Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 17

Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 17
MÁNUDAGUR 19. ágúst 2013 | SKOÐUN | 17 Það er nú alveg orðið ljóst, að ríkisstjórnin ætlar ekki að efna nema lít- inn hluta af þeim kosningaloforð- um, sem hún gaf öldruðum og öryrkjum fyrir síðustu kosning- ar. Ekkert bólar á efndum á stærsta kosningaloforð- inu, þ.e. því að leiðrétta lífeyri aldraðra og öryrkja vegna kjaraskerðingar og kjaragl- iðnunar krepputímans. Síðastliðin fjögur ár, þ.e. 2009- 2013, hafa lágmarkslaun hækkað talsvert miklu meira en lífeyrir aldraðra og öryrkja. Lífeyrir hefur mestallan þennan tíma verið fryst- ur en kaup láglaunafólks hefur hækkað reglulega. Þetta er nefnt kjaragliðnun. Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri aldr- aðra strax um a.m.k. 20%. Öryrkja- bandalag Íslands telur, að það þurfi að hækka lífeyri öryrkja talsvert meira til þess að jafna metin. Samþykkt var á landsfundum beggja stjórnarflokkanna fyrir kosningar, að það ætti að leiðrétta þessa kjaragliðnun að fullu. Var því lofað, að þetta yrði leiðrétt strax, ef þessir flokkar kæmust til valda. Frambjóðendur núverandi stjórn- arflokka gáfu mjög ákveðnar yfir- lýsingar í þessu efni og sögðu, að þetta yrði leiðrétt tafarlaust. Það kostar tíu milljarða á ári að hækka lífeyri aldraðra frá almannatryggingum um 20% en það kostar um sjö milljarða að hækka lífeyri öryrkja jafnmikið. Ekkert var minnst á þessa leiðrétt- ingu á sumarþinginu. Þetta stóra kosningaloforð virtist gleymt. Hækkun frítekjumarks kostar lítið Eygló Harðardóttir félagsmálaráð- herra lagði fram frumvarp á sum- arþinginu um að afturkalla tvær kjaraskerðingar frá júlí 2009, þ.e. að leiðrétta frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra og að leið- rétta grunnlífeyri. Frumvarp þetta var samþykkt. Samkvæmt því hækkar frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra úr 40 þús. kr. á mánuði í tæpar 110 þús. kr. á mánuði og hætt verður að láta greiðslur úr lífeyrissjóði skerða grunnlífeyri eins og gert hefur verið frá 2009. Frítekjumark vegna atvinnutekna öryrkja var ekki skert 2009 og hafa öryrkjar mátt vinna fyrir rúmlega 100 þús. kr. á mánuði án þess að það hafi skert tryggingabætur þeirra. Þetta litla skref, sem ríkisstjórn- in steig á sumarþinginu til þess að leiðrétta kjör lífeyrisþega, kostaði ríkissjóð sáralítið. Það kostar ríkið lítið sem ekkert að hækka frítekju- mark vegna atvinnutekna, þar eð ríkið fær auknar skatttekjur, fari aldraðir í auknum mæli út á vinnu- markaðinn. Ríkið fær því aukin útgjöld vegna hærra frítekjumarks til baka í auknum sköttum. Hins vegar er kostnaður meiri vegna leiðréttingar á grunnlífeyr- inum. Alls er kostnaður ríkisins vegna þessara tveggja leiðréttinga 850 millj. kr. á þessu ári. Það eru öll ósköpin. Skerðing tekjutryggingar ekki afturkölluð Ríkisstjórnin gerði hins vegar ekkert í því á sumarþinginu að afturkalla aukna skerðingu tekju- tryggingar en skerðingarhlutfall tekjutryggingar var hækkað úr 38,35% í 45% 1. júlí 2009. Við þessa ráðstöfun urðu meira en 19.000 elli- lífeyrisþegar fyrir kjaraskerðingu. Ef stjórnarflokkarnir hefðu staðið við kosningaloforð sitt um að aftur- kalla þessa skerðingu strax hefðu mjög margir, sem hafa lágar tekjur, fengið kjarabætur. Gallinn við leiðréttingu á grunn- lífeyrinum er hins vegar sá, að til- tölulega fáir njóta þeirrar leiðrétt- ingar og einkum þeir, sem hafa fremur góð kjör (góðan lífeyris- sjóð). Eðlilegt hefði verið að láta þetta hvort tveggja fylgjast að, þ.e. leiðréttingu á tekjutryggingu og leiðréttingu á grunnlífeyri. Þá hefðu bæði tekjulágir og tekjuháir lífeyrisþegar fengið leiðréttingu. En ríkisstjórnin kaus að leið- rétta aðeins kjör þeirra lífeyris- þega, sem betri höfðu kjörin. Ríkis- stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna lét ákvæðið um hækkun á skerðingarhlutfalli tekjutrygging- ar gilda til ársloka 2013, þannig að sú skerðing mun falla úr gildi um næstu áramót, ef núverandi ríkis- stjórn framlengir það ekki. Í fjár- málaráðuneytinu hefur verið barist fyrir því, að þessi skerðing á tekju- tryggingu verði áfram í gildi vegna slæms ástands í ríkisfjármálum. Gleymdist frítekjumark fjármagns- tekna? Í stjórnarsáttmálanum er ákvæði um það, að frítekjumark vegna fjármagnstekna verði leiðrétt en það var skert 1. janúar 2009. Þá var ákveðið að fjármagnstekjur kæmu að fullu til frádráttar við ákvörðun tryggingabóta almannatrygginga. Ellilífeyrisþegum hefur fundist mjög ósanngjarnt, að það væri verið að skerða tryggingabætur svo til að fullu vegna vaxtatekna af tiltölulega litlum bankainnistæðum þeirra. Vextir hafa verið mjög lágir og oft neikvæðir. Eðlilegt væri að lífeyr- isþegar gætu átt tiltölulega litlar upphæðir í bönkum án skerðingar tryggingabóta og án skattlagningar. Engin skýring hefur fengist á því hvers vegna ríkisstjórnin leiðrétti ekki frítekjumark fjármagnstekna á sumarþinginu eins og boðað hafði verið í stjórnarsáttmála. Í stjórn- arsáttmálanum segir, að færa eigi skerðingu tryggingabóta vegna fjármagnstekna til fyrra horfs, þ.e. láta fjármagnstekjur vega 50% við skerðingu tryggingabóta að frá- dregnu frítekjumarki, sem er 8.220 kr. á mánuði. Ríkisstjórnin verður að standa við fyrirheit sín um leiðréttingu á kjörum lífeyrisþega, bæði þau sem gefin voru í kosningabaráttunni og þau sem birtast í stjórnarsáttmál- anum. Það er komið að því að efna loforðin. Aldraðir og öryrkjar geta ekki beðið. Hækka þarf lífeyri aldraðra og öryrkja um 20% strax VELFERÐAR- MÁL Björgvin Guðmundsson formaður kjara nefndar Félags eldri borgara ➜ Enging skýring hefur fengist á því hvers vegna ríkisstjórnin leiðrétti ekki frí- tekjumark fjármagnstekna á sumarþinginu eins og boðað hafði verið í stjórnarsáttmála.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.