Fréttablaðið - 19.08.2013, Blaðsíða 4
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Stjórnarandstaðan kallar eftir svörum
UTANRÍKISMÁL Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt
af hálfu forystu flokksins að efna skuli til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræð-
um við Evrópusambandið.
„Ég er algjörlega ósammála orðum utanríkisráð-
herra,“ segir Ragnheiður um þá
skoðun Gunnars Braga Sveinssonar
utanríkisráðherra, að ekkert sé í
hendi um það hvort málið verði lagt
í dóm þjóðarinnar að undangenginni
úttekt á stöðu viðræðnanna og þróun
sambandsins.
Á föstudag sagði Gunnar Bragi
í viðtali við fréttastofu Ríkisút-
varpsins að ekkert stæði um það í
stjórnar sáttmála Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks að það ætti að boða til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni
í gær sagði hann jafnframt að hann sæi það ekki fyrir
sér að kosið yrði um málið samhliða sveitarstjórn-
arkosningum í vor. Þar ítrekaði hann umbúðalaust
þá skoðun sína að ekki eigi að kjósa um áframhald
aðildar viðræðna.
Ragnheiður telur ofsagt að risið sé erfitt deilumál
innan stjórnarinnar. Spurð um texta stjórnarsáttmál-
ans þar sem vikið er að framhaldinu í Evrópumálum,
og hvort hann sé óskýr, segir Ragnheiður ekki svo
vera í sínum huga og bætir við að í aðdraganda kosn-
inga hafi verið talað um að þjóðaratkvæðagreiðsla
yrði haldin á fyrri hluta kjörtímabilsins.
Í viðtölum við Fréttablaðið 24. apríl lýstu oddvitar
ríkisstjórnarinnar, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra, yfir þessari skoðun. Þá sagði Bjarni
að hluti af stefnu Sjálfstæðisflokksins væri „að opna
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu til að útkljá þetta mál og
við munum standa við það“.
Á þeim tíma játuðu Bjarni og Sigmundur því báðir
að það væri engin kjörstaða ef þjóðin samþykkti fram-
hald ef Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur
mynduðu stjórn, ef það væri skoðun flokkanna beggja
að Íslandi væri betur borgið utan sambandsins.
svavar@frettabladid.is
Orð utanríkisráðherra þvert
á stefnu samstarfsflokksins
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir það skýrt að forysta flokksins vilji að efnt verði til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Utanríkisráðherra hafnar þeirri leið.
RAGNHEIÐUR
RÍKHARÐSDÓTTIR
SJÁVARÚTVEGUR Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, segir að ekki sé
verið að brjóta lög með nýju frum-
varpi um úthafsrækjuveiðar.
Adolf Guðmundsson formaður
LÍÚ segir að samkvæmt lögum
um stjórn fiskveiða beri ráðherra
að úthluta aflamarki í úthafsrækju
samkvæmt núgildandi aflahlut-
deildum fyrir næsta fiskveiðiár
sem hefst 1. september. Annað sé
skýrt lögbrot.
Sigurður segir að þegar Jón
Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs-
ráðherra, ákvað að gefa veiðarnar á
úthafsrækju frjálsar árið 2010 hafi
skort á að skera úr um hvernig yrði
farið með réttindi þeirra sem fyrir
réðu yfir aflahlutdeild í tegundinni,
og hins vegar rétti þeirra sem veið-
arnar stunduðu undir frjálsa fyrir-
komulaginu.
„Í ljósi þess að við byggjum
okkar sjálfbæru og ábyrgu veiðar
upp á aflahlutdeildarkerfi, og þess
að veiðar hafa farið langt fram úr
ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, er
mikilvægt að veiðarnar lúti stjórn
á ný,“ segir Sigurður Ingi.
Sigurður segir ráðuneytið hafa
aflað sér álits á því hvaða leið-
ir væru lagalega færar í þessum
efnum. „Niðurstaðan er að hefja
vinnu við frumvarp þar sem eldri
aflahlutdeildir ráði að 7/10 hlutum
en veiðireynsla síðustu þriggja ára
að 3/10 hlutum. Með þessu tel ég að
litið sé til hagsmuna beggja hópa.
Og tel ég það vera í samræmi við
niðurstöður lagaálitanna.“
Sigurður tekur sérstaklega fram
að um einstakt mál sé að ræða og
það sé því ekki fordæmisgefandi.
- shá
Sjávarútvegsráðherra segir engin lög brotin með nýju frumvarpi um úthafsrækjuveiðar:
Nauðsyn að ná aftur stjórn á rækjuveiði
SIGURÐUR INGI
JÓHANNSSON
ADOLF
GUÐMUNDSSON
GUÐMUNDUR
STEINGRÍMSSON
FORMAÐUR BETRI
FRAMTÍÐAR
Mér
finnst
mikil-
vægt að
ríkis-
stjórnin
skýri
hvað
hún
ætlast fyrir. […] Alþingi er
búið að taka afdráttarlausa
ákvörðun um að sækja um.
