fólksbílar voru á skrá
hér á landi í lok árs 2011, sem
jafngilti um 0,6 bílum á hvert
mannsbarn.
Í árslok 2001 voru 159.865 bifreiðar
á skrá. Heimild: hagstofa.is
VIÐSKIPTI
Kamprad úr stjórn IKEA
Ingvar Kamprad, stofnandi sænsku
húsgagnaverslunarinnar IKEA, hefur
ákveðið að hætta í stjórn fyrirtækisins.
Kamprad, sem er orðinn 87 ára gamall,
mun eftirláta yngsta syni sínum,
Matthíasi, stjórnarformennskuna. IKEA
fagnar 70 ára afmæli á þessu ári.
SAMFÉLAGSMÁL Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, afhenti Bjarna
Benediktssyni fjármálaráðherra í gær undirskriftir vegna átaksins
Betra líf. Alls skrifuðu 31.000 undir í átakinu.
Markmiðið með söfnuninni er að skora á stjórnvöld að verja tíu
prósentum af áfengisgjaldi til að byggja upp úrræði fyrir verst settu
áfengis- og vímuefnasjúklingana og að aðstoða fólk eftir meðferð
til að komast til virkni í samfélaginu. Þá vill SÁÁ einnig nýta féð til
að skapa úrræði fyrir börn sem alast upp við álag vegna mikillar
ofneyslu á heimilum. - kóp
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók við undirskriftum:
31.000 skrifuðu undir hjá SÁÁ
UNDIRSKRIFTIR AFHENTAR Stjórnvöld eru hvött til að nota hluta áfengisgjalds í
úrræði fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NÝSKÖPUN Alls sóttu 207 teymi um
þátttökurétt í Startup Reykjavík
sem haldið verður í annað sinn í
sumar. Í fyrra sóttu 179 teymi um.
Það eru Arion banki og Klak-Inn-
ovit sem standa að Startup Reykja-
vik. Hafa aðilarnir valið tíu teymi
af þeim sem sóttu um til þátttöku.
Mun hvert þessara tíu teyma fá
tvær milljónir króna í hlutafé frá
Arion banka gegn 6 prósent hlut í
viðkomandi félagi. Þá verður þeim
útveguð vinnuaðstaða og ráðgjöf
frá sérfræðingum.
Meðal félaga sem taka munu þátt
eru Þoran Distillery, sem hyggst
framleiða fyrsta íslenska viskíið,
og Silverberg, sem hannar, þróar og
selur mælingarbúnað fyrir líkams-
ræktarstöðvar og hugbúnað sem
gerir notendum kleift að fylgjast
með líkamsræktarárangri sínum.
Þá er félagið Zalibuna meðal
þátttakenda, sem hefur áhuga á því
að hanna og setja upp sleðarenni-
braut niður Kambana og byggja upp
ferðaþjónustu í tengslum við renni-
brautina. - mþl
Tíu teymi valin til þátttöku í Startup Reykjavik árið 2013:
Hanna rennibraut í Kömbunum
HUGMYND KYNNT Teymum sem sóttu
um þátttöku í Startup Reykjavik fjölgaði
um 15,6% milli ára.
STJÓRNMÁL Flestir treysta Katr-
ínu Jakobsdóttur, formanni
Vinstri grænna, best allra stjórn-
málamanna. Traust til Katrínar
er 62,5 prósent en var 44,4 pró-
sent í síðustu mælingu MMR.
48,8 prósent bera traust til for-
sætisráðherrans Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugssonar. Ríflega 56
prósent sögðust treysta forsetan-
um Ólafi Ragnari Grímssyni.
93,4 prósent kjósenda Sam-
fylkingarinnar sögðust treysta
Katrínu en aðeins 76,6 prósent
formanni flokksins, Árna Páli
Árnasyni. - þeb
Ný könnun MMR:
Flestir treysta
Katrínu best
NÁTTÚRA
Miklir vatnavextir
Veðurstofa Íslands hefur varað við
hættu á skriðuföllum, krapaflóðum og
áframhaldandi vatnavöxtum víða um
land á næstunni. Mikil hlýindi hafa
verið á Norður- og Austurlandi síðustu
daga og flóð hafa komið í ár vegna
snjóbráðnunar.
VINNUMARKAÐUR Ísland er einkar
ákjósanlegur staður fyrir gagna-
ver samkvæmt nýrri skýrslu sem
ráðgjafafyrirtækið BroadGro-
up vann fyrir Landsvirkjun. Að
mati BroadGroup hefur landið
samkeppnisforskot á önnur lönd,
vegna hreinnar og ódýrrar orku.
Ríkarður Ríkarðsson, forstöðu-
maður hjá Landsvirkjun, segir
vb.is að skýrslan staðfesti að
Ísland búi yfir öllum þeim grunn-
þáttum sem þarf fyrir gagnavers-
iðnað. - le
Hrein orka skilar árangri:
Ísland vænlegt
fyrir gagnaver
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Veðurspá
Laugardagur
Víða hægviðri.
LJÓMANDI Hægviðri og hlýtt á A-verðu landinu næstu daga en ákveðnari vindur
SV-til fram að helgi. Dálítil væta V-lands og stöku skúr NA-til síðdegis. Hiti 10-18 stig í
dag en 8-16 stig á morgun. Lítur út fyrir milt veður um helgina.
9°
6
m/s
10°
5
m/s
11°
7
m/s
10°
7
m/s
Á morgun
5-13 m/s SV-til, víða hægviðri A-til.
Gildistími korta er um hádegi
11°
9°
10°
13°
13°
Alicante
Basel
Berlín
23°
26°
23°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
21°
23°
24°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
19°
19°
22°
London
Mallorca
New York
19°
26°
21°
Orlando
Ósló
París
27°
17°
26°
San Francisco
Stokkhólmur
18°
21°
12°
2
m/s
13°
5
m/s
17°
2
m/s
16°
2
m/s
17°
2
m/s
13°
4
m/s
11°
4
m/s
11°
8°
13°
15°
13°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður