Fréttablaðið - 19.08.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 19.08.2013, Blaðsíða 16
19. ágúst 2013 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 16 PRÓTEINRÍKT OG FITULAUST Suðræni Skyr.is drykkurinn er kominn aftur Kolvetnaskertur H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA ENGINN HVÍTUR SYKUR NÝTT MANGÓ & ÁSTARALDIN Stór dægurmál eru á dag- skrá á þessu síðsumri: Breytingar á skilyrð- um Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir lánum til ungmenna í námi, skuldamál heimilanna, sem enn er verið að greiða úr eftir kollsteyp- una 2008, og stytting náms til stúdentsprófs. Þegar nánar er að gætt skarast þessi mál á ýmsa vegu. Skilyrði til menntun- ar hafa breyst mikið á einum mannsaldri. Fyrir fjörutíu árum var algengast að unglingar færu að vinna eftir gagnfræða- próf við sautján ára aldur eða í starfsnám sem var lokið við tví- tugsaldurinn. Þá tók við lífsbar- áttan; starfsframinn og stofnun fjölskyldu. Hlutfallslega fáir fóru í framhaldsnám eftir tvítugsald- urinn og þá lá leiðin oft fyrr en síðar til útlanda. Fjöldi þeirra sem hefur haldið áfram námi eftir tvítugt hefur margfaldast og valkostum hefur fjölgað. Við hóp unga fólksins hafa bæst skarar eldra fólks sem missti af því sem var áður aðeins fyrir fáa, fyrst stúdentsprófi og síðan fjölbreyttu háskólanámi, meistaranámi og doktorsnámi. Nú er að mokast ofan af þeim kúfi og kominn tími til að staldra við og rifja upp. Ólík framtíðaráform Fyrir 1970 var ekki hægt að ljúka stúdentsprófi nema læra fimm erlend tungumál þótt á stærðfræðibraut væri. Menntaskólarnir hófust 1. október og sum- arfrí nemenda var fjórir mánuðir. Talið var nauð- synlegt að nám til stúd- entsprófs væri lengra en annars staðar á Norður- löndum vegna þess að sumarfrí væru lengri og danskan væri aukreitis við annað málanám. Nú hefur skólaárið lengst um u.þ.b. 6 vikur á ári, en kröfur um tungumálanám hafa dregist saman. Kennslutím- inn á þremur árum er tekinn að nálgast það sem gerðist á fjór- um árum fyrir fjórum áratug- um. Lengra sumarfrí og meira málanám er ekki lengur réttlæt- ing fyrir því að nemendur ljúki almennu námi ári seinna en ger- ist annars staðar í OECD-löndum. Vissulega er ekki hægt að kenna „allt“ á þremur námsárum nú fremur en á fjórum árum áður. Eftir þrjú ár í framhaldsskóla hafa nemendur lokið þrettán ára skólagöngu í fremur stöðluðu formi. Ungt fólk hefur ólík fram- tíðaráform og fjölbreytilegar þarfir og ætti að fá að snúa sér að sérhæfingu sinni þegar þarna er komið sögu. Ungmennin geta þá lært það sem þau þurfa til þess þar, ef til vill það sem á vantar frá því sem áður var á fjórða ári, en óþarfi er að láta alla taka allan pakkann, viljuga eða með þraut- seigjuna eina að vopni. Nemendur gætu þá lokið grunnháskólanámi, bakkalár- námi sem er eins konar sveins- próf, á þremur árum um 22 ára aldur. Margir gætu þá haldið út í atvinnulífið. Því yngri sem þeir eru þeim mun minni líkur eru á að þeir hafi stofnað fjölskyldu og þurfi á háum námslánum að halda. Stöldrum við Sannleikurinn er sá að margir þeir sem sitja í slæmri skulda- stöðu skulda ekki aðeins hús- næðislán heldur einnig náms- lán. Fjöldi fólks á milli þrítugs og fimmtugs skuldar námslán sem næst ekki að greiða upp á starfsaldrinum með þeim 4% af tekjum sem endurgreiðslan nemur. Í ýmsum löndum, s.s. Bret- landi, Bandaríkjum og á Norður- löndum, þykir það vera að binda klafa á herðar ungs fólks að það taki námslán fyrir öllum náms- kostnaði eins og hefur tíðkast hérlendis. Þar er fólk að jafnaði ungt og óbundið í upphafsnámi í háskóla, en þeir sem halda áfram í meistara- eða doktorsnám geta sótt um styrki og/eða fengið námstengda vinnu. Við ættum að staldra við og hugsa málið. Þorri fólks ætti að geta lokið starfsundirbúningi óbundið af skyldum gagnvart fjölskyldu ef áhersla væri lögð á að stytta námstíma til stúdents- prófs og styðja nemendur til að ljúka framhaldsskóla á eðlilegum tíma. Jafnvel væri ekki ólíklegt að svonefndur námsleiði minnk- aði ef námið styttist og nemend- ur sæju fram á lok innan fyrir- sjáanlegs tíma. Langtímaskyn unglinga er annað en fullorðinna. Starfsárin ásamt stofnun heim- ilis og fjölskyldu tækju síðan við eftir grunnnám eða starfsnám á þriðja skólastigi. Margir eru að glíma við þetta allt í einu eins og nú háttar til: námið, fjölskylduna og barnauppeldið, og svo skulda- málin vegna heimilis utan um fjölskylduna. Skyldi álagið ekki vera mikið á fjölskyldulífið, sam- veru fjölskyldunnar og maka- tengslin? Gæti stytting náms til stúdentsprófs verið liður í að stokka málin upp og hjálpa fólki til að njóta betur allra tímaskeið- anna í lífinu: undirbúnings- og námsáranna, starfsáranna og efri áranna? Lánasjóður, skuldir heimilanna og stytting náms til stúdentsprófs MENNTAMÁL Kristín Bjarna- dóttir prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands ➜ Sannleikurinn er sá að margir þeir sem sitja í slæmri skuldastöðu skulda ekki aðeins húsnæðislán heldur einnig námslán. Fjöldi fólks á milli þrítugs og fi mmtugs skuldar náms- lán sem næst ekki að greiða upp á starfsaldrinum með þeim 4% af tekjum sem endurgreiðslan nemur. AF NETINU Ánægjulegt Ég skal fúslega viðurkenna það að það kom mér ánægju- lega á óvart að vera skipaður í sérfræð- inganefnd um afnám verðtrygg- ingar á neyt- endalánum (sjá hér) til einstaklinga og heimila. Þessi nefndarskipan er sérstaklega ánægjuleg í ljósi þess að eitt af aðalbaráttumálum Verka- lýðsfélags Akraness undan- farin fimm ár hefur verið afnám verðtryggingar og að forsendubrestur heimilanna verði leiðréttur. En VLFA hefur lagt fram fjölmargar tillögur og ályktanir á vettvangi verka- lýðshreyfingarinnar á liðnum árum en algerlega án árangurs vegna þess að forysta ASÍ hefur varið verðtrygginguna eins og enginn sé morgun- dagurinn. Já, vonandi hillir nú undir að eitt aðalhagsmunamál íslenskra alþýðu sem afnám verðtryggingar og leiðrétt- ing á þeim miskunnarlausa forsendubresti sem skuldsett heimili máttu þola í kjölfar hrunsins fái farsælan endi. pressan.is/pressupennar/ Lesa_Vilhjalm_Birgisson Vilhjálmur Birgisson VI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.