Fréttablaðið - 19.08.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 19.08.2013, Síða 2
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 FILIPPSEYJAR, AP Að minnsta kosti 39 hafa látist og hátt í níutíu er enn saknað eftir að farþegaferja sökk undan ströndum Filippseyja í fyrrinótt eftir árekstur við flutningaskip. Sjóslys sem þessi eru algeng við Filippseyjar vegna ýmissa samverkandi þátta; veður eru oft viðsjárverð á þessum slóðum auk þess sem ástandi skipaflotans er víða ábótavant og opinbert eftirlit er afar veikburða. Alls voru 870 um borð í Thomas Aquinas, sem var að sigla inn til borgarinnar Cebu á leiðinni til höfuð- borgarinnar Maníla, sem er um 350 sjómílum sunnar, þegar ósköpin dundu yfir. Aðstæður voru góðar, sjór- inn var sléttur og ljósin frá landi sáust í fjarska þegar skipin skullu saman með þeim afleiðingum að gat kom á skrokk Thomas Aquinas, sem fór á hliðina og sökk skömmu síðar. Fylkisstjórinn í Cebu, Hilario Davide að nafni, sagði að 751 hefði verið bjargað, en ekkert benti til þess að fleiri myndu finnast á lífi. Hann vildi þó ekki gefa upp alla von. Óhappið bar að með þeim hætti að flutningaskipið var á leið út úr höfninni í Cebu og sigldi á ferjuna. - þj Mannskætt sjóslys undan ströndum Filippseyja í fyrrinótt: 39 létust og tuga er enn saknað LEITAR ÁSTVINA Roderick Mama beið frétta af konu sinni og sonum sem voru í ferjunni Thomas Aquinas sem sökk í nótt út af Filippseyjum. Að minnsta kosti 39 létust og rúmlega 80 er enn saknað úr slysinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SLYS Kona á áttræðisaldri lést aðfaranótt sunnudags þegar hjólhýsi hennar brann til kaldra kola í Þjórsárdal. Maður konunnar náði að komast út úr hjólhýsinu og var fluttur á slysadeild. Maðurinn brenndist í andliti og á höndum, en er ekki talinn alvarlega slasaður. Hann liggur enn á Landspítalanum og er líðan hans stöðug. Vonast er til að maður- inn verði útskrifaður á næstu dögum. Konan var hins vegar úrskurðuð látin á staðnum og vinnur lögreglan á Selfossi nú að rannsókn málsins. Ekki er enn vitað hvað olli brunanum en þau svör bárust frá lögreglunni að búið væri að safna gögnum af vettvangi og verið að vinna úr þeim. „Það er einnig verið að taka skýrslur af fólki sem varð vitni að þessu.“ Nokkrir urðu vitni að slysinu en mörg hýsi eru á svæðinu og varð nágrönnum bilt við þegar þeir heyrðu háværa hvelli þegar gas- kútar sprungu. Sveinn Enok Jóhannsson, eitt vitnanna, reyndi að bjarga konunni án árangurs. „Í geðs- hræringu ætlaði ég að reyna að brjóta rúðuna, en hún var úr plasti þannig að það gekk illa,“ sagði maðurinn í samtali við Fréttablaðið. Konan sem lést og maður hennar hafa haft hjólhýsi á staðnum í mörg ár. - hv, le Ekki er enn vitað hvað olli bruna í hjólhýsi sambýlisfólks í Þjórsárdal aðfaranótt sunnudags: Lést þegar kviknaði í hjólhýsi í Þjórsárdal RÚSTIR EINAR Hjólhýsið brann til kaldra kola, eins og sjá má á þessari mynd. SPURNING DAGSINS NEYTENDUR Unnið er að því innan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu- neytisins hvernig því verður mætt að IPA-styrkur Evrópusambands- ins til verkefnisins Örugg matvæli fellur niður. Verkefnið snýst um að auka enn frekar matvæla- öryggi á Íslandi og talið nauðsyn- legt til að standa við skuldbind- ingar sem Ísland hefur undirgeng- ist með samþykkt matvælalöggjaf- ar á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Matís og Matvælastofnun sendu frá sér neyðarkall vegna málsins á fimmtudag og minntu á að undan- þágur Íslandi til handa á matvæla- löggjöfinni myndu falla niður ef verkefnið fengi ekki framgang. Þar sagði jafnframt að ef íslensk stjórnvöld brygðust ekki við væri matvælaöryggi á Íslandi stefnt í hættu. Um talsverða fjármuni er að tefla; 1,9 milljónir evra eða rúmlega 300 milljónir íslenskra króna. „Matvælaöryggi á Íslandi er eitt það öruggasta í heimi. Mikilvægt er að viðhalda þeirri stöðu þrátt fyrir að vera komin inn á innri markað ESB. Nú hefur ESB dregið til baka IPA-styrki sem meðal annars átti að nýta til tækjakaupa. Það kallar á nýja nálgun í fjármögnun þess verkefnis og verður farið yfir stöðu þessa máls innan ráðuneytisins og er unnið að því,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, í skriflegu svari til Fréttablaðsins við spurningunni hvort stjórnvöld ætluðu að