Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 21

Fréttablaðið - 19.08.2013, Side 21
Kynningarblað Starfsmannaráðgjöf og heildarlausnir, ferilskrá, ráðningar og þjónusta. ATVINNUMIÐLUN MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 2013 & RÁÐGJÖF Fyrirtækið hefur náð góðri fótfestu og byggir starfsemina upp á orðsporinu og árangri þeirra verka sem við vinnum með viðskiptavinum okkar. Verkefnin hafa mörg hver verið mjög umfangsmikil og skilað miklum virðisauka f yrir f yrirtæki og stofnanir,“ segir framkvæmdastjóri Intellecta, Þórður S. Óskarsson, sem jafnframt leiðir mannauðsráðgjöf fyrirtækisins. Umbótadrifin ráðgjöf Ráðgjafaþjónusta Intellecta er f jölþætt og snertir á f lestum málefnum sem tengjast rekstri fyrir tækja og stofnana. Meðal þess helsta má nefna stefnumótun, stjórnskipulag, breytingastjórnun, mannauðsstjórnun, launaráðgjöf, árangurslaunakerfi og verkefna- stjórn. Til að sinna svo breiðum málaf lokki hefur Intellecta á að skipa öflugum hópi ráðgjafa en það er forsenda þess að geta aðstoðað viðskiptavini sem vilja ná enn meiri árangri í sínum rekstri. „Til þess að geta veitt góða ráðgjöf þurfum við að búa yfir þekkingu og reynslu sem nýtist okkar viðskipta- vinum. Metnaður okkar liggur í því að skilja aðstæður og vandamál viðskiptavinarins og geta beitt þekkingunni og reynslunni þannig að lausnin skapi raunverulegt virði fyrir viðskiptavininn. Eins einfalt og þetta hljómar, þá er þetta okkar kjarnastyrkur sem viðskiptavinir okkar segja að aðgreini okkur frá öðrum,“ segir Einar Þór Bjarnason, einn eigenda Intellecta og ráðgjafi. Ráðningar stjórnenda Intellecta býður heildstæða ráð- gjöf á sviði mannauðsmála. Þar mætti nefna uppbyggingu starfs- mannasamtala, innleiðingu og framkvæmd frammistöðumats, uppbyggingu árangurslaunakerfa, aðstoð við úrlausn ágreinings- mála og aðstoð við stjórnendur vegna uppsagna. Áherslusviðið í ráðningum er lykilstarfsmenn, stjórnendur, háskólamenntaðir sérfræðingar og upplýsingatækni- geirinn í heild sinni. Auk þess hefur viðskipta vinum boðist að Intellecta sjái um ráðningar í öll almenn skrifstofustörf fyrir þá. „Mikil reynsla er innan Intellecta sem nýtist viðskiptavinum í öllum málum sem snúa að ráðningum og öðrum þáttum er tengjast mannauði fyrirtækja. Mikil áhersla er lögð á faglegt hæfnismat á einstaklingum. Við erum valkostur þeirra sem kjósa að vanda til verka við ráðningar og ráðningarferlið í heild. Það er aukin og vaxandi krafa um að fagmennska í valferli sé tryggð. Allt okkar starf miðast við að uppfylla ströngustu kröfur í þeim efnum,“ segir Ari Eyberg ráðgjafi. „ Flestir eru sammála um að mannauður sé ein mikilvæg- asta auðlind fyrirtækja. Hann er uppspretta vaxtar og samkeppnis- yfirburða. Árangurs ríkar ráðningar byggjast á faglegum vinnubrögðum, skilningi á mannlegri hegðun og notkun viðurkenndra aðferða,“ bætir Helga Rún Runólfsdóttir ráðgjafi við. Markvissar rannsóknir Rannsóknir Intellecta byggja á markvissri nálgun, allt frá mótun rannsóknar til úrvinnslu o g f r a m s e t n i n g a r g a g n a . Þannig er höfuðáhersla lögð á að niðurstöður nar séu skýrt framsettar og leiði viðskiptavininn í átt að umbótum. Rannsóknirnar er u ý m ist sérsn iðna r eða staðlaðar en meðal helstu lausna e r u v i n nu s t að a g r e i n i n g a r, þjónustukannanir, kjarakannanir og stjórnendamat. „Það birtast reglulega nýjar lausnir hjá okkur og sú sem hefur komið sterk inn er Stjórnendamælirinn. Stjórnendamælirinn er ný leið við stjórnendamat þar sem áhersla er lögð á þátttöku allra starfsmanna í að meta allan stjórnendahópinn. Um er að ræða hnitmiðaða lausn sem þó gefur glögga yfirsýn yfir stjórnenda hópinn og þarfir til umbóta. Þessi lausn varð til í framhaldi af því að viðskiptavinir vildu síður nota hefðbundna 360 gráðu matið og því varð til þessi sérsniðna lausn, sem bætir upp veikleika forverans og hefur því náð góðri fótfestu hjá okkur,“ segir Gísli Árni Gíslason, ráðgjafi. Fagmennska í ráðgjöf, ráðningum og rannsóknum Intellecta er 12 ára gamalt sjálfstætt þekkingarfyrirtæki með áherslu á þróun og innleiðslu lausna sem skila árangri fyrir viðskiptavini. Fyrirtækið starfar á þremur meginsviðum; rannsóknum, ráðningum og rekstrarráðgjöf. Nú starfa níu einstaklingar sem ráðgjafar hjá fyrirtækinu og búa yfir umfangsmikilli reynslu í ráðgjöf og rekstri. Starfsfólk Intellecta býður heildstæða ráðgjöf á sviði mannauðsmála.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.