[…] Nú stendur greinilega
til að virða ekki vilja
Alþingis – hvað þá?
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
FULLTRÚI VINSTRI
GRÆNNA Í UTAN-
RÍKISMÁLANEFND
Ummæli
frá for-
manni
Sjálf-
stæðis-
flokksins
benda
til þess
að það
sé ágreiningur um málið á
milli stjórnarflokkana. Ég
tel óumflýjanlegt að ríkis-
stjórnin taki málið inn á
Alþingi til umfjöllunar.
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
ÞINGMAÐUR PÍRATA
Það
blasir
við að
ríkis-
stjórnin
óttast
vilja
þjóðar-
innar.
En það sem truflar mig við
þetta ferli er að þetta er
algjör lögleysa. Þingið álykt-
aði að sækja um aðild að
ESB og enginn aðili annar
en þingið sem getur dregið
þá ályktun til baka.“
18.972 innflytj-endur bjuggu á
Íslandi árið 2012.
Fyrir tíu árum voru þeir aðeins
8.817.
„Gert verður hlé á
aðildarviðræðum Íslands
við Evrópusambandið
og úttekt gerð á stöðu
viðræðnanna og þróun
mála innan sambands-
ins. Úttektin verður lögð
fyrir Alþingi til um-
fjöllunar og kynnt fyrir
þjóðinni. Ekki verður
haldið lengra í aðildar-
viðræðum við Evrópu-
sambandið nema að
undangenginni þjóðar-
atkvæðagreiðslu,“ segir í
stjórnarsáttmálanum.
➜Þjóðaratkvæði
er forsenda
framhalds
LÖGREGLUMÁL Brögð eru að því
að erlendir glæpamenn reyni að
svíkja fé út úr fólki með því að
leigja því íbúðir sem ekki eru til.
Ríkisútvarpið sagði frá málinu í
gærkvöldi.
Eins og er kunnugt er eftir-
spurn eftir húsnæði mikil á höf-
uðborgarsvæðinu, en framboðið
lítið. Þetta nýta glæpamenn sér,
segir í frétt RÚV.
Til þess að auka trúverðug-
leika sinn segja þeir að fyrir-
tæki á borð við TNT hraðflutn-
inga ábyrgist viðskiptin. Héðinn
Gunnarsson, forstöðumaður TNT
á Íslandi, segir að fjölmörg svona
mál hafi komið inn á borð fyrir-
tækisins að undanförnu. - shá
Margir hafa tapað fé:
Reyna fjársvik
með leigubraski
NOREGUR Norski rithöfundurinn
Marit Christensen vinnur nú að
því að gefa út
bók um móður
Anders Behring
Breivik, Wenche
Behring Brei-
vik, og hennar
sýn á voðaverk
hans sem fram-
in voru í júlí
árið 2011.
Móðir Brei-
viks tjáði sig aldrei opinberlega í
fjölmiðlum um atburðinn, en nú
er komið í ljós að hún átti nán-
ast í daglegum samskiptum við
Christ ensen. Bókin á að koma út,
nú í haust, en frú Breivik dó seint
í mars á þessu ári. Nánast eng-
inn vissi af því að konurnar tværi
ynnu saman að verkefninu en nú
hefur bókaforlagið Aschehoug
staðfest að bókin komi út og muni
bera titilinn „Móðirin“. - nej
Bók að koma út í haust:
Móðir Breiviks
opnar sig
MARIT
CHRISTENSEN
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
LY K I L R I T
SKOTVEIÐIMANNSINS
Loksins
fáanleg
aftur!
UPPFÆRÐ
3. ÚTGÁFA
Fjallað er um veiðiaðferðir,
bráð, siðfræði, lög og reglur
Fjöldi skýringarmynda, korta,
teikninga og ljósmynda
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Þriðjudagur
6-15 m/s, hvassast vestantil.
KAFLASKIPT Það skiptast á skin og skúrir næstu daga. Í dag eru horfur á vætu með
köflum í flestum landshlutum, á morgun léttir til sunnan og vestantil og norðantil
síðdegis og á miðvikudaginn þykknar upp á nýjan leik SV- og V-til með rigningu.
5°
7
m/s
8°
5
m/s
11°
5
m/s
12°
11
m/s
Á morgun
10-15 m/s NA- og A-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
11°
10°
12°
11°
12°
Alicante
Aþena
Basel
30°
32°
29°
Berlín
Billund
Frankfurt
23°
22°
22°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
24°
21°
21°
Las Palmas
London
Mallorca
26°
22°
32°
New York
Orlando
Ósló
27°
31°
22°
París
San Francisco
Stokkhólmur
24°
21°
21°
11°
8
m/s
10°
13
m/s
12°
5
m/s
9°
8
m/s
10°
6
m/s
7°
5
m/s
5°
7
m/s
12°
9°
11°
8°
8°
FUNDAÐ UM FRAMHALDIÐ Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra átti fund með Štefan Füle stækkunarstjóra ESB í júní. Það
kynnti Gunnar vilja nýrrar ríkisstjórnar. MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