taka við boltanum og fjármagna verkefnið. „Ég tel að skynsamlegra hefði verið af þessum stofnunum að leita til ráðuneytisins um hvernig nálgast megi málið lausnamiðað, og þróa þá vinnu sem liggur fyrir að nú þarf að fara í, í stað þess að vera með hræðsluáróður í fjölmiðl- um, segir Sigurður Ingi jafnframt í svari sínu. Í fréttatilkynningunni segir „að neytendur verða að geta gengið að því vísu að matvæli hérlendis ógni ekki heilsu þeirra og ofangreint verkefni er liður í að tryggja það“. Verkefnið Örugg matvæli var sett af stað til að vinna að upp- byggingu nauðsynlegs tækjabún- aðar. Starfsfólk rannsóknaaðila og eftirlitsaðila á jafnframt að þjálfa í notkun búnaðar, löggjöf, sýnatök- um og gæðamálum, sem tengjast matvælaeftirliti og matvælarann- sóknum. svavar@frettabladid.is Segir hræðsluáróður óskynsamlega leið Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur til skoðunar hvernig því verður mætt að IPA-styrkur ESB til verkefnisins Örugg matvæli fellur niður. Stofnanir hefðu átt að leita beint til ráðuneytisins í stað hræðsluáróðurs, segir ráðherra. SIGURÐUR INGI JÓHANNSSON Í KJÖTBORÐINU Verkefnið Örugg matvæli hafði fengið styrk frá ESB að andvirði rúmlega 300 milljóna króna áður en hann var afturkallaður. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ● Samkvæmt reglugerð [matvælalöggjafar EES] er skylda að mæla að minnsta kosti 190 varnarefni í matvælum og krafist er getu um að mæla minnst 300 varnarefni. ● Í dag eru einungis mæld 63 varnarefni og því ekki vitað hvort önnur varnarefni séu til staðar í matvælum hér á landi. ● Sýni af náttúrulegum eiturefnum s.s. sveppaeiturefnum og sýni til mælinga á eiturefnum í skelfiski þarf í dag að greina erlendis. ● Árið 2011 voru átta af 276 eftirlitssýnum vegna varnarefna yfir leyfilegum mörkum, en árið 2012 voru þrjú af 275 eftirlitssýnum yfir leyfilegum mörkum. Það sem af er árinu hafa fimm af 140 eftirlits- sýnum innihaldið varnarefni yfir leyfilegum mörkum. Skylt að geta greint 300 varnarefni BRUNI Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað til þegar reykur kom upp á veitingastaðnum Sólon í Bankastræti á sautjánda tímanum í gær. Upptök voru í kjallara hússins þar sem kviknað hafði í djúp- steikingarpotti í eldhúsi veitingarstaðarins. Öllum gestum og starfsfólki var gert að yfirgefa veitingastaðinn á meðan slökkviliðið var að störfum. Engum varð meint af. Slökkviliðið hafið mikinn viðbúnað vegna útkallsins en betur fór en á horfðist. - le Kviknaði í djúpsteikingarpotti í kjallara hússins: Sólon rýmdur vegna reykjarkófs ELDUR Í SÓLON Gestum og starfsfólki veitingastaðarins Sólons var gert að yfirgefa staðinn eftir að eldur kviknaði í kjallara hússins. Engum varð þó meint af. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Hreinn, er gálgafresturinn liðinn.“ „Nei, það er ekki verið að hrauna yfir neinn.“ Framkvæmdir eru hafnar við vegagerð í gegnum Gálgahraun á Álftanesi. Hreinn Haraldsson er vegamálastjóri. Hann segir ekki eftir neinu að bíða, enda búið að ganga frá verkinu; útboði og skipulagi auk þess að fara í gegnum kæruferli oftar en einu sinni. FRAMKVÆMDIR Framkvæmda- sýsla ríkisins auglýsti nú um helgina eftir tilboðum í byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði fyrir hönd Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur innanríkisráðherra. Tilboð verða opnuð 5. desember. Í auglýsingunni kemur fram að verkinu skuli vera lokið eigi síðar en 1. desember árið 2015. Staðið hefur til að byggja nýtt fangelsi í þó nokkurn tíma en Ögmundur Jónsson, þáverandi innanríkisráðherra, tók fyrstu skóflustunguna á Hólmsheiði, þann 4. apríl síðastliðinn. - le Auglýst eftir tilboðum: Bygging fang- elsis boðin út NÁTTÚRA Þyrla Landhelgisgæsl- unnar flaug á föstudag með vís- indamenn frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun í Kverkfjöll eftir að landverðir greindu frá því að göngubrú yfir ána Volgu hefði tekið af í miklum vatnavöxtum. Í ljós kom að lón sem kallað er Gengissig var tómt og jafnframt höfðu orðið gufusprengingar í kjölfarið sem vegna snöggrar þrýstiléttunar. Ferðafólk er beðið um að gæta fyllstu varúðar og vera í sam- bandi við landverði á svæðinu til að leita ráða. - shá Lónið Gengissig tæmdist: Göngubrú yfir Volgu tapaðist

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.