Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 22

Fréttablaðið - 19.08.2013, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGAtvinnumiðlun MÁNUDAGUR 19. ÁGÚST 20132 Ráðn i nga rstofa n Vi n na.is hóf starfsemi árið 2000 og hefur sérstaða hennar frá upphafi falist í að sérhæfa sig í ráðningum í störf þar sem háskólamenntunar er ekki krafist. Um er að ræða fjölda ólíkra starfa í ólíkum atvinnugreinum en Vinna. is er eina íslenska ráðningar stofan sem hefur haft slíka sérhæfingu. Ag la Sig r íðu r Björ nsdót t i r, ráðningarstjóri Vinna.is, hefur starfað hjá stofunni frá stofnun. „Ég er búin að starfa við ráðningar síðan árið 1997 en þá starfaði ég hjá ráðningar þjónustu Gallup. Árið 1999 sáum við að þörf var á ráðningarþjónustu sem lagði áherslu á þennan markhóp og hóf ég undirbúning að stofnun hennar. Við opnuðum Vinna.is árið 2000 og höfum því starfað óslitið í þrettán ár.“ Hnitmiðaður markhópur Vinna.is sérhæfir sig í ráðningum starfsfólks sem starfar við verslun og þjónustu, sölu, útkeyrslu, sölu- og lagerstjórn, bókhald, almenn lagerstörf, almenn skrifstofustörf, iðnaðarstörf, verkamannastörf og önnur störf þar sem ekki er krafist háskólamenntunar. Agla segir aldrei hafa hvarflað að starfsmönnum að einblína á önnur störf. „Þetta er mark- hópur okkar og við viljum sinna honum vel. Við erum í mjög góðu sambandi við viðskiptavini okkar, hvort sem það eru fyrirtækin sem eru að ráða starfsfólk eða umsækjendur um störf.“ Hún segir aðrar stofur sinna ráðningum allt frá framlínufólki og upp í störf forstjóra og því geti verið erfitt að halda fókus. „Mark- hópur okkar finnur góðan stað hjá okkur og hefur viðskiptavinum okkar þótt gott að vita af þessum hópi hjá okkur. Við höfum líka mjög góða þekkingu á þessum markaði og vitum hvers konar fólk þarf í hin ólíku störf. Þegar fyrir- tæki leggja inn beiðni erum við skjót að setja okkur í spor þeirra og sigta út rétta fólkið.“ Eingöngu á netinu Vinna.is var fyrsta ráðningar- þjónustan sem starfaði eingöngu á netinu. „Yfirleitt gat fólk komið með ferilskrár í pappírsformi til ráðningarstofa en við höfum alla tíð eingöngu verið með skráningu á netinu. Við vorum því frum- kvöðlar í þessum vinnubrögðum. Að öðru leyti er ráðningarferlið hefðbundið, við sendum engan frá okkur til fyrirtækja nema að hafa hitt viðkomandi fyrst og tekið í ítarlegt viðtal og gengið úr skugga um áhuga á starfi og fyrirtæki. Viðskiptavinir okkar geta verið vissir um það.“ Þar sem Vinna.is er þekkt á markaðnum og með gott orðspor að sögn Öglu hefur þeim reynst auðvelt að ná í umsækjendur. „Öll störf sem við vinnum með fara á vefinn okkar. Auk þess höfum við póstlista sem telur um 10.000 manns. Það þýðir að ef við setjum auglýsingu af stað er nokkuð tryggt að stór hópur fólks sjái hana og það skiptir fyrirtækin sem leita heilmiklu máli. Með þessu fáum við inn ferskar umsóknir frá fólki sem hefur áhuga á starfinu og getum unnið hratt og örugglega að ráðningunni.“ Eftirspurn að aukast Við mat á umsækjendum vinna starfsmenn Vinna.is út f rá starfsgreiningum fyrirtækjanna og miða auglýsinguna út frá henni. „Síðan tökum við viðtöl við umsækjendur, könnum umsagnir og annað sem tilheyrir hefð- bundnu ráðningarferli. Einnig stendur fyrirtækjum til boða áreiðanleika- og áhættumat DSI (e. dependabilit y and safet y instrument) frá alþjóðlega prófa- f y r ir tæk inu SHL . Mat ið er ætlað til notkunar í forvali (e. pre-screening) við ráðningar í almenn störf og er sértaklega hannað til að spá um frammi- stöðu í framlínustörfum í þjónustu og framleiðslu. Þetta öryggismat var staðlað að íslenskum markaði og byggir á íslenskum viðmiðum. Nokkur fyrirtæki hér á landi hafa tekið þetta í notkun og er þetta hluti af ráðningarferli þeirra.“ Vinna.is er með trygga og trúa viðskiptavini að sögn Öglu. „Við leggjum mikið upp úr persónu- legri þjónustu og erum farin að gjörþekkja mörg fyrirtækin, þarfir þeirra og óskir. Enda finnst þeim gott að setja þessi mál í hendurnar á okkur því vitum að hverju þau leita. Þetta er skemmtilegur hópur að vinna með og við erum mjög bjartsýn á framtíðina. Störf í þjónustugeiranum eru að taka vel við sér undanfarið eftir að eftirspurn eftir slíku fólki dróst saman eftir hrun. Við finnum fyrir aukinni eftirspurn og sjáum enga ástæðu til annars en að vera bjartsýn um framhaldið.“ Skýr sýn á ráðningar Vinna.is var fyrsta ráðningarþjónustan til að starfa eingöngu á netinu. Stofan einblínir á störf þar sem háskólamenntunar er ekki krafist. Eftir að hafa starfað í þrettán ár hefur stofan traust orðspor enda spilar persónuleg þjónusta stórt hlutverk í starfsemi hennar. „Við leggjum mikið upp úr persónulegri þjónustu og erum farin að gjörþekkja mörg fyrirtækin, þarfir þeirra og óskir,“ segir Agla Sigríður Björnsdóttir, ráðningarstjóri Vinna.is. MYND/GVA Starfsmenn Vinna.is, Elín Friðjónsdóttir ráðgjafi og Agla Sigríður Björnsdóttir ráðningar- stjóri. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.