Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 20
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Margar af vinsælustu sjónvarps-þáttaröðunum einkennast af fallegum leikmyndum. Reglu-
legar heimsóknir í gegnum áhorf leiða
til þess að áhorfandinn þekkir íbúðina
eins og sína eigin. Spænski arkitektinn
Inaki Aliste Lizarralde hefur teiknað upp
nokkrar af frægustu íbúðunum. Mynd-
irnar eru gerðar af mikilli nákvæmni og
það getur tekið allt að 2tuttugu tíma að
teikna eina íbúð. Hvert einasta húsgagn
og gólfefni er teiknað.
FRIENDS
Íbúðirnar hjá Monicu og Rachel og
sömuleiðis hjá Chandler og Joey koma
fyrstar upp í kollinn hjá flestum, enda
eru þættirnir vinsælustu gamanþættir
sem gerðir hafa verið. Allir ættu að
kannast við fjólubláu veggina hjá stelp-
unum og hægindastólana hjá strákun-
um. Kaffihúsið Central Perk er auðvitað
líka eitt af einkennum þáttanna.
SEX AND THE CITY
Íbúð Carrie Bradshaw er ein af þeim
frægustu. Þáttaraðirnar urðu alls sex og
eftir það bættust við tvær kvikmyndir.
Í hverjum þætti og báðum myndunum
eru mynduð atriði inni í þessari litlu og
huggulegu íbúð. Það sem einkennir hana
er auðvitað stóri fataskápurinn, bað-
herbergið með tvær útgönguleiðir og
skrifborðið hennar Carrie þar sem hún
skrifar greinarnar sínar.
SEINFELD
Þættirnir um Jerry Seinfeld og félaga
gerast að mestu leyti í íbúð Jerrys.
Nágranni hans, Kramer, býr í íbúðinni á
móti og skýst í heimsókn hvenær sem
hentar honum. Mörg atriðanna gerast
einnig á kaffihúsi Monks.
FRASIER
Frasier-þættirnir gerðust í Seattle. Þar
bjó hann ásamt föður sínum. Leikmynd-
in fyrir þættina kostaði hálfa milljón
dollara en íbúðin er stútfull af hús-
gögnum eftir fræga hönnuði. Það hafa
fjölmargir fasteignakaupendur leitað
að íbúð með sama útsýni og íbúðin í
þáttunum. Það er þó ekki hægt þar sem
útsýnið er mynd sem tekin var af kletti
í Seattle. Íbúð Frasiers var fyrsta leik-
myndin sem Inaki Aliste teiknaði.
ÍBÚÐIRNAR Í UPPÁ-
HALDSÞÁTTUNUM
EINKENNANDI Íbúðirnar í frægustu þáttaröðunum þekkja margir. Spænski
arkitektinn Inaki Aliste Lizarraldehefur teiknað upp nokkrar af þeim frægustu.
FRIENDS Íbúð Monicu og Rachel.
SEX AND THE CITY Íbúð Carrie Bradshaw.
SEINFELD Íbúð Jerrys Seinfeld.
FRASIER Tölvuteikning af íbúð Frasier.
CENTRAL PERK Kaffihúsið fræga í Friends.
Nýtt námskeið hefst 26. septemberNýtt námskeið hefst 17. aprílæsta námskeið hefst 21. ágúst 2013
Bíldshöfða 18 | Sími 567 1466 | Opið frá kl. 8–22