Fréttablaðið - 19.08.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
KERTALJÓS OG NOTALEGHEITSumarið líður fljótt og nú er aftur kominn tími kertaljósa á
kvöldin. Það er reyndar kósí að kveikja á kertum en ef veður er
gott má sitja úti á verönd með kertaljós í luktum. Stemningin
verður róandi og notaleg.
STOFU-
STÁSS Rakel Sævarsdóttir listfræðingur endurhleður
batteríin við
uppáhalds-
hlutinn sinn
á heimilinu,
píanóið. Rakel heldur úti bæði myndlistar-
galleríi og
hönnunar-
verslun á
netinu.
MYND/GVA
É h
KÚPLAR SIG ÚT ÚR AMSTRI DAGSINSHEIMILI Rakel Sævarsdóttir listfræðingur heldur úti myndlistargalleríi á netinu og hönnunarverslun. Hún leikur á píanó til að endurhl ð
Kynningarblað Starfsmannaráðgjöf og heildarlausnir, ferilskrá, ráðningar og þjónusta.
ATVINNUMIÐLUN
MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2013
& RÁÐGJÖF
Fyrirtækið hefur náð góðri fótfestu og byggir starfsemina upp á orðsporinu og árangri
þeirra verka sem við vinnum með
viðskiptavinum okkar. Verkefnin
hafa mörg hver verið mjög
umfangsmikil og skilað miklum
virðisauka f yrir f yrirtæki og
stofnanir,“ segir framkvæmdastjóri
Intellecta, Þórður S. Óskarsson, sem
jafnframt leiðir mannauðsráðgjöf
fyrirtækisins.
Umbótadrifin ráðgjöf
Ráðgjafaþjónusta Intellecta er
f jölþætt og snertir á f lestu
Fagmennska í ráðgjöf,
ráðningum og rannsóknumIntellecta er 12 ára gamalt sjálfstætt þekkingarfyrirtæki með áherslu á þróun og innleiðslu lausna sem skila árangri fyrir viðskiptavini. Fyrirtækið starfar á þremur meginsviðum; rannsóknum, ráðningum og rekstrarráðgjöf. Nú starfa níu einstaklingar sem ráðgjafar hjá fyrirtækinu og búa yfir umfangsmikilli reynslu í ráðgjöf og rekstri.
FASTEIGNIR.IS19. ÁGÚST 2013
33. TBL.
Glæsileg
fjölbýlishús
eru að rísa við
Kirkjulund í
Garðabæ.
Auður Kristinsdóttir
Suðurlandsbraut 22
| Opið mán. – fös. f
rá kl. 9–17 | www.h
eimili.is
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Stefán Már
Stefánsson
sölufulltrúi
Ásdís Írena
Sigurðardóttir
skjalagerð
Ruth
Einarsdóttir
sölufulltrúi
Bogi
Pétursson
lögg.fasteignasali
Gústaf Adolf
Björnsson
lögg. fasteignasali
Finndu okkur á Face
book
Erla Dröfn
Magnúsdóttir
lögfræðingur
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Mánudagur
12
3 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Atvinnumiðlun | Fólk
Sími: 512 5000
19. ágúst 2013
193. tölublað 13. árgangur
Hræðsluáróður um
matvælaöryggi
Umhverfisráðherra segir að stofnanir
eigi að leita til ráðuneytisins um
úrlausnir frekar en að hlaupa með
hræðsluáróður í fjölmiðla. Til skoð-
unar er í ráðuneytinu hvernig skuli
mæta því að IPA-styrkur til verkefnis-
ins Örugg matvæli fellur niður. 2
Mannskætt ferjuslys Tæplega
40 manns fórust í ferjuslysi við
Filippseyjar í fyrrinótt. Tuga er enn
saknað. 2
Köfnuðu í fangaflutningum Tugir
egypskra mótmælenda létust þegar
þeir gerðu uppreisn í fangaflutninga-
bíl og köfnuðu á táragasi. 8
SKOÐUN Stjórnmálamenn eiga ekki
að hafa boðvald yfir fréttamönnum,
skrifar Guðmundur Andri Thorsson. 13
MENNING Þórður Marteinsson
er 77 ára og leikur á harmóníku í
miðbænum á hverjum sunnudegi. 34
SPORT Framarar unnu sinn fyrsta
bikarmeistaratitil í 24 ár eftir stór-
skemmtilegan úrslitaleik. 30
NÝR MATSEÐILL FYLGIR
BLAÐINU Í DAG.
Ómissandi
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjallawww.lyfja.is
Ný og
glæsileg
Lyfja við
Nýbýlaveg
- Lifi› heil
Opnunartilboð
14.-19. ágúst
25-50% afsláttur
af völdum vörum.
UTANRÍKISMÁL „Ég er algjörlega
ósammála orðum utanríkisráð-
herra. Það er alveg ljóst af hálfu
forystu Sjálfstæðisflokksins
að það eigi að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hvort halda
eigi áfram viðræðum við Evrópu-
sambandið. Það er minn skiln-
ingur,“ segir Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, spurð um
þá skoðun Gunnars Braga Sveins-
sonar utanríkisráðherra að ekk-
ert sé í hendi um það hvort málið
verði lagt í dóm þjóðarinnar að
undangenginni úttekt á stöðu við-
ræðnanna og þróun sambandsins.
Ragnheiður segir að í aðdrag-
anda kosninga hafi verið talað um
að þjóðaratkvæðagreiðsla yrði
haldin á fyrri hluta kjörtímabilsins.
Þá skoðun settu oddvitar stjórn-
arflokkanna, formennirnir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson og
Bjarni Benediktsson, meðal annars
fram í viðtali við Fréttablaðið 24.
apríl síðastliðinn. Þá sagði Bjarni
það hluta af stefnu Sjálfstæðis-
flokksins „að opna fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðslu til að útkljá þetta
mál og við munum standa við það“.
Spurð um texta stjórnarsátt-
málans þar sem vikið er að fram-
haldinu í Evrópumálum, og hvort
hann sé óskýr, segir Ragnheiður
ekki svo vera í sínum huga og
túlka textann þannig að stefnt
væri að því að spyrja þjóðina,
en „ekki hvort ætti að gera það
einhvern tímann eða ekki á kjör-
tímabilinu. Það er ekki minn
skilningur og ekki í samræmi
við það sem við Sjálfstæðismenn
töluðum í aðdraganda kosninga,“
segir Ragnheiður. - shá / sjá síðu 4
Þjóðaratkvæði skýr
vilji Sjálfstæðisflokks
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks telur það skýran vilja flokksins að efna skuli
til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Það skuli gert
fyrr en seinna og hafnar skoðun utanríkisráðherra um hið gagnstæða.
HLUTI AF FJÖLSKYLDUNNI Særún Birta og Birgir Logi Birgisbörn hafa tekið ástfóstri við Bíbí eftir að fjölskyldan hjálpaði henni
að brjótast úr egginu snemmsumars. MYND/KRISTÍN INGUNN GÍSLADÓTTIR
Ég er
algjörlega
ósammála
orðum
utanríkis-
ráðherra.
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
DÝRALÍF Fjölskylda í Reykjanesbæ
varð einni gæs ríkari eftir eggja-
tínsluferð við smábátahöfnina þar
í bæ. Tína átti mávaegg en þegar
ljóst var að elsta dóttirin á heim-
ilinu hafði nælt í gæsaregg var
ákveðið að reyna að klekja því út
heima. Niðurstaðan er heimilis-
gæsin Bíbí sem fylgir fjölskyld-
unni hvert sem farið er.
Húsbóndinn, Birgir Haukdal
Rúnarsson, segir að fjölskyldan
hafi verið á vöktum í sumar af
þessum völdum. „En ég hef ekki
þurft að slá blettinn,“ segir hann.
Í verslunarferðum notar fjöl-
skyldan hundabúr sem gæsin
unir sér ágætlega í, svo dæmi sé
tekið.
Bíbí er eins og ein af fjölskyld-
unni en þó vonast allir til að
gæsin hefji sig á loft með sínum
líkum í haust á leið til vetrar-
stöðva. - jse / sjá síðu 6
Gæs er nýjasti meðlimur fjölskyldu í Reykjanesbæ og krefst mikillar athygli:
Bíbí eltir fjölskylduna á röndum
Svo höfum við sett
spegil hjá henni á svöl-
unum svo að hún sjái
sjálfa sig en við erum hálf
smeyk við að leiða hana til
annarra gæsa því það er
margt um varginn hérna.
Kristín Ingunn Gísladóttir
gæsarfóstra
Bolungarvík 5° N 7
Akureyri 10° NV 6
Egilsstaðir 12° V 5
Kirkjubæjarkl. 11° SV 8
Reykjavík 11° SV 5
Víða væta Í dag má búast við
strekkingi við SA-ströndina, annars
5-10 m/s. Rigning eða skúrir í flestum
landshlutum, síst suðaustantil. 4
ÍÞRÓTTIR Elfar Árni Aðalsteins-
son, leikmaður Breiðabliks, fékk
þungt höfuðhögg í leik liðsins við
KR í Pepsi-deild karla á Kópavogs-
velli í gærkvöldi.
Elfar Árni missti
meðvitund og var
veitt aðhlynning
á vellinum áður
en hann var flutt-
ur með sjúkrabif-
reið á Landspítal-
ann.
Illa horfði um
tíma og þurfti að
beita endurlífgunaraðferðum áður
en mögulegt var að flytja Elfar
Árna undir læknishendur. Var leik-
urinn flautaður af í kjölfarið, enda
treystu leikmenn liðanna sér ekki
til þess að halda leiknum áfram.
Samkvæmt tilkynningu frá
knattspyrnudeild Breiðabliks í
gærkvöldi lofuðu fyrstu rannsókn-
ir á Landspítalanum góðu. - shá
Breiðablik-KR flautaður af:
Fluttur á spítala
eftir höfuðhögg
ELFAR ÁRNI
AÐALSTEINSSON
BRUNI Allt tiltækt lið Slökkviliðsins
á höfuðborgarsvæðinu var kallað
að yfirgefnu húsi við Hverfisgötu
í gærkvöldi. Húsið stendur við
Hjartagarðinn svokallaða við hlið
Hótel Klappar. Staðið hefur til að
rífa húsið.
Húsið var alelda þegar komið
var að, en slökkvilið náði fljótlega
að hemja eldinn. Slökkvistarfi var
að mestu lokið þegar Fréttablaðið
fór í prentun, en þá unnu slökkvi-
liðsmenn að frágangi.
Lögregla mun vinna að því á
morgun að rannsaka eldsupptök. - shá
Allt lið SHS kallað út:
Hús alelda við
Hverfis götu
ÓNÝTT Húsið var alelda þegar slökkvi-
lið bar að. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